Monthly Archives: June 2010
Pirringur
| June 30, 2010 | Posted by admin under HM 2010 |
Í enn eitt skiptið lét ég blekkjast. Ég var farinn að hafa trú á því að þrátt fyrir vonbrigði undanfarinna áratuga væru Englendingar líklegir til afreka í Suður Afríku. Alvöru þjálfari, frábær árangur í undankeppninni og heimsklassa leikmenn með Wayne Rooney í broddi fylkingar. En það voru sömu klisjurnar. Gerrard og Lampard týndir á vellinum,… meira
Fljúgandi asnar – Gli asini volano
| June 29, 2010 | Posted by Björn Már Ólafsson under Innsendar greinar, Ítalski boltinn |
Tímabilið 2001/2002 átti sérkennilegt atvik sér stað í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Atvikið var gulklætt og bar nafnið Chievo Verona. Seinna átti það eftir að festa sig í sessi í toppi ítalskrar knattspyrnu, aðdáendum “calcio” til mikillar lukku. Ævintýri þessa liðs frá svefnbænum Chievo rétt við Verona á sér ekkert sérstaklega langan aðdraganda. Félagið var… meira
HM minningar
| June 28, 2010 | Posted by admin under HM 2010 |
Heimsmeistaramótið er hápunktur fótboltaunnenda og keppnin í Suður Afríku er sú nítjánda í röðinni. Hver keppni hefur sinn sjarma og skilur eftir sig minningar sem lifa um ókomin ár. Breska ríkssjónvarpið setti saman stórgóða þætti með 50 eftirminnilegustu atriðun frá HM eða "50 most shocking World Cup moments". Augljóst er að þátturinn er breskur þar sem flest atriðin tengjast landsliðum þeirra en Peter Crouch er annar þáttastjórnanda… meira
Hápunktur HM hingað til
| June 28, 2010 | Posted by admin under HM 2010 |
Vissulega hefur ýmsilegt skemmtilegt atvikast á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en í gær brosti ég í fyrsta skipti út að eyrum og ég var svo sannarlega ekki sá eini. Sumir leikmenn eru óþolandi. Sífellt vælandi í samherjum, mótherjum og dómurum, falla við minnstu snertingu en eru svo sjálfir suddalega grófir. Þessi hefur þar að auki fullkomnað… meira
Boateng bræður
| June 26, 2010 | Posted by admin under HM 2010 |
Það var sögulegur leikur Þýskalands og Ghana í riðlakeppninni, þar mættust bræður í fyrsta skiptið í sögu heimsmeistarakeppninnar. Í liði Ghana spilar Kevin Prince Boateng sem sókndjarfur miðjumaður og Jerome Boateng spilar í vörn Þýskalands. Þarna eru á ferðinni tveir góðir leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér. Bræðurnir eiga móður frá Þýskalandi og föður frá Gana, en eru uppaldir… meira
Getraun fyrir getraunaþyrsta
| June 26, 2010 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Lesendur Sammarans, hlustendur Fótboltaþáttarins og gestir Fótbolta Quiz-ins hafa eflaust orðið varir við að Sammarinn hefur verið kattslakur undanfarnar vikur. Á meðan aðrar fótboltasíður missa sig í umfjöllun um HM 2010 nýtur Sammarinn tímann, vinnur í taninu, sötrar drykki með litlum regnhlífum og auðvitað glápir á boltann. Það má reikna með því að Sammarinn verði… meira
The Other Final
| June 25, 2010 | Posted by admin under Aftur til fortíðar |
Sunnudaginn 30. júní 2002 beindust augu knattspyrnuheimsins að Yokohama í Japan þar sem Brassar og Þjóðverjar áttust við í úrslitaleik HM. Ronaldo tryggði þar Brasilíumönnum heimsmeistaratitilinn, en fyrr um daginn hafði hins vegar farið fram “hinn úrslitaleikurinn” í Himalaya-fjöllum – leikur milli Bútan og Montserrat, tveggja neðstu ríkjanna á styrkleikalista FIFA. meira
Vanþakklátt starf
| June 24, 2010 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Hugleiðingar |
Kassadaman í Bónus, fólkið sem tæmir ruslatunnur bæjarins, leikskólakennararnir og þar fram eftir götunum. Þetta eru allt dæmi um störf sem fæstir vilja vinna en fólk tekur samt sem gefnum hlut að einhver annar sinni því en þeir sjálfir. Hlutverk dómarans í knattspyrnu og öðrum íþróttum er ekki ósvipað. Knattspyrnuáhugamenn líta á dómara sömu augum.… meira
Antic’s Antics
| June 23, 2010 | Posted by admin under HM 2010 |
Fyrirsögnin hefur svo sem ekkert með einhver skrípalæti Radomir Antic að gera, einfaldlega alltof freistandi leikur að orðum. Þrátt fyrir að vera með nokkuð spennandi lið í höndunum tókst Antic ekki að fylgja góðu gegni Serbanna í undankeppninni eftir og eru í þessum töluðu orðum væntanlega í anddyri hótels nokkurs í S-Afríku að bíða eftir… meira
Hafa bara karlar vit á fótbolta?
| June 23, 2010 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Kristín Ástgeirsdóttir, erkidoktor Jafnréttisstofu, segir stofunni hafa borist „ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður Afríku“. Hún telur „skjóta skökku við að ekki sé leitað til kvenna sem spila eða hafa spilað með fótboltaliðunu hérlendis sem erlendis og hafa reynslu og þekkingu á þessu sviði“. Hér… meira


Ný ummæli