Góð stemmning var á fyrsta Pub Quiz Sammarans á English Pub í gærkvöldi. Um 20 lið mættu til leiks með 2 heila að vopni og glímdu við fjölbreytilegar spurningar. Sindri Sindrason frá Stöð 2 leit einnig við ásamt myndatökumanni og verða svipmyndir og viðtöl frá keppninni væntanlega sýnd í Íslandi í dag í kvöld, þriðjudag. Vegna fjölda áskoranna birtum við hér að neðan spurningarnar úr keppninni í gær svo að þeir sem komust ekki geta spreytt sig og hitað upp fyrir næstu keppni. Við reiknum með að hafa keppnirnar á mánaðafresti enda greinilegt að mikill áhugi er fyrir hitting af þessu tagi.
Sigurvegarar í keppninni voru þeir Ari Erlingsson og Stefán Örn Einarsson með 28 af 30 spurningum réttar. Hafsteinn V. Hafsteinsson og Ingvi Þór Sæmundsson voru í öðru sæti (27 réttir) og Kjartan Kjartansson og Rafn Haraldur Rafnsson í því þriðja (26 réttir). Þökkum öllum þeim sem mættu í gær kærlega fyrir komuna! Vonumst til að sjá ykkur aftur og fleiri til í júlí.
Svörin eru í ummælakerfinu
1. Íslendingar og Hollendingar öttu kappi á Laugardalsvelli um helgina. Hollenska landsliðið er af mörgum talið besta landslið sem hefur ekki orðið heimsmeistari. Hollendingar hafa þó einu sinni orðið Evrópumeistarar. Hvaða ár var það?
2. Höldum til Frakklands, þar sem Lyon-mönnum mistókst í síðasta mánuði að verja Frakklandsmeistaratitilinn eftir að hafa unnið hann sjö síðastliðin ár. Eftir ótrúlegan endasprett tryggði Bordeaux sér titilinn í fyrsta sinnfrá árinu 1999. Spurt er - Hvaða maður, sem var í heimsmeistaraliði Frakka ’98 og Evrópumeistaraliðinu 2000 og spilaði meðal annars með Inter og Manchester United, stýrði Bordeaux að þessum titli?
3. Einn epískasti “sigur” íslenska landsliðsins á útivelli var þegar við gerðum 1-1 jafntefli við Úkraínumenn í Kænugarði í undankeppni EM 2000. Hver skoraði mark Íslendinga í leiknum?
4. Nú þegar sex umferðir eru búnar í Pepsideild karla hafa Stjörnumenn þurft að notast við fleiri markmenn en almennt gengur og gerist. Við spyrjum, hversu margir hafa staðið á milli stanganna hjá Garðbæingum það sem af er móti?
5. Wayne Rooney spilaði sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu með Manchester United á haustdögum 2004. Í leiknum skoraði hann eftirminnilega þrennu, en menn þurftu að bíða mun lengur eftir fjórða marki hans í Meistaradeildinni. En gegn hvaða tyrkneska liði, sem Christoph Daum er nýtekinn við, skoraði Rooney þessa þrennu?
6. Southampton féll niður í C-deild á nýafstöðnutímabili. Árið 2001 byrjuðu þeir að spila heimaleiki sína á St. Mary’s og yfirgáfu þá fornfrægan heimavöll sinn til margra ára – sannkallaða ljónagryfju. Þar sem völlurinn var áður standa nú íbúðarblokkir, en viðspyrjum hvað hét þessi völlur?
7. Nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Wolfsburg er um margt merkilegur klúbbur. Hann kemur frá einni yngstu borg álfunnar en árið 1938 fyrirskipaði Adolf Hitler að borgin skyldi byggð til að hýsa verkamenn ákveðins þýsks stórfyrirtækis. Fótboltaklúbburinn Wolfsburg er í 100% eigu þessa fyrirtækis. Hvaða fyrirtæki um ræðir?
8. Á tíunda áratug síðasta aldar spilaði hollenska þríeykið Ruud Gullit, Marco van Basten og Frank Rijkaard saman hjástórliði AC Milan. Um svipað leyti var annað merkt þríeyki að spila með hinu liðinu í Milano-borg og þá erum við ekki að tala um Versace, Gucci og Louis Vuitton. Við erum að spyrja um “þýska þríeykið” hjá Inter Milan. Hvaða Þjóðverjar voru þetta?
