Monthly Archives: March 2009
Alan Shearer tekur við Newcastle
| March 31, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Þá er það ljóst að Alan Shearer hefur tekið við starfi framkvæmdarstjóra hjá Newcastle United. Fyrst þegar ég heyrði fréttirnar hélt ég að um grimmasta aprílgabb sögunnar væri að ræða. Fyrstu fréttir af ráðningunni komu þó milli 20-21 í gærkvöld sem útilokaði það. Shearer er þar með orðinn fjórði knattspyrnustjóri liðsins á þessari leiktíð. meira
Kempurnar-Rúnar Kristinsson
| March 31, 2009 | Posted by admin under Viðtöl |
Vesturbæingurinn ljóshærði Rúnar Kristinsson þarfnast ekki langrar kynningar. Til upprifjunar má nefna glæsimark KR í úrslitaleik bikarsins 1994 sem færði KR-ingum sinn fyrsta alvöru titil í á þriðja tug ára. Í atvinnumennsku hélt Rúnar og sló í gegn með Örgryte, Lilleström og Lokeren og verður dáður af stuðningsmönnum félaganna um ókomna tíð. Sem landsliðsmaður lék… meira
Kempurnar -Rúnar Kristinsson
| March 30, 2009 | Posted by admin under Viðtöl |
Vesturbæingurinn ljóshærði (bíð eftir ummælum varðandi Leikni) er einhver dáðasti miðjumaður sem Ísland hefur alið. Hann lék lykilhlutverk í KR liði sem náði í sinn fyrsta alvöru titil í á þriðja tug ára. Hann lék sem atvinnumaður í fjölda ára og sló í gegn m.a. hjá Örgryte og Lokeren. Á 18 ára landsliðsferli lék Rúnar… meira
Verstu vítin
| March 30, 2009 | Posted by admin under Sex í skemmtun |
“Vísindamenn” við John Moores háskóla í Liverpool kynntu í síðustu viku niðurstöður sínar um leyndarmálið á bakvið hina fullkomnu vítaspyrnu eftir “margra klukkustunda” rannsóknarvinnu. Að sögn forsvarsmanns rannsóknarhópsins felst leyndardómurinn í þremur grunnþáttum, sé ætlunin að skora úr 100% tekinna vítaspyrna: i) Vinkillinn milli bolta og leikmanns við upphaf hlaups að boltanum skal vera milli… meira
Óli Jó í viðtali í Fótboltaþættinum í dag
| March 30, 2009 | Posted by admin under Viðtöl |
Í Fótboltaþættinum í dag verður rætt við Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu. Ólafur situr við símann í Glasgow þar sem liðið mætir Skotum í gríðarlega mikilvægum leik í 9. riðli undankeppni HM 2010 í Suður Afríku. Við hvetjum lesendur til að koma spurningum til Ólafs í ummælakerfinu hér að neðan. Fótboltaþátturinn er á dagskrá… meira
Steríótýpur
| March 28, 2009 | Posted by admin under Gamalt og gott |
Það eru fáar deildirnar í heiminum sem njóta meiri hylli en sú enska hér á landi. Allir eiga sitt uppáhalds lið og allir hafa skoðanir á sínu liði sem og öllum öðrum. Hér eins og annars staðar halda flestir með bestu liðinum og er ég enginn undantekning þar sem ég held með besta liðinu. En það er… meira
Fótbolti 101
| March 28, 2009 | Posted by admin under Myndbönd |
Svona fyrst að það er núll að gerast í fótboltanum þessa helgina þá er hér sýnidæmi um hvernig á að spila knattspyrnu: {youtube}JTu1oXu7lb0{/youtube} meira
K.R.A.P.
| March 27, 2009 | Posted by admin under Enski boltinn |
Eitt helsta spjallborð United stuðningsmanna, redcafe.net, hefur í um árskeið haldið uppi herferð sem ber heitið KRAP, lesist Keep Rafa At ‘Pool. Það var því mikil gleði meðal þeirra þegar kom í ljós að Rafa hefði skrifað undir nýjan samning sem tryggir að hann verði hjá félaginu í einhver ár í viðbót. Þessar fregnir komu… meira
Útivallareglan(away goal rule)
| March 26, 2009 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Mig langar að ræða aðeins regluna um fleiri mörk á útivelli sem er við lýði í Evrópukeppnunum, svona í ljósi þess að nú fer að detta í alvöruna í þeim keppnum. Í dag er reglan sú að ef markatala liða er jöfn að tveimur viðureignum loknum, heima og heiman, þá fer það lið áfram í… meira
Rauða spjaldið á Brad Friedel
| March 26, 2009 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Nú um helgina voru tvö rauð spjöld gefin sem hafa verið dregin til baka af enska knattspyrnusambandinu. Annars vegar rauða spjaldið sem George Mcartney fékk og hins vegar rauða spjaldið sem Brad Friedel fékk. Ástæðan fyrir að ég set þetta hérna inn er sú að ég væri til í að fá umræðu um þetta hjá… meira


Ný ummæli