Monthly Archives: April 2010

Arshavin – Ávallt reiðubúinn!

Þessar skemmtilegu myndir náðust af rússneska birninum Andrei Arshavin á æfingasvæði Arsenal hér um daginn. Arshavin er með þessu að auglýsa mikið “sleepover” á Emirates-vellinum sem fram fer 14. maí næstkomandi. Þar gefst 200 ungum og heppnum stuðningsmönnum Arsenal, á aldrinum 7 til 12 ára, tækifæri á að gista í tjöldum á grasinu á Emirates-vellinum,… meira

Góðir, slæmir og næstum því

Maður kemst varla hjá því að heyra mis-vitra sparkspekinga tjá sig um fótbolta. Leikmenn, taktík og peningamál eru hlutir sem allir fótboltaáhugamenn hafa skoðun á. En upp á síðkastið hef ég verið að heyra miklar vangaveltur um tilvonandi sigurvegara Úrvalsdeildarinnar. Pælingin er sú að sama hvort Chelsea eða Manchester Utd vinni deildina…þá verði þar á… meira

Varnarmourinho vinnur undanúrslit

Bæði leikmönnum Inter og Barcelona var fagnað sem hetjum í ítölsku og katalónsku blöðunum eftir 3-2 sigur þeirra fyrrnefndu yfir tvo undanúrslitaleiki Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Af lestri ítölsku blaðanna eftir leik mætti ætla að Mourinho hefði persónulega spilað allar stöður á vellinum enda varla minnst á nokkuð annað en snilld Portúgalans. Hér er það… meira

Eftirminnilegar HM stjörnur-seinni hluti

 Við skulum halda áfram að rifja upp eftirminnilegar HM stjörnur og nú er komið að seinni hlutanum í upprifjun minni. meira

Eftirminnilegar HM stjörnur-fyrri hluti

Heimsmeistarmótið í knattspyrnu er vettvangur bestu knattspyrnuþjóða heims þar sem keppt er um eftirsóttasta titil knattspyrnunnar. Þar af leiðandi mætti ætla að allar skærustu stjörnur boltans myndu skína óvenju skært. Það eru þó ekki alltaf stærstu stjörnurnar sem skína skærast . Marg oft höfum við séð minna þekkta leikmenn spila fótbolta lífs síns í nokkrar… meira

Búllugetraunin

Miðvikudagar eru Búlludagar á Sammaranum og ef það er eitthvað sem vinnuþjarkarnir af gamla skólanum eða unga kynslóðin í vorprófunum kann vel að meta er það sveitt Tilboð Aldarinnar hjá Ödda og Tomma á Búllunni, Geirsgötu. Síðasta getraun var í erfiðari kantinum sem sást á töluvert minni þátttöku enda um að gera að hafa svolítið… meira

Lið tímabilsins – Bekkurinn

Þá hafa leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar valið þá sem stóðu upp úr á tímabilinu. Rooney bestur, Milner besti ungi leikmaðurinn og auk þeirra; Hart, Ivanovic, Evra, Vermaelen, Dunne, Valencia, Fletcher, Fabregas og Drogba. En hverjir væru næstir inn? meira

Þjóðverjar með kímnigáfu

Löngu áður en Ashton Kutcher var byrjaður á Punk’d og félagarnir Auddi og Sveppi þorðu að vekja þungavigtarfólk á Íslandi upp um miðjar nætur voru sjónvarpsmenn í Þýskalandi að stríða stjörnunum þar í landi. Í eftirfarandi myndbandi, sem er setup frá A-Ö, situr Svisslendingurinn Ciriaco Sforza og leikmaður Bayern Munchen í sakleysi sínu í sófa… meira

Lukkudýr og önnur ólukkudýr

Heimsmeistarmótið í knattspyrnu er stærsti íþróttaviðburður í heimi. Ólympíuleikar hvað?. Heimsmeistaramótið er þó ekki bara fótboltamót, það er sýning, upplifun, heimsviðburður. Frá því 1966 hefur lukkudýrið verið fastur (og ómissandi?) hluti þess ævintýris sem við köllum HM. Hafa þau verið æði misjöfn og misgóð. Rifjum þau aðeins upp og byrjum á því versta. meira

Rákvöðvaleysing

Say what?!?! Já, rákvöðvaleysing eru verstu mögulegu harðsperrur sem þú gætir nokkurn tíma fengið. Rákvöðvaleysing er í rauninni nákvæmlega það sem orðið segir – rákvöðvi eru vöðvarnir sem við stjórnum sjálf, þ.e.a.s. eins og til að tala, ganga, hlaupa og fara í sjómann, og þegar þeir leysast upp er ekkert gott að frétta. Þetta fyrirbæri… meira

Next Page »