9. Mikið hefur verið um stjóraskipti hjá bikarmeisturum Chelsea síðustu árin. José Mourinho kom eins og stormsveipur inn í enska boltann árið 2004, en við spyrjum: Hver hafði stýrt liðinu á undan “the special one”?
10. Fyrir fáeinum mánuðum tók nýr maður við stöðuvaraformanns KSÍ. Þessi maður er einnig sviðsstjóri hjá BændasamtökumÍslands og er vel þekktur innan fótboltahreyfingarinnar. Hver er maðurinn?
11. Tvær hárprúðar stórstjörnur lögðu skóna á hilluna í lok tímabils áÍtalíu í síðasta mánuði. Annar spilaði með liði AC Milan en hinn sem við erum að leita að með liði Juventus. Hvaða snillingar eru þetta?
12. Gary og Phil Neville hafa saman spilað um 150landsleiki fyrir Englands hönd. Í gegnum árin hefur mikið grín verið gertað þeim systrum og hefur nafn föður þeirra ekki beint hjálpað. Hvað heitir karl faðir þeirra fullu nafni? Athugið, spyrjum við um FULLT nafn.
13. Íslenskar knattspyrnukonur hófu innreið sína ísænska boltann fyrir alvöru fyrir þetta tímabil. Dóra Stefánsdóttir hefurþó verið lengur í Svíþjóð en flestar hinar og skrifaði undir hjá sænskuliði snemma árs 2006. Með hvaða liði spilar Dóra?
14. Íslenska landsliðið gerði markalaust jafntefli viðÍtali í vináttulandsleik á Ítalíu á vordögum 2005. Þar lék einn Íslendinganna sinn fyrsta landsleik þegar honum var skipt inn á í síðari hálfleik. Hann staldraði þó stutt við inni á vellinum – heilar þrjármínútur – þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir það sem einnahelst mætti líkja við tilraun til manndráps. Hvaða islenski leikmaður var þetta?
15. Chelsea og Everton áttust við í úrslitaleik FA-bikarsins í lok síðastamánaðar. Everton-maður skoraði fyrsta mark leiksins eftir 25 sekúndur ogbætti þar með met Roberto di Matteo yfir fljótasta markið í úrslitaleik FA-bikarsins. Þó fór svo að lokum að Chelsea lyfti bikarnum eftir 2-1sigur. Við spyrjum, hverjir skoruðu mörkin þrjú í leiknum?
16. Juventus komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu þrjúár í röð – árin 1996, 1997 og 1998. Liðið tapaði tveimur þessara úrslitaleikja gegn Real Madrid og Borussia Dortmund en sigraði einn. Hvaða lið lögðu þeir að velli í þessum eina sigurleik?
17. Birmingham City keypti nýverið Christian Benitezfrá mexíkóska liðinu Santos Laguna fyrir heilar 9 milljónir punda. Benitez varð þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Birmingham. Við spyrjum, frá hvaða landi í Suður-Ameríku er þessi leikmaður?
18. Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær um fimm breytingar á landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Makedóníu ámiðvikudaginn. Þrjár þessara breytinga komu til vegna leikbanna sem leikmenn fengu fyrir að líta gul spjöld um nýliðna helgi. Hvaða þrír leikmenn íslenska landsliðsins fóru í bann eftir Hollandsleikinn?
19. BJÓRSPURNINGIN. EM fór fram í Svíþjóð árið 1992 þar sem Danir komu öllum á óvart og báru sigur úr býtum eftir sigur á Þjóðverjum í úrslitaleik. Á þessum tíma voru einugis átta lið í mótinu og voru allir leikirnir spilaðir í fjórum borgum. Hvaða fjórar borgir eru þetta?
20. Roy Hodgson náði frábærum árangri með Fulham á nýafstöðnu tímabili. Kappinn hefur komið víða við á sínum þjálfaraferli og meðal annars stýrt öðru ensku úrvalsdeildarliði fyrir rúmum áratug. Hvaða úrvalsdeildarlið var það?
21. Spurt er um leikmann. Leikmaðurinn sem um ræðir spilaði meðal annars yfir 300 leiki fyrir Arsenal, yfir 100 leiki fyrir Aston Villa, 21 landsleik fyrir Englands hönd og komst í fréttirnar á haustdögum 1994 þegar hann tilkynnti að hann ætti við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða. Hann lagði skónna á hilluna árið 2006. Hver er leikmaðurinn?
22. “Ladies and Gentlemen. England will play Four-Four-Fucking-Two,” er fræg lína úr stórmyndinni Mike Bassett: England Manager og er að öðrum kvikmyndum ólöstuðum besta mynd allra tíma. Í myndinni leitar Bassett ánáðir svissnesks vísindamanns til að bæta leik sinna manna. Dr. Hans Shoegarten býður Bassett að senda ensku landsliðsmennina í sérstakan hermi sem lætur þá leika eftir hreyfingar þriggja valinkunnra fótboltamanna. Bassett líst vel á apparatið þegar hann sér að tveir leikmannanna sem umræðir eru Maradona og Pele, en settur stórt spurningamerki við þann þriðja. Aðspurður segir Dr Shoegarten að fjármagnið hafi klárast. Hvaða minni spámaður og fyrrum leikmaður Liverpool var þetta?
23. Lesendur Sammarans kannast eflaust við senegalska knattspyrnumanninn Ali Dia sem sést iðulega á listum yfir verstu leikmenn í sögu enskrarknattspyrnu. Graeme Souness fékk vin okkar Dia til liðs við Southampton árið 1996 eftir að hafa fengið símtal frá einum besta leikmanni heims á þessum tíma. Leikmaðurinn sagði Souness frá frænda sínum Dia sem hafði meðal annars leikið fyrir PSG og átti 13 landsleiki að baki. Souness, sem hafði aldrei séð Dia sparka í knött, ákvað að setja hann inn á fyrir meiddan Matt LeTissier á 32. mínútu í leik gegn Leeds, en skipti honum aftur út af á þeirri 53. eftir vægast sagt dapra frammistöðu. Lauk þar með ferli Dia í treyju Southampton. Síðar kom í ljós að sá sem Souness taldi sig hafa rætt við í síma var í raun vafasamur umboðsmaður Dia, en ekki þessi leikmaður sem hann kynnti sig sem. Hver átti að hafa hringt í Souness?
24. Tvö lið eru efst og jöfn eftir fimm umferðir í íslensku 1. deildinni,þ.e. næstefstu deild. Liðin hafa bæði unnið fjóra leiki og gert eittjafntefli. Annað liðið er héðan af höfuðborgarsvæðinu, en hitt af Suðurlandi.Hvaða tvö lið eru þetta?
25. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar á EM í Englandi 1996. Þeir mættu þeirTékkum, spútnik-liði mótsins, í úrslitaleik á Wembley þar sem úrslitinréðust með svokölluðu gullmarki í framlengingu. Hvaða leikmaður, sem kominn á sem varamaður í leiknum, skoraði bæði mörk Þjóðverja og þar meðtalið gullmarkið?
26. Þessi er stutt. Frá hvaða landi er markmaðurinn litríki Brjús Grobbelaar?
27. Hvaða leikmaður hefur unnið Meistaradeild Evrópu með þremur mismunandi liðum?
28. Næst ætlum við að spyrja um ártal. Rauða Stjarnan sigraði Marseille í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða. Lothar Matthäus var valinn besti leikmaðurársins hjá FIFA, en þetta var í fyrsta sinn sem sú viðurkenning var veitt.Federico Macheda fæddist þetta ár. Víkingur varð Íslandsmeistari ogÍslendingar unnu Spánverja 2-0 á Laugardalsvelli. Hvaða ár gerist þetta?
29. Við spyrjum annars vegar um elsta og hins vegar yngsta markaskoraranní lokakeppni HM. Sá elsti var frá Afríkuríki en sá yngstiSuður-Ameríkumaður. Hverjir eru þessir leikmenn?
30. Írar hafa oft á tíðum haft á að skipa öflugu og skemmtilegu landsliðiog komið á óvart á stórmótum. Þeir eiga góða möguleika að komast á HM í Suður-Afríku og eru svo til öruggir með annað sætið í riðlinum en eiga í baráttu við Ítali um það efsta. Spurt er, hver er landsliðsþjálfari Íra?
SVÖRIN DETTA INN í FYRRAMÁLIÐ…
Hvar eru svörin?