Monthly Archives: June 2008

Gunnar Heiðar í viðtali á föstudag

Enn liggur ummælakerfi síðunnar niðri og lítið þokast við að koma því lag. Sennilega verður farið í að koma upp öðru bráðabirgðakerfi, enda gengur ekki að menn geti ekki rifist hér og skammast. Annars er ýmislegt framundan í útvarpinu. Á morgun, föstudag, verður Gunnar Heiðar Þorvaldsson í viðtali en lýsingin frá leik Stjörnunnar og Víkings… meira

VISA-Bikarinn í beinni

Útvarp Saga mun lýsa beint leik Þróttar og Fylkis í kvöld, miðvikudag og leik Fjölnis og KFS á morgun, fimmtudag. