Monthly Archives: September 2009

Veski Arsene Wenger

Nú er uppi snúin staða hjá þeim sem eru að reyna að átta sig á Arsene Wenger. Á sama tíma í fyrra virtist staðan vera sú að Arsenal átti ekki krónu með gati vegna byggingar Emirates vallarins og því var varfærni stjórans á leikmannamarkaðnum sýndur skilningur. Arsenal bara varð að selja leikmenn á móti þeim… meira

Hver tók í burtu öll jafnteflin? Essassú?

Undarlegir hlutir hafa átt sér stað það sem af er tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Einungis fjórir leikir hafa lyktað með jafntefli af þeim 66 sem búnir eru. Eftir að leikir síðustu helgar fóru allir á þann veg að annað liðið stóð uppi sem sigurvegari, hafa menn nú farið að velta vöngum yfir ástæðum þess hvers vegna… meira

Tígrisdýrin hans Phil Brown

Það komu fá lið jafnmikið á óvart á síðastliðnu tímabili og nýliðarnir í Hull. Að loknum úrslitaleiknum á Wembley um laust sæti í úrvalsdeildinni, þar sem ellismellurinn Dean Windass skoraði sigurmarkið, höfðu þeir sett enskt met. Ekkert annað lið hafði farið upp um 3 deildir á jafn skömmum tíma. Í fyrra voru Hull að spila… meira

FIFA 10

Eftir 51 viku bið er aðeins vika í að FIFA 10 rati í hillurnar. Eftir harða baráttu við Pro Evolution Soccer um veski og spilatíma almennings (lesist sem stráka frá 10 – 30 ára) hefur hin nýja kynslóð leikjatölva skotið FIFA leikjunum á ógnarhraða inn í framtíðina og hafa síðustu tveir leikir vakið mikla hrifningu.… meira

Laugardagsgetraun 26. september

Gestaspyrill Sammarans í þetta skiptið er Sighvatur Arnmundsson og er þemað Ítalía. Virkilega skemmtilegar spurningar og ég hvet lesendur til að hvíla sig á enska boltanum og spreyta sig á ítalska boltanum. Frábær þátttaka var um síðustu helgi þegar Kristján, Teddi, Hjörvar og Napoleon deildu sigrinum með 15/15. Svo styttist óðum í næsta Pub Quiz… meira

Jens Lehmann

Nú er ekki langt að bíða þess að Jens Lehmann verði fertugur. Jens-inn er enn í fullu fjöri og komst síðast í fréttirnar um síðustu helgi þegar hann sást í leyfisleysi á Oktoberfest í Munchen. Það gerðist aðeins nokkrum klukkustundum eftir tapleik Stuttgart gegn Köln þar sem Lehmann var eins og svo oft áður í… meira

Afhjúpun afhjúpuð

Benjamin Disraeli, einn forsætisráðherra Breta á 19. öld, á að hafa sagt: "Það eru til þrenns konar lygar: lygar, bölvaðar lygar og tölfræði". Hann er þó langt því frá eini Bretinn sem hefur látið tölfræði þvælast fyrir sér. Breska dagblaðið The Guardian birti þriðjudaginn sl. frétt þar sem e.k. samsæri um uppbótartíma á Old Trafford… meira

FA Cup Classics

Hér heldur kannski einhver að ég ætli að rifja upp markið hjá Steven Gerrard gegn West Ham, markið hjá Roberto Di Matteo gegn Middlesboro eða ótrúlegan sigur vitleysinganna í Wimbledon gegn stórliði Liverpool. Ekki beint en við komum samt aðeins inn á þennan ágæta leik Wimbledon og Liverpool í tengslum við myndbandið hér að neðan.… meira

Bellamy, geðveikin og fortíðin

Blaðamaður: “Hvaða titil myndirðu vilja að ævisaga þín bæri?” “Don’t Google me!” lagði Walesverjinn til. Svarið hittir í raun beint í mark. Bellamy komst enn og aftur í fréttirnar nú um helgina þegar hann skoraði tvö frábær mörk í Manchester-slagnum svakalega, en sá til þess að fyrirsagnirnar um hann yrðu allt aðrar með því að… meira

Super Dino

„Ég trúi mikið á skynsamlega hegðun, af virðingu við andstæðinginn. Ýktar bendingar, fæddar af gremju og gleði, er ekki það sem ég vill. Ég reyni alltaf að hugsa um hvernig mótherja mínum líði þegar ég vinn" Sem var mjög oft. Við skulum bregða okkur á milli stanganna og sjá hvað sagan hefur að segja um… meira

Next Page »