Monthly Archives: February 2010

Roberto Baggio

Roberto Baggio, þetta nafn þekkja allir. Hann var með mullettið í tagli sem fékk nafnbótina "Il Divin Codino" eða hið guðdómlega tagl og var á sínum tíma alls ekki ósvipaður hasarhetjunni Rambó. Unglingurinn, búddistinn og góðmennið sem reis upp til hæstu hæða í knattspyrnunni og einhver besta vítaskytta sem Ítalía hefur alið af sér (ef… meira

Endurtekning?

Í dag kl 15 leiðir N-Írinn Martin O’Neill lærisveina sína inn á Wembley þar sem þeir munu etja kappi við Englandsmeistara Man Utd. Man Utd eiga möguleika á því að vinna þrennu þ.e. deild, deildarbikar og meistaradeild og í viðtali um daginn rifjaði Ferguson upp að Villa hefði eyðilagt þrennuna fyrir Man Utd tímabilið ’93-94.… meira

HM búningar Nike

Hér sjást nokkrir þeirra búninga sem leikið verður í á HM í sumar. Nike hefur spunnið sína búninga úr endurunnum plastflöskum sem fengnar voru úr landfyllingum í Japan og Taiwan. Einhvern vegin held ég nú samt að þeir verði ekkert ódýrari úti í búð fyrir vikið. Búum til smá keppni úr þessu. Fyrir neðan myndina… meira

Fótbolta Quiz #19 – Spurningarnar

Keppendur á Fótbolta Quiz Sammarans létu snjókomu ekki stöðva sig og mættu galvaskir á Enska Barinn á fimmtudagskvöldið. Jón Ólafur og Stefán Ari Stefánssynir spurðu skemmtilegra spurninga sem fengu menn til þess að klóra sér í kollinum. Nýir sigurvegarar voru krýndir og fóru þeir heim með vænan farm af öli. Efstu sætin skipuðu: Aron Steinþórsson &… meira

10 metra há stytta af Ronaldo

Nýverið afhjúpaði KSÍ styttu af Alberti Guðmundssyni fyrir utan höfuðstöðvar sínar í Laugardal. Kærkominn minnisvarði um okkar fyrsta atvinnumann. Nýverið vöknuðu íbúar í Madrid á Spáni upp við vondan draum þegar þeir sáu að búið var að reisa 10 m háa og silvurlitaða styttu af Ronaldo hinum portúgalska. Ronaldo hefur aðeins verið í herbúðum liðsins í… meira

Háspenna – Lífshætta

Ég lofaði því hér í byrjun ársins að taka fyrir það versta sem komið hefur fyrir knattspyrnumenn, stjórana og að lokum áhangendur. Við vitum öll að það er ekki tekið út með sældinni, á stundum, að vera atvinnumaður í fótbolta. Stjórarnir fara heldur ekki varhluta af fylgikvillum knattspyrnunnar – magasár og hjartaáföll eru nánast daglegt… meira

Maradona, Pelé, Eusebio, Futre 10.

Sóknarmaðurinn Leon Best gekk í janúarglugganum til liðs við Chris Houghton og félaga í Newcastle frá Coventry. Eftir að til Newcastle var komið var Best boðið treyju #9 sem hafði verið ónotuð frá því að Obafemi Martins hélt til Wolfsborgar síðasta sumar. Best afþakkaði númerið hins vegar pent – sagði hann enn ekki hafa unnið… meira

Margur sér arðránið í auga náungans

Evrópskir knattspyrnuunnendur sem ekki kaupa miða á Heimsmeistaramótið í Suður-Afríku eru engu betri en nýlenduherrar síðustu aldar. Þetta segir Sepp Blatter, leiðtogi hins frjálsa knattspyrnuheims, sem er bersýnilega hneykslaður á framferði samálfa sinna. Ekki myndi Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) nokkru sinni detta þvílík vanvirðing í hug. meira

Ódýrt spjald…

Í hinum stórskemmtilega leik Man City og Liverpool, um síðustu helgi, kom upp atvik þegar Fernando Torres fékk gult spjald fyrir afar litlar sakir. Auðvitað koma svona atvik oft upp í fótboltaleikjum og geta örugglega allir bent á svona atvik. En af öllum þeim spjöldum sem ég hef séð fara á loft fyrir engar sakir,… meira

Einstakt spjald

Ég hjó eftir því í leik Manchester City og Liverpool (maður man þó eitthvað úr þeim leik) að Fernando Torres fékk ákaflega ódýrt spjald fyrir smávægilegt axlarnudd. Hafa mætir menn kallað þetta spjald "Eitt ódýrasta spjald sem ég man eftir". Ekki aldeilis….hér má sjá áðurnefndan Torres næla sér í 2 gul spjöld á sömu mínútunni.… meira

Next Page »