Monthly Archives: August 2009
Martraðarmeiðsli
| August 31, 2009 | Posted by admin under Annað |
Það er skammt stórra högga á milli í fótboltaheiminum. Einn daginn fordæmum við fótboltamenn fyrir leikaraskap og fyrir að reyna að svindla á dómurum, í aumri tilraun sinni til að kallast árangursríkir knattspyrnumenn. Í dag er manni heldur betur flökurt vegna vægast sagt óvægnar árásar sem átti sér stað í leik Anderlecht og Standard Liege… meira
Til hvers?
| August 30, 2009 | Posted by admin under Evrópuboltinn |
Föstudagskvöldið síðastliðið fór fram hinn árlegi Super Cup úrslitaleikur. Þar mættust sigurvegarar Meistaradeildar og UEFA bikarsins í leik þar sem úr því fæst skorið hverjir eru LANG-bestir í Evrópu, eða eitthvað í þá áttina. Einhverra hluta vegna virðist áhugi fólks á þessum árlega leik vera frekar lítill og reikna ég með því að fæstir þeirra… meira
Er boltinn leiðinlegri í ár?
| August 30, 2009 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Skemmtanagildi fótboltans fer fer oft eftir því hversu spennandi keppnirnar eru. Í ár þykir mér þó því miður sem margt bendi til þess að spennan verði frekar lítil á flestum vígstöðvum og gæðin í einhverjum tilvikum ekki eins mikil. meira
Laugardagsgetraun 29. ágúst – Belgía
| August 29, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Sigurvegari síðustu getraunar var Hafsteinn Viðar með fullt hús stiga, 15/15. Þema getraunar þessarar viku er allt sem við kemur belgískum fótbolta. Ég minni á að öllum er frjálst að svara spurningunum út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Hér er sem fyrr treyst á heiðarleika þátttakenda í því að… meira
Er leyniskytta meðal vor?
| August 27, 2009 | Posted by admin under Þessir fótboltamenn... |
Dýfingar eru íþrótt sem átt hefur undir högg að sækja í sundsölum heimsbyggðarinnar. Bretar hafa þó tekið heldur betur við sér í þeirri grein og skipa nú á dögum einum efnilegasta dýfingarmanni heims. Ekki undrast maður þó yfir því að stórþjóðir taki kipp í íþróttagreinum sem ekki þykja sérstaklega áhorfendavænar þegar styttist í að þjóðin haldi… meira
Martraðarsumar AC Milan
| August 26, 2009 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Flautað var til leiks í Serie A á Ítalíu um síðustu helgi. Milan-menn fóru vel af stað með 2-1 sigri í Siena þar sem Brassinn Pato skoraði bæði. Sumarið hjá Milan-mönnum var þó líkast því sem einna helst mætti kalla martröð – stórstjörnur seldar, mótmælandi stuðningsmenn og ömurleg úrslit í leikjum. Stuðningsmenn fóru fram á… meira
Alvöru slagsmál
| August 25, 2009 | Posted by admin under Myndbönd |
Gleymið veseninu á milli Rodallega og Vidic um helgina – þetta eru alvöru stimpingar! Reyndar vill þjálfari Afríku kenna dómaranum um atvikið en ég er ekki alveg viss. Þetta atvik átti sér stað á sunnudagskvöldið í leik Blooming og Oriente Petrolero í Bólivíu. {youtube}YRlCcn6QZQI{/youtube} meira
Safe Hands
| August 23, 2009 | Posted by admin under Þessir fótboltamenn... |
„Séntilmaður fram í fingurgóma, þetta er rútíneraður maður með fínar staðsetningar og er öruggur. Mikið snyrtimenni, alltaf flottur og kurteis, en samt alveg klassamarkmaður” segir Helgi Daníelsson fyrrum landsliðsmarkvörður og leikmaður Vals & ÍA í bókinni Arsenal – Bókin um okkur – Stuðningsmenn Arsenal Við skulum bregða okkur milli stanganna og skoða manninn sem er… meira
Ágætt lag Burnley
| August 23, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Burnley vakti heldur betur athygli í liðinni viku þegar Robbie Blake tryggði þeim glæsilegan og bara nokkuð verðskuldaðan heimasigur gegn Mansteftir United. Fáir þekkja þetta lið af nokkru öðru en nafninu, en mig langaði að birta hér ágætt stuðningslag þeirra með myndbandi sem m.a. sýnir okkur Turf Moor aðeins betur. {youtube}XgPNIzyeOxs{/youtube} meira
Laugardagsgetraun 22.ágúst
| August 21, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Sigurvegari síðustu getraunar var Hafsteinn Viðar með 12/15. Ég minni á að öllum er frjálst að svara spurningunum út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Hér er sem fyrr treyst á heiðarleika þátttakenda í því að sleppa því að skoða svör annarra eða google þangað til þeir hafa skilað sínu… meira


Ný ummæli