Monthly Archives: May 2009
Laugardagsgetraun 30. maí
| May 29, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Þá er komið að laugardagsgetrauninni en að þessu sinni er Meistaradeildarþema. Sigurvegarar síðustu getraunar voru Geiri og Torricelli. Ég minni á að öllum er frjálst að svara út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Hér er treyst á heiðarleika þátttakenda í því að sleppa því að skoða svör annarra eða google þangað… meira
Hressileg tækling í byrjun leiks!
| May 29, 2009 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Elliði og Kumho Rovers mættust í fyrstu umferð VISA bikarsins um daginn. Þessi tækling leit dagsins ljós á 10. mínútu og uppskar Egill Skúli rautt spjald fyrir. Hvað segið þið? Er þetta nokkuð rautt? meira
Íslendingar í Stoke
| May 29, 2009 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Sú var tíð að Stoke var meðal heitustu liða hér á landi. Breytti þar engu um þó að liðið léki í neðri deildum enskrar knattspyrnu heldur var það íslensk eignarhald og fjöldi íslenskra leikmanna þar á bæ sem vakti áhuga landans á liðinu. Stoke ævintýrið endaði kannski ekkert sérstaklega vel. Íslensku útrásarvíkingarnar höfðu ekki fjárhagslegt… meira
El resultado
| May 28, 2009 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Barcelona urðu í gær Evrópumeistarar meistaraliða í þriðja skipti í sögu félagsins með sannfærandi 2-0 sigri á andlausu Manchester United liði. Fyrirfram hafði verið búist við að United væri líklegri aðilinn í leiknum en þegar að því kom sýndu Barcelona-menn hvers vegna þeir hafa sett markamet á leið sinni að spænsku þrennunni í ár, fyrst… meira
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar: Drykkjuleikur!
| May 26, 2009 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Í dag fer fram einn af leikjum tímabilsins þegar Barcelona og Manchester United mætast á Stadio Olimpico í Róm. Þessi lið hafa verið sigursæl á undanförnum árum en Barcelona vann meistarakeppnina 2006, og Manchester United er, eins og alþjóð veit, ríkjandi Evrópumeistarar. Fyrir þá sem vilja auka aðeins við spennuna sem fylgir úrslitaleik Meistaradeildarinnar er hér… meira
La Final
| May 26, 2009 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Spennan er gríðarleg á úrslitaleiksdegi Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Börsungar frá Katalóníu mæta Rauðu djöflunum frá Manchester og er vettvangurinn Ólympíuleikvangurinn í Róm. Gríðarlega mikið hefur verið fjallað um leik liðanna sem margir sjá sem einvígi tveggja bestu knattspyrnumanna heims, Cristiano Ronaldos og Lionel Messi. Draumóramenn reikna með markaveislu en það er erfitt að sjá… meira
Að styðja sitt lið
| May 26, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Það er ekki allt í himnalagi í ensku úrvalsdeildinni. Mér finnst of mikið af leiðinlegum liðum í henni og önnur vantar upp. Stuðningurinn er misgóður og stundum á röngum forsendum. Ég ætla aðeins að fá að láta gamminn geysa og lista upp helstu aðfinnslur. meira
Tímabilið 2008/09 gert upp
| May 25, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Nú þegar síðustu leikir ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili hafa verið spilaðir er ekki úr vegi að útnefna hina og þessa hitt og þetta. Níu Sammaraskríbentar fengu það hlutverk að tilnefna leikmenn, klúbba eða hvað eina í átta mismunandi flokkum. Flokkarnir átta voru i) leikmaður ársins, ii) stjóri tímabilsins, iii) flopp tímabilsins, iv) skúrkur ársins,… meira
Laugardagsgetraun 23. maí
| May 23, 2009 | Posted by Kolbeinn Tumi Daðason under Getraunir |
Þá er komið að laugardagsgetrauninni en allar spurningarnar tengjast íslenska boltanum. Sigurvegari síðustu getraunar var Ommi en reyndar bendir ýmislegt til þess að hann hafi (óvart?) rekið augun í svör annarra. Ég minni á að öllum er frjálst að svara út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Hér er treyst á heiðarleika þátttakenda… meira


Ný ummæli