Monthly Archives: January 2010
Thomas Brolin
| January 31, 2010 | Posted by admin under Þessir fótboltamenn... |
Fáir leikmenn hafa átt jafnviðburðaríkan feril og káti Svíinn frá Hudiksvall. Thomas Brolin, hetja Svía á EM 92 og HM 94, hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina, við skulum athuga hvað sagan hefur að segja um meistarann. meira
Valkostir í dómgæslu
| January 31, 2010 | Posted by admin under Léttmeti |
Það líður varla sú vika sem ekki er minnst á dómgæslu, eða öllu heldur þau tól sem dómarar hafa sér til aðstoðar. En hver segir að þau hjálpartól sem eru til staðar í dag séu heilög og endilega þau bestu sem völ er á? Hér eru nokkrar hugmyndir að öðrum valkostum… meira
Einkalíf fótboltamanna
| January 30, 2010 | Posted by admin under Myndbönd |
Sir David Attenborough hefur rannsakað hinar ýmsu dýrategundir. Nú hefur hann tekist á við sitt stærsta verkefni hingað til: að greina fótboltamanninn eða homo no sapien balompieus. {youtube}wTXx-EBIeoc{/youtube} meira
Fótbolta Quiz Sammarans #15 – Spurningarnar
| January 29, 2010 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Það voru sigurreifir sparkspekingar sem létu sjá sig á English Pub á fimmtudagskvöldið eftir frækinn sigur Íslendinga á Norðmönnum í handboltanum. Er undirritaður ekki frá því að gestir hafi verið sérstaklega vel stemmdir enda voru mörg lið að skora mjög vel þrátt fyrir erfiðar en skemmtilegar spurningar. Þeir Kjartan Kjartansson og Rafn Haraldur Rafnsson léttu… meira
Verst 2009 II
| January 28, 2010 | Posted by admin under Doktorinn |
Annálar, the never ending story! Síðast kíktum við aðeins á slæm meiðsli leikmanna árið 20009. Í dag ætla ég aðeins að kíkja á eldri menn, nefnilega stjórana. Tveir stjórar þurftu að vera frá í nokkurn tíma síðasta tímabil vegna hjartavandamála. Þetta voru þeir Joe Kinnear og Sam Allardyce. Kíkjum aðeins á þá félaga. meira
Með apaskít á tánum
| January 28, 2010 | Posted by admin under Enski boltinn |
Á árunum og mánuðum fyrir íslenska bankahrunið var sú regla höfð í hávegum að enginn mátti, hvað sem á dundi, benda á að keisarinn var eins kviknakinn og fastagestur í nektarnýlendu. Hver sem hafði uppi einhver efasemdarorð var umsvifalaust fordæmdur sem vitleysingur, öfundsjúkur eða útlendingur með annarlegar hvatir ef ekki allt þetta. Stefnan var einfaldlega… meira
Mats Magnusson hefur engu gleymt
| January 28, 2010 | Posted by admin under Myndbönd |
Svíinn Mats Magnusson gerði garðinn frægan hjá Benfica fyrir um 20 árum síðan. Hann var mættur ásamt nokkrum aukakílóum og öðrum kempum í ágóðaleik vegna Haiti hamfaranna sem var skipulagður af Zidane. Þar mættust úrvalslið Zidane og úrvalslið Benfica. Mats Magnusson var fagnað gríðarlega þegar leynivopnið skokkaði inná völlinn í stað landa síns Stefan Schwarz þegar rúmar… meira
Eiður Smári Gudjohnsen
| January 26, 2010 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Nú virðist það loksins hafa gerst það sem flestir knattspyrnuáhugamenn á Íslandi vonuðust eftir. Eiður ‘okkar’ Smári Guðjohnsen er kominn aftur í enska boltann þar sem hann mun spila með "Íslandsvinunum" í West Ham. Á Eiður Smári að hafa gengist undir læknisskoðun hjá liðinu og á aðeins eftir að semja um kaup og kjör. Sögusagnir… meira
Hverjir verða leikmenn ársins?
| January 26, 2010 | Posted by admin under Enski boltinn |
Þó ótrúlegt megi virðast styttist í að leikmaður ársins á Englandi verði valinn. Ryan Giggs varð þess heiðurs aðnjótandi síðastliðið tímabil eftir að leiðilegi Ronaldo hafði unnið 2007 og 2008. En hverjir ætli séu heitastir í dag? Hér eru mínar tillögur, endilega segið ykkar skoðun. Leikmaður ársins: Wayne Rooney, Cesc Fabregas, Didier Drogba, Shay Given,… meira
Enzo Scifo
| January 24, 2010 | Posted by admin under Þessir fótboltamenn... |
22. mínúta í leik Belgíu og Úrúgvæ á HM 90. Belgarnir leika boltanum á milli sín og virðast fullir öryggis enda hefur Clijsters komið þeim yfir. Scifo fær boltann frá fyrirliðanum Ceulemans og sendir hann á Van Der Elst sem leikur honum á vinstri kantinn til Versavel. Van Der Elst fær hann aftur og er… meira


Ný ummæli