Monthly Archives: August 2010
Búllugetraunin
| August 31, 2010 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
September er genginn í garð og óhætt að segja að Sammarinn sé farinn á fullt eftir gott sumarfrí. Um leið fer Búllugetraunin aftur í gang en hún verður fastur liður á miðvikudögum hér á Sammaranum. Þeir voru ófáir lesendurnir sem unnu sér inn gómsæta borgara og með því hjá Búllunni síðasta vetur og eflaust margir… meira
Illa komið fram við Ásmund
| August 31, 2010 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Það hefur varla farið fram hjá mörgum að Ásmundur Haraldsson hefur verið rekinn úr starfi þjálfara Gróttu eftir um 6 ára starf. Sammarinn hefur ekki beint verið helsta málpípa Gróttuborgara í gegnum tíðina en taka verður upp hanskann fyrir Ásmundi. Það skal tekið fram að topp maður er tekinn við stjórn félagsins en að reka… meira
U21 liðið
| August 30, 2010 | Posted by Ari Erlingsson under Íslenski boltinn |
Nú seinna í dag mun Eyjólfur Gjafar Sverrisson tilkynna hópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Tékkum. Ég setti saman byrjunarliðið eins og ég tel að það verði og það verður að segjast að það er nokkuð sterkt þó það vanti marga lykilmenn. meira
Joey Barton launað
| August 30, 2010 | Posted by admin under Myndbönd |
Ansi mörgum fórnarlömbum Jóns Barton líður væntanlega örlítið betur eftir að menn Mick McCarthy ákváðu að grensása strákinn í 1-1 jafntefli liðanna á laugardaginn. {youtube}yc84l_vpyu8{/youtube} meira
Sammarinn.com vs Fotbolti.net
| August 30, 2010 | Posted by admin under Annað |
Sammarinn.com mætti félögum sínum á hinni frábæru síðu fotbolti.net í árlegu einvígi liðanna á Tungubökkum í gær. Leikið var 7 gegn 7 og var leiktíminn 2×20 mínútur. Að hætti þeirra heiðursmanna sem spiluðu knattspyrnu á upphafsárum íþróttarinnar þurfti engan dómara til að dæma leikinn. Síðurnar höfðu tvisvar áður mæst á knattspyrnuvellinum og hafði Sammarinn í… meira
Hetjur tréverksins
| August 29, 2010 | Posted by admin under Þessir fótboltamenn... |
Það er gamalt orðatiltæki sem segir að baki hvers mikilmennis/konu standi góð eiginkona/eiginmaður, þetta orðatiltæki á líklega hvergi betur heima en hér sem segir frá mönnunum sem sitja klárir á bekknum allt tímabilið í hvaða veðri sem er, aðalmarkverðinum til halds og trausts. Við skulum athuga betur með vel valda varamarkmenn sem eiga það sameiginlega… meira
Öxullinn snýst – FC Bayern München 1966-1967
| August 28, 2010 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Aftur til fortíðar |
Það kann að vera að það komi einhverjum á óvart að Bayern München (FC Bayern fyrir þá sem horfðu á HM í sumar) hefur ekki alltaf borið þann ægishjálm yfir þýskum fótbolta sem þeir gera nú og hafa gert í áratugi. Raunin er sú að allt fram á sjöunda áratug síðustu aldar var Bayern München… meira
Fótbolta Quiz Sammarans #30 – Spurningarnar
| August 27, 2010 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Það var flott og falleg mæting þegar Fótbolta Quiz Sammarans fylltu þriðja tuginn síðastliðið þriðjudagskvöld á English Pub. Atli Ísleifsson var gestaspyrill og vöktu spurningarnar lukku enda mikið um svo kallaða "brain teasers". Baráttan var hörð og þurfti bæði bráðabana til að skera úr um 2. og 3. sætið. Verðlaunasætin voru skipuð eftirfarandi þátttakendum: Daði… meira
Sweeter than honey
| August 26, 2010 | Posted by Gunnar Birnir Jónsson under Enski boltinn |
Manchester City hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinum á undanförnum misserum. Ekki má sjá að neitt lát verði á eyðslunni í bráð og virðast peningarnir hreinlega óþrjótandi. City, sem hefur mjög háleit markmið og vill komast í hóp fremstu liða Evrópu, hefur þurft að byggja liðið algjörlega upp frá grunni og það kostar sitt. Fyrirmyndin… meira
Gömlu góðu vellirnir
| August 25, 2010 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Ensk knattspyrna hefur tekið gríðarlegum breytingum undanfarna tvo áratugi. Aukið fjármagn, erlendir leikmenn í takt við gríðarlega umfjöllun hefur gert deildina að þeirri stærstu í heimi. Eitt af því sem einnig hefur tekið miklum breytingum eru leikvangar félaganna. Margir hverjir hafa gengið í gegnum miklar breytingar og þá hafa nokkur lið byggt nýja velli frá… meira


Ný ummæli