|
Greinasafn
Íslenski boltinn
Hvernig gæti KR-völlurinn litið út? | Hvernig gæti KR-völlurinn litið út? |
|
|
|
| Höfundur: Palli | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Wednesday, 04 February 2009 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Ekki alls fyrir löngu kynntu KR-ingar stórhuga hugmyndir um uppbyggingu á KR-svæðinu. Rætt var um einhverskonar miðstöð menningar í Vesturbænum sem yrði reist umhverfis nýjan leikvang KR liðsins. Þrátt fyrir erfitt ástand í samfélaginu erum við KR-ingar hvergi nærri hættir og enn er unnið undir stjórn Péturs Marteinssonar að þessum hugmyndum. Við KR-ingar þurfum að halda áfram þessari vinnu og þrýsta á borgaryfirvöld því án þeirra gerum við lítið. Greinin birtist fyrst á krreykjavik.is
Þeir sem hafa lýst sig hvað mótfallnasta þessum hugmyndum vilja ekki sjá stærðarinnar leikvang á lóðinni er KR svæðið stendur á. En fæstir gera sér í raun í hugarlund hver stærð á svona leikvangi yrði. Þetta er ekki eins yfirþyrmandi og andstæðingar framþróunar félagsins vilja meina. Sjálfur vil ég sjá sem glæsilegastan leikvang sem yrði félaginu til sóma. Á vafri mínu um veraldarvefinn skoðaði ég nokkra velli sem ég myndi vilja sjá sem fyrirmynd af leikvangi okkar KR-inga. Allir eiga þeir það sameiginlegt að rúma 5-8.000 áhorfendur en það eru þær tölu sem hafa verið nefndar. Við skulum skoða vellina. Þessi mynd er af Nene Park heimavelli Rushden and Dimonds er leikur í utandeildinni í Englandi. Völlurinn tekur rúmlega 6.000 áhorfendur en er þrátt fyrir það með stúku allan hringinn og glæsilegur í alla staði. Þetta er sá völlur sem ég myndi vilja sjá KR-völlinn líkjast hvað mest. Hér má sjá aðra mynd af vellinum tekna af stúkunni fyrir aftan markið.
Hér kemur svo sú þriðja en eins og sjá má þá eru stæði fyrir aftan markið, sem ég veit að myndi gleðja marga
Næsti völlur sem við skoðum er Sixfields stadium heimavöllur Northampton í ensku c deildinni. Leikvangurinn tekur rúmlega 7.500 áhorfendur í stæði og samanstendur af einni stórri stúku og þremur minni.
Völlurinn er virkilega skemmtilegur og myndi sóma sér vel í Frostaskjólinu. Stúkurnar fyrir aftan mörkin taka um 800 áhorfendur hvor en sú stóra eins og sér tekur 4.000 áhorfendur.Eins og sést á myndunum er stúkurnar fyrir aftan mörkin einungis stúkur en engar byggingar eru áfastar. Slík nýting verður að teljast döpur en í hugmyndum okkar KR-ingar er gert ráð fyrir betri nýtingu. En við pælum ekki í því hér, heldur einungis hvernig völlurinn gæti litið út fyrir okkur stuðningsmenn. Hér kemur önnur mynd af stúkunni fyrir aftan markið.
Næst er að finna teikningu af nýjum velli þeirra St. Mirren manna í Skotlandi en völlurinn var tekinn í gagnið ekki alls fyrir löngu. Hann tekur rúmlega 7.000 áhorfendur í sæti.
Hérna sést hvernig stúkurnar líta út, en sætin minna okkur á stórveldið.
Næsti völlur er heimavöllur Burton Albion er leikur í ensku utandeildinni. Völlurinn tekur um 6.000 áhorfendur og þar af rúmlega 2.000 í sæti. Að sjálfsögðu yrði nýtingin ekki slík á okkar velli en ég læt hann fylgja með til þess að sýna stærðina.
Það eru sæti einungis í einni stúku af fjórum en hinar hafa einungis stæði. Endilega segið ykkar skoðun og póstið myndum af leikvöngum sem þið teljið að myndu henta vel í Frostaskjólið.
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| < Prev | Next > |
|---|








