Monthly Archives: May 2010

Franz Beckenbauer

Fágunin var slík að svo var um talað svo ekki sé nefnt sjálfstraustið. Franz Anton Beckenbauer, einn besti knattspyrnumaður allra tíma á skuldlaust réttinn á því að vera í hópi hetja sem hafa leikið á HM, stærsta sviði knattspyrnunnar. Við skulum renna aðeins yfir afrekalistann hjá Keisaranum. Mynd: HM 74 Þýskalandi – Fyrirliðinn heldur í… meira

Fótbolta Quiz Sammarans #26 – Spurningarnar

Fín stemmning á 26. Fótbolta Quiz-inu síðasta fimmtudag. Þemað var íslenskur fótbolti og sjaldan eða aldrei hefur meðalskorfið verið jafnhátt en öll liðin nema eitt voru með yfir 20 stig. Glæsileg verðlaun að vanda, kassar af bjór, metrar af bjór auk þess sem nokkur lið nældu sér í frían öl með því að svara bjórspurningunni… meira

Búllugetraunin

Búllugetraunin á sínum stað hér á Sammaranum og ekkert leiðinlegt að rölta í blíðunni niður á Geirsgötu og gæða sér á þykku og sveittu Tilboði Aldarinnar hjá Búllunni. Í þessari viku rifjum við upp einn vandræðalegasta landsleik Íslands fyrr og síðar. Nei því miður erum við ekki með myndband úr 14-2 tapinu gegn Dönum og… meira

Húmor í stúkunni

Nú fer HM alveg að bresta á okkur með sinni litadýrð og dramatík. Aðdáendur alls staðar úr heiminum munu ferðast til Suður-Afríku til að styðja sína þjóð til sigurs og í raun er HM í fótbolta hálfgerð karnival stemning og litadýrðin og hátíðin eru óviðjafnanleg. En það er alveg sama hversu litirnir eru fjölbreyttir, hversu… meira

David Ginola – Glæsimennið frá Gassin

Knattspyrnumaður, fyrirsæta, leikari, einfari, glansblöð, hvítar strendur og fagur makki. Upptalningin gæti haldið áfram ef einn ætti að finna orð til að lýsa David Ginola en við látum staðar numið. David Ginola gerði garðinn frægann hjá Paris Saint German, Newcastle og Tottenham Hotspurs og var óumdeilanlega á meðal þeirra bestu þegar hann var í stuði.… meira

HM2010 – Write the future

Nike og önnur stórfyrirtæki nýta sér viðburði eins og heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu til að búa til fáránlega dýrar og oft flottar auglýsingar. Því kemur ekki á óvart að fyrir mótið sem hefst innan skamms hefur Nike dregið allar stjörnunar sínar í eina djúsí auglýsingu. {youtube}idLG6jh23yE{/youtube}  meira

Blood doping

Íþróttamenn hafa í gegnum tíðina gengið ansi langt til að ná meiri árangri í sinni íþrótt. Fyrir ekki svo löngu, allavega í kosmísku samhengi, þá voru fótboltamenn kannski ekki í sem bestu formi (hugsið ca 100 ár aftur í tímann). Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar – menn æfa meira, passa mataræðið betur… meira

Totally shit from the start

Það er óhætt að segja að Frakkinn Yann Kermorgant hjá Leicester hafi skráð sig í sögubækur félagsins ‘for all the wrong reasons’ um daginn. Leicester mætti þá Cardiff í undanúrslitum umpsils B-deildar og eftir frækinn 3-2 útisigur í síðari viðureigninni þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þrjár fyrstu spyrnur beggja liða rötuðu í markið en þá… meira

Búllugetraunin

Nú þegar sumarið fer að nálgast er ekki úr vegi að koma sér í sundlaugabakkaform en þó mega menn ekki gleyma því að njóta augnabliksins. Það eru nefnilega tvö eldheit og kófsveit Tilboð Aldarinnar á Hamborgarabúllunni handan við hornið. Það eina sem þið þurfið að gera er að svara einni einfaldri spurningu sem eins og… meira

Íslenski boltinn byrjaður að rúlla

Áhugamenn um íslenska knattspyrnu eru nú loksins byrjaðir að smjatta á fréttum um íslenska boltann því lengsta undirbúningstímabli veraldar er loks lokið og boltinn byrjaður að rúlla í KSÍ deildunum. Umfjöllunin í ár hefur verið með óvenju miklu móti finnst mér og spenningurinn hjá aðdáendum liðanna eftir því. Við skulum aðeins kíkja hvað hefur verið… meira

Next Page »