Monthly Archives: September 2008

Unglingarnir í Arsenal að standa sig

Fyrir þá sem sáu ekki mörk Arsenal gegn Sheffield United í bikarnum eru þau hér. Ekkert sérstaklega ljótur fótbolti. meira

Ótrúleg dómgæsla

Nokkuð hefur verið rætt um "markið" í leik Watford og Reading um helgina. Búið er að taka myndbandið út af Youtube en hægt er að skoða það hér. Er nema von að menn hafi orðið brjálaðir!? meira

Slök skipti

Nú eru Skagamenn fallnir og Stjarnan komin í efstu deild. Ég tel þetta vera afar lök skipti fyrir knattspyrnuáhugamenn. Með fullri virðingu fyrir Stjörnumönnum vantar töluvert upp á að þeir jafnist á við Skagamenn varðandi flest í boltanum. Fyrir það fyrsta verður að öllum líkindum reglulega leikið á gervigrasi í fyrsta skipti í efstu deild.… meira

Fótboltaþátturinn fellur niður í dag

Vegna vandræða með viðskipti á Bandaríkjamarkaði (án gríns) fellur fótboltaþátturinn á Útvarpi Sögu niður í dag. Næsti þáttur verður kl. 5-6 á mánudaginn. meira

Leiktímar í úrvalsdeild

Mikið hefur verið rætt um þá leiktíma sem KSÍ ákvað fyrir leikina í dag og í gær. Fyrri leikirnir eru of snemma til að fólk komist á völlinn, hinir seint um kvöld. Það er vissulega farið að dimma og því hefur verið spurt hvort KSÍ hefði átt að gera þá kröfu að lið í efstu… meira

Fleiri góðir

Er ekki kominn tími á annan lista? Bestir í að stoppa sóknir1. Javier Mascherano2. Mikael Essien3. Lee Cattermole Vanmetnustu leikmennirnir1. Kevin Davies2. James McFadden3. Lee Carsley meira

Bestir í deildinni

Topp listar eru alltaf ágætir til að koma af stað umræðu og í kjölfar skallamarks Tim Cahill gegn Stoke datt mér í hug að taka saman smá lista: Bestu skallamenn deildarinnar:1. Kevin Davies2. Tim Cahill3. Didier Drogba Bestu fyrirgjafir deildarinnar:1. Mikel Arteta2. David Bentley3. Steward Downing meira

Viðtal við Craig Gordon

Sammarinn gómaði Craig Gordon eftir landsleik Íslendinga og Skota um daginn. Hægt er að hlusta á viðtalið hér .  meira

Dómarar í aðalhlutverki

Það hefur mikið verið rætt um slakan dómara leiks Íslendinga og Skota í gær. Loksins dúkkar upp umræða á þeim nótum að það neikvæða við frammistöðu dómarans sé hve stórt hlutverk hann lék í leiknum. Í viðtali við Sammarann eftir leik sagði Hermann Hreiðarsson að hann hafi verið steinhissa á því að eins skemmtilegur og… meira

Landsliðið í útvarpinu í dag

Við Kolbeinn Tumi Daðason munum ræða um íslenska landsliðið og leiki þess við Noreg og Skotland á Útvarpi Sögu FM 99,4 í dag kl. 17-18. Okkur innan handar verður Guðmundur Torfason, sem lék sem atvinnumaður í Skotlandi. Ég minni svo á nýjan þátt á stöðinni, Vísindaþáttinn, sem verður alla þriðjudaga kl. 17-18. Umsjónarmenn þáttarins erum við… meira

Next Page »