Monthly Archives: October 2009
Laugardagsgetraun 31. október 2009
| October 30, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Já, það er næstum kominn nóvember góðir hálsar og laugardagsgetraunin á sínum stað. Í þetta skiptið eru spurningarnar úr öllum áttum og ættu að vera flestum fótboltaunnendum svaranlegar. Öllum er frjálst að svara út helgina eins og venjulega, bara sleppa því að skoða svör annarra eða nota hjálpartæki ástarlífsins, wikipedia, google og þar fram eftir… meira
Að breyta sögunni
| October 29, 2009 | Posted by admin under Léttmeti |
Þar sem í dag er föstudagur þá er um að gera að hafa þetta aðeins á léttu nótunum. Football365 spurði nýlega lesendur sínar hvernig þeir myndu nýta sér ef þeir gætu bætt við þremur mörkum við einhverja leiki hvort sem er fyrir félagslið eða landslið sem þeir styðja. Þetta gæti verið sigurmark á lokamínútum leiks,… meira
“Ró og tími”
| October 29, 2009 | Posted by Kjartan under Spænski boltinn |
Florentino Pérez, forseti Real Madrid, hefur farið fram á "ró og tíma" fyrir liðið eftir 4-0 niðurlægingu gegn þriðjudeildarliðinu Alcorcón í vikunni. Leikurinn var sá fyrri af tveimur í 32-liða úrslitum í Konungsbikarnum og stillti Manuel Pellegrini þjálfari upp liði sem innihélt leikmenn eins og Arbeloa, Guti, van der Vaart, Raúl og Benzema. Að biðja… meira
Barnsley vs Man Utd
| October 27, 2009 | Posted by admin under Gamalt og gott |
Í kvöld hefjast 16 liða úrslitin í enska deildarbikarnum og einn áhugaverðasti leikurinn fer fram á Oakwell í Barnsley þar sem heimamenn með Emil Hallfreðsson í byrjunarliðinu mæta stórstjörnunum í Man Utd. Þetta er flottur tími fyrir Emil og félaga að reyna sig gegn Utd sem hafa verið allt annað en sannfærandi á tímabilinu. Barnsley… meira
Stórglæsilegur nýr völlur Tottenham
| October 27, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Nú hafa forsvarsmenn Tottenham Hotspur lagt inn formlega beiðni til skipulagsyfirvalda um byggingu nýs og stórglæsilegs vallar í stað White Hart Lane. Völlurinn mun taka 56.000 manns í sæti (í stað 36.000 núna), en einnig verður byggt hótel við völlinn, íbúðir, verslanir og stærðarinnar torg þar sem fólk getur hitað upp fyrir leiki. Þessi nýja… meira
Að fagna mörkum
| October 25, 2009 | Posted by admin under Léttmeti |
Þar sem ég sat og horfði á 10 Liverpool menn fagna marki Davíðs Ngog líkt og 3. deildarlið hefði slegið út úrvalsdeildarlið í bikarnum (United maður? Já) fór ég að velta fyrir mér þeim skemmtilega hluta knattspyrnuleiksins, þegar menn fagna mörkum. Þrátt fyrir að Diego Forlan hafi gefið FIFA afsökun fyrir að banna mönnum að… meira
Cardiff City
| October 25, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Þrátt fyrir að mörg gömul stórveldi séu í neðri deildum Englands virðist stefna í að smálið frá Wales komi hvað mest á óvart og stefni rakleiðis á úrvalsdeildina. Eftir svakalegan 4-3 útisigur á Sheffield United í gær situr Cardiff City í öðru sæti Championship deildarinnar og margir tala um að nú sé þeirra ár runnið upp. Í… meira
Laugardagsgetraun 24. október 2009
| October 23, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Höfundur spurninga þennan laugardaginn er tölfræðisérfræðingur og grúskari Sammarans Óttar Völundarson a.k.a. Miðjan. Spurningarnar snúa flestar að enska boltanum en þó má finna aðra gullmola inn á milli. Allir mega svara þar til helgin er úti og gildir engu þótt aðrir séu búnir að svara. Einfaldlega sleppa því að skoða svör annarra, google, wiki o.s.frv. Hins… meira
9 mínútur, 9 mörk
| October 22, 2009 | Posted by admin under Léttmeti |
Það er lokaumferð í annarri deild í Maranhao fylkjakeppninni í Brasilíu. Tvö lið, Moto Club og Viana, eru efst og jöfn á stigum fyrir umferðina og eiga að keppa á sama tíma. Ekkert óeðlilegt gerist þangað til 35 mínútur eru eftir af leikjunum. Á þeim tímapunkti er Viana að vinna sinn leik 2-0 en fréttir… meira
Tvöfaldur Sjílebúi
| October 21, 2009 | Posted by admin under Myndbönd |
Eitt besta og frumlegast mark tímabilsins leit dagsins ljós á dögunum. Það var þó ekki leikmaður í stóru deildunum í Evrópu eins og Englandi, Spáni eða Ítalíu sem átti heiðurinn af því. Markaskorarinn var leikmaður brasilíska C-deildarliðsins Río Branco FC. Engum sögum fer þó af nafni frumkvöðulsins. Hér má sjá markið í allri sinni dýrð:… meira


Ný ummæli