Monthly Archives: April 2009

Númer 5

Það er ýmislegt sem fótboltamenn taka sér fyrir hendur í frítíma sínum, eitthvað sem þeir hafa nóg af. Sumir eyða tíma sínum í að fjárfesta í húsum og græða á því eins og Robbie Fowler var að gera hér áður fyrr. Aðrir vinna í vörumerkinu sem eru þeir sjálfir og stofna verslanir sem eru tengdir… meira

Botnbaráttan í enska

Ekki vantar spennuna á botni ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Ekkert lið hefur þegar bókað farseðilinn niður um deild enn sem komið er þó að útlitið sé sérstaklega svart hjá West Brom. Norðausturklúbbarnir þrír eru einnig í verulegum skít og má vel vera að fleiri en einn þeirra fari niður. Á átta af síðustu tíu… meira

Matt Le Tissier rifjar upp Ali Dia

Það er ekki úr vegi að slást aðeins í för með Southampton goðsögninni Matt Le Tissier og rifja upp söguna af Ali Dia. {youtube}GyT1r_oVcdA{/youtube} Í myndbandinu að neðan má síðan sjá að Ali Dia komst í fínt færi í þessum leik eftir flottan sprett hjá Berkovic en lét verja frá sér. Hvað ef hann hefði skorað?… meira

Barcelona-Chelsea í beinni

Barcelona og Chelsea skildu jöfn 0-0 í leik sem lét "bragðdaufur" virðast knattspyrnuveisla að hætti Brasilíu 1970. Smellið á "Lesa meira" til að sjá lýsinguna. meira

Öskubuskur tímabilsins

Flestir hafa gaman af “smærri” liðum sem koma öllum á óvart með frammistöðu sem stangast á við allar spár sparkspekinga. Um jólaleytið beindust augu fótboltaáhugamanna til að mynda að smábænum Hoffenheim í suðvesturhluta Þýskalands. Lið bæjarins var í baráttu um þýska meistaratitilinn eftir að hafa síðustu ár skotist upp hverja deildina á fætur annarri (voru… meira

Roy Keane

Rétt fyrir helgi bárust þau tíðindi að einn magnaðasti karakterinn í enskri knattspyrnu undanfarin ár væri komin aftur á fullt í boltann. Roy Keane var ráðinn knattspyrnustjóri Ipswich Town eftir nokkurra mánaða frí. Að sögn Keane var það best fyrir alla aðila, þá helst hundana hans sem að hans sögn voru orðnir hundleiðir á honum.… meira

Laugardagsgetraun

Þá er komið að laugardagsgetrauninni. Sigurvegari síðustu getraunar var Torricelli. Ég minni á að öllum er frjálst að svara út helgina og skiptir engu hvort aðrir eru búnir að svara spurningum. Hér er treyst á heiðarleika þátttakenda í því að sleppa því að skoða svör annarra eða google þangað til þeir hafa skilað sínu giski.… meira

Enginn hægðarleikur

Í þessum nýjasta hluta af Því sem augað ei sér rifjum við upp atvik sem átti sér stað í leik Atlético Madrid og Osasuna á Vicente Calderón-vellinum í Madrid tímabilið 2004/05. Á 75. mín komst Osasuna í 0-2 í leik sem liðið endaði á að tapa 3-2. Flestir leikmennirnir fögnuðu markinu vel og innilega. Fyrirliðinn,… meira

Hverjir standa uppi sem meistarar?

Nú þegar 6-8 umferðir eru eftir af stærstu deildarkeppnum Evrópu er ekki úr vegi að setja upp spádómsgleraugun. Svo gæti farið að á Englandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Spáni muni ríkjandi meistarar allir verja titil sinn sem væri saga til næsta bæjar. Að neðan getur að líta spá Sammarans um verðandi meistara í þessum stærstu deildum… meira

Stúkubyggingar

Arsene Wenger tjáði sig um Wembley fyrir og eftir bikarleikinn um helgina. Fyrir leikinn sagði hann að gamli Wembley hafi verið miklu meira sjarmerandi, grasið stórkostlegt og sá nýi hafi ekkert spes til að bjóða upp á. Hann var svo enn harðorðari eftir leik, sérstaklega vegna ömurlegs undirlags. Undir þetta hafa aðrir tekið. Wembley kostaði… meira

Next Page »