Monthly Archives: July 2008
Davíð Þór Rúnarsson í viðtali
| July 31, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Davíð Þór Rúnarsson, leikmaður Fjölnis, verður gestur okkar Kolbeins Tuma í fótboltaþætti Útvarps Sögu á föstudag. Þátturinn er að venju í loftinu kl. 17-18 á FM 99,4 og á netinu á www.utvarpsaga.is meira
Arsenal
| July 31, 2008 | Posted by admin under Enski boltinn |
Síðasta tímabil kom Arsenal mjög á óvart. Liðinu hafði ekki verið spáð góðu gengi eftir að Thierry Henry fór og liðið hafði lítið getað styrkt sig. Öllum á óvörum fór liðið geysilega vel af stað og leikmenn sem áður höfðu lítið haft sig í frammi urðu mjög áberandi. Almunia, Fabregas, Flamini, Hleb, Adebayour, Sagna og… meira
Bjarna fagnað
| July 30, 2008 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Bjarni Guðjónsson kom inn á sem varamaður í liði KR í gær þegar Skúli Jón Friðgeirsson meiddist. Ég stóð ásamt Arnljóti Ástvaldssyni á annarri hæð KR-heimilisins þaðan sem við lýstum leiknum og verð að viðurkenna að mér fannst afar undarlegt að sjá stúkuna í heild sinni standa á fætur og fagna ógurlega þegar Bjarni kom… meira
Sammarinn að ranka við sér
| July 29, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Eftir nokkra pásu fer síðan að rúlla aftur af stað, en vesen hefur verið á ummælakerfi hennar. Ég hef sett upp nýtt kerfi til bráðabirgða, á ensku reyndar, en það stendur til að bæta það. Nú er því hægt að láta gamminn geysa og níða skóinn af hverjum sem menn listir. meira
Stuðningsmannalög í útvarpinu í dag
| July 18, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Í dag, 18.júlí, verða stuðningsmannalög frá Bretlandseyjum tekin fyrir í fótboltaþættinum á Útvarpi Sögu fm99,4. Páll Kristjánsson mætir í heimsókn og fer yfir sögurnar á bak við áhugaverðustu lögin. Útsending hefst um 5 leitið og er einnig hægt að hlusta á www.utvarpsaga.is. meira
Vandræðin senn á enda
| July 16, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Eins og alþjóð veit hefur Sammarinn verið frekar dofinn í sumar vegna vandræða með ummælakerfi síðunnar. Þetta gerðist í kjölfar uppfærslu á vefumsjónarkerfi hennar, en nú er stefnt á að koma upp bráðabirgðakerfi um helgina þar til hið gamla kemst í lag. Þangað til minni ég á fótboltaþáttinn á Útvarpi Sögu fm99,4 á mánudögum og föstudögum… meira


Ný ummæli