Um Sammarann

Sammarinn.com leitast við að vera öðruvísi fótboltasíða fyrir þá sem fá aldrei nóg af íþróttinni. Síðan leggur áherslu á greinaskrif um fótbolta en ekki endilega á dægurfréttir hvers tíma. Skoplega hliðin á fótboltanum er yfirleitt í fyrirrúmi en einnig hefur Sammarinn mikinn áhuga á að rýna í fótboltasöguna og segja ósagðar sögur.

Útvarp
Sumarið 2006 færði Sammarinn út kvíarnar þegar Fótboltaþátturinn í umsjá Björns Berg fór í loftið á Útvarpi Sögu FM 99.4. Í síðari tíð hafa þeir Björn Berg og Kolbeinn Tumi verið á föstudögum kl 17:10 en þættina má einnig nálgast hér á síðunni fljótlega eftir útsendingu.

Pub Quiz
Fótbolta Quiz Sammarans á Enska Barnum hóf göngu sína sumarið 2009. Í fyrstu voru Quiz-in mánaðarlega en vegna mikils áhuga hefur keppnunum verið fjölgað og fara nú fram á hverju sunnudagskvöldi kl 20. Þangað eru allir velkomnir, þátttaka er ókeypis og alltaf líf og fjör.

Allar athugasemdir eða leiðréttingar eru vel þegnar og eru lesendur hvattir til að senda ritstjórum vefpóst hafi þeir eitthvað fram að færa. Allar óskir um umfjöllun á ákveðnum málefnum eða birtingar á innsendum greinum berist á sömu vefföng.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>