Monthly Archives: September 2011
Arrigo Sacchi – „Total football“
| September 19, 2011 | Posted by Björn Már Ólafsson under Ítalski boltinn |
„Total football” er hugtak sem oftar og oftar heyrist nefnt í sambandi við leik Barcelona. Hugtakið kom fyrst til sögunnar til að lýsa léttleikandi liði Hollendinga á sjöunda og áttunda áratugi síðustu aldar. Að lið haldi boltanum innan liðsins nánast allan leikinn jafnvel gegn eins erfiðum andstæðingum og Real Madrid og AC Milan er jafn… meira
Íslenska landsliðið í knattspyrnu – hvert skal stefna?
| September 16, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar, Íslenski boltinn |
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu og hvert skal stefna var dagskrárefnið í umræðu vikunnar á Student.is, fréttasíðu Háskóla Íslands, sem undirritaður stýrði. Benedikt Bóas Hinriksson, íþróttafréttamaður og verkfræðinemi, Edda Garðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og Skúli Jón Friðgeirsson, landsliðsmaður og viðskiptafræðinemi, skiptust á skoðunum. Smellið hér til þess að hlusta á umræðuna. meira
Af hverju vilja menn eyðileggja umræðu um fótbolta?
| September 15, 2011 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Hugleiðingar |
Mér finnst að ég verði að taka upp hanskann fyrir þá Íslendinga sem vilja skrifa og fjalla um fótbolta á málefnalegan hátt og segja sínar skoðanir. Það virðist nefnilega vera hópur einhverra [insert fúkyrði] þarna úti sem virðist hafa þann tilgang einan í lífinu að eyðileggja umræður. meira
Sweeter than honey 2.0 Part II
| September 15, 2011 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Enski boltinn |
Hvað getur skýrt gífurlega eyðslu (eða réttara sagt eyðslu aukningu) liðanna á Englandi? Þrátt fyrir það að auðvitað séu alltaf dæmi um að fólk / fyrirtæki / knattspyrnulið eyði um efni fram hlýtur eyðslan (og umframeyðslan!) þó alltaf að vera í einhverju samræmi við tekjur. Þannig þarftu yfirleitt að hafa milljarða í tekjur (eða eignum)… meira
Sweeter than honey 2.0 Part I
| September 10, 2011 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Enski boltinn |
Fyrir um ári síðan birti ég hér á Sammaranum grein um leikmannakaup toppliðanna í enska boltanum. Greinin bar nafnið Sweeter than honey og má lesa með því að smella á hlekkinn. Í greininni var farið yfir samanlögð kaup og sölur stærstu liðanna frá stofnun úrvaldseildar og hvernig þær tölur breyttust ef leiðrétt var fyrir verðbólgu.… meira
Paul McGrath á sóló
| September 9, 2011 | Posted by Atli Ísleifsson under Léttmeti, Myndbönd |
Harðhausinn Paul McGrath hefur nú fetað í spor Keegan, Gazza og Hoddle&Waddle og gefið út sitt fyrsta lag. McGrath hefur tónlistarferilinn með cover-útgáfu af Byrds-slagaranum „Goin‘ Back“. Tónlistarmyndbandið er reiðubúið og er af dýrari gerðinni – goðsögnin gengur á írskri ströndinni, lítur hugsi til hafs og fleytir kerlingar. Getur ekki klikkað. meira
Að vera yfir aðra hafinn
| September 8, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar, Íslenski boltinn |
Veigar Páll Gunnarsson sýndi öllum þeim sem standa að íslenska landsliðinu í knattspyrnu og þeim sem styðja það mikla óvirðingu með framkomu sinni síðastliðinn laugardag. Veigar Páll hefur notið mikilla vinsælda sem knattspyrnumaður og margir talað fyrir því að hann fengi aukin tækifæri með liðinu. En það mun seint færa nokkrum manni vinsældir að telja… meira
Ótrúlegur sofandaháttur forsvarsmanna Inter
| September 6, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Ítalski boltinn, Léttmeti |
Diego Forlan verður ekki gjaldgengur í Meistaradeild Evrópu með Inter fyrr en á næsta stigi keppninnar eins og frægt er orðið. Inter ætti þó ekki að eiga í vandræðum með að komast upp úr riðlinum sem samanstendur af CSKA Mosvku, Lille og Trabzonspor. Það er hins vegar frekar fyndið að forráðamenn Inter hafi ekki gert… meira
Versta landslið Íslands?
| September 5, 2011 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Nú þegar íslenska landsliðið er í sögulegri lægð er gaman að halda sig aðeins á neikvæðu nótunum og rifja upp slökustu leikmenn bláa búningsins. Við Páll Kristjánsson settumst niður yfir heitu súkkulaði og hripuðum niður það sem við köllum Versta landslið Íslands. meira
Svindlari #2 – Jan Rezek
| September 5, 2011 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar |
Tékkinn Jan Rezek var hetja þjóðar sinnar gegn Skotum á Hampden Park í undankeppni EM 2012 á laugardag. Þegar skammt var til leiksloka sendi Tomas Rosicky frábæra sendingu á Rezek sem var kominn í fína aðstöðu, varnarmaður setti á hann pressu og Rezek féll. Vítaspyrna dæmd enda dómarinn með erfitt sjónarhorn og ekkert athugavert virtist… meira


Ný ummæli