Óraunhæfar kröfur
| October 8, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar |
Hvaða kröfu var hægt að gera til íslenska landsliðsins í leiknum gegn Portúgal? 105 sæti skilja landslið þjóðanna að á styrkleikalista FIFA. Landslið þeirra hefur ekki tapað á heimavelli í þrjú ár og komist á öll stórmót frá árinu 2000. Sigur eða jafntefli?
Nei. Eina raunhæfa krafan að mínu mati var sú að menn legðu sig fram og yrðu landi og þjóð til sóma. Helstu stjörnur Íslendinga voru fjarverandi og Ólafur Jóhannessonar hafði ekki einu sinni „upp á topp“ framherja með landsliðsreynslu til þess að tefla fram.
Jonathan Zebina og samtímalistin
| October 5, 2011 | Posted by Björn Már Ólafsson under Ítalski boltinn, Þessir fótboltamenn... |
Áhugamál knattspyrnumanna eru jafnmismunandi og þau eru mörg. Sumir halda framhjá konunum sínum, margir spila golf og enn aðrir fá kick úr því að stela kleinuhringjum. Jonathan Zebina er aftur á móti meðal þeirra dönnuðustu og menningarmaður mikill. Svo mikill að hann hefur opnað sitt eigið listasafn í Mílanóborg – hið svokallaða Art contemporain Collection Jonathan Zebina og eyðir hann megninu af frítíma sínum þar. (more…)
Arrigo Sacchi – „Total football“
| September 19, 2011 | Posted by Björn Már Ólafsson under Ítalski boltinn |
„Total football” er hugtak sem oftar og oftar heyrist nefnt í sambandi við leik Barcelona. Hugtakið kom fyrst til sögunnar til að lýsa léttleikandi liði Hollendinga á sjöunda og áttunda áratugi síðustu aldar. Að lið haldi boltanum innan liðsins nánast allan leikinn jafnvel gegn eins erfiðum andstæðingum og Real Madrid og AC Milan er jafn erfitt og það er ótrúlegt. En hugmyndin um „Total football” – hið fullkomna lið er ekki ný af nálinni og kviknaði hún hvorki með Pep Guardiola né Frank Rijkard, þótt þeir hafi átt stóran þátt í að þróa hana. Sá sem er oft kallaður faðir nútíma knattspyrnu og sá sem enduruppfann svæðisvörnina á níunda áratugnum er Arrigo Sacchi og mun ég hér fjalla um líf hans, störf og hugmyndafræði í knattspyrnu.
(more…)
Íslenska landsliðið í knattspyrnu – hvert skal stefna?
| September 16, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar, Íslenski boltinn |
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu og hvert skal stefna var dagskrárefnið í umræðu vikunnar á Student.is, fréttasíðu Háskóla Íslands, sem undirritaður stýrði. Benedikt Bóas Hinriksson, íþróttafréttamaður og verkfræðinemi, Edda Garðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og Skúli Jón Friðgeirsson, landsliðsmaður og viðskiptafræðinemi, skiptust á skoðunum.
Smellið hér til þess að hlusta á umræðuna.
Af hverju vilja menn eyðileggja umræðu um fótbolta?
| September 15, 2011 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Hugleiðingar |
Mér finnst að ég verði að taka upp hanskann fyrir þá Íslendinga sem vilja skrifa og fjalla um fótbolta á málefnalegan hátt og segja sínar skoðanir. Það virðist nefnilega vera hópur einhverra [insert fúkyrði] þarna úti sem virðist hafa þann tilgang einan í lífinu að eyðileggja umræður. (more…)
Sweeter than honey 2.0 Part II
| September 15, 2011 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Enski boltinn |
Hvað getur skýrt gífurlega eyðslu (eða réttara sagt eyðslu aukningu) liðanna á Englandi? Þrátt fyrir það að auðvitað séu alltaf dæmi um að fólk / fyrirtæki / knattspyrnulið eyði um efni fram hlýtur eyðslan (og umframeyðslan!) þó alltaf að vera í einhverju samræmi við tekjur. Þannig þarftu yfirleitt að hafa milljarða í tekjur (eða eignum) til að skulda milljarða (að því gefnu að þér hafi ekki verið gefinn banki!). Hafir þú milljarða í tekjur þarf það að sama skapi heldur ekkert að vera vitlaust/óábyrgt/rangt þótt þú eyðir milljörðum.
Í fyrri hluta þessarar samantektar var farið yfir eyðslu liða í Úrvalsdeild á Englandi og gífurlegar verðhækkanir á leikmannamarkaði. Hér á eftir verður velt upp mögulegum ástæðum slíkra hækkana, forsendur þess að reka atvinnu knattspyrnulið, tekjum þeirra og hvernig þær hafa breyst. (more…)
Sweeter than honey 2.0 Part I
| September 10, 2011 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Enski boltinn |
Fyrir um ári síðan birti ég hér á Sammaranum grein um leikmannakaup toppliðanna í enska boltanum. Greinin bar nafnið Sweeter than honey og má lesa með því að smella á hlekkinn. Í greininni var farið yfir samanlögð kaup og sölur stærstu liðanna frá stofnun úrvaldseildar og hvernig þær tölur breyttust ef leiðrétt var fyrir verðbólgu. Vegna þess hversu miklu munar á hækkun leikmannaverðs og almenns verðlags var lagst í að útbúa vísitölu leikmannaverðs (LiSa) sem gæti þá gefið réttari mynd (aðra mynd að minnstakosti) af raunverulegri eyðslu liðanna. Ágætis umræða skapaðist um greinina þar sem komu fram ýmsar áhugaverðar ábendingar og athugasemdir (athugasemdirnar duttu því miður út þegar síðan var uppfærð).
Nú hefur þessi vísitala leikmannaverðs og greinin sjálf verið uppfærð þar sem tekið hefur verið mið af þessum athugasemdum og hugmyndin útfærð. Greinin, sem fjallar um fjármál liða í efstu deild á Englandi, mun birtast í þremur hlutum. Í þessum fyrsta hluta verður farið, eins og áður, yfir eyðslu liðanna. Er þar búið að færa inn þau viðskipti sem hafa átt sér stað síðan fyrri greinin var birt og er notast við uppfært LiSa þar sem mun fleiri lið eru tekin með í reikninginn. Í seinni tveimur hlutunum verður farið yfir ástæður og innkomu annarsvegar, samanburð og árangur hinsvegar. Munu þeir birtast innan skamms. (more…)
Paul McGrath á sóló
| September 9, 2011 | Posted by Atli Ísleifsson under Léttmeti, Myndbönd |
Harðhausinn Paul McGrath hefur nú fetað í spor Keegan, Gazza og Hoddle&Waddle og gefið út sitt fyrsta lag. McGrath hefur tónlistarferilinn með cover-útgáfu af Byrds-slagaranum „Goin‘ Back“. Tónlistarmyndbandið er reiðubúið og er af dýrari gerðinni – goðsögnin gengur á írskri ströndinni, lítur hugsi til hafs og fleytir kerlingar. Getur ekki klikkað. (more…)
Að vera yfir aðra hafinn
| September 8, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar, Íslenski boltinn |
Veigar Páll Gunnarsson sýndi öllum þeim sem standa að íslenska landsliðinu í knattspyrnu og þeim sem styðja það mikla óvirðingu með framkomu sinni síðastliðinn laugardag. Veigar Páll hefur notið mikilla vinsælda sem knattspyrnumaður og margir talað fyrir því að hann fengi aukin tækifæri með liðinu. En það mun seint færa nokkrum manni vinsældir að telja sig hafinn yfir reglur sem gilda um alla leikmenn landsliðsins. (more…)
Ótrúlegur sofandaháttur forsvarsmanna Inter
| September 6, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Ítalski boltinn, Léttmeti |
Diego Forlan verður ekki gjaldgengur í Meistaradeild Evrópu með Inter fyrr en á næsta stigi keppninnar eins og frægt er orðið. Inter ætti þó ekki að eiga í vandræðum með að komast upp úr riðlinum sem samanstendur af CSKA Mosvku, Lille og Trabzonspor.
Það er hins vegar frekar fyndið að forráðamenn Inter hafi ekki gert sér grein fyrir því að Forlan yrði ekki gjaldgengur í riðlakeppninni. Það er í raun og veru ótrúlegt að það sé tilfellið. En afsakanirnar eru á reiðum höndum. (more…)


Ný ummæli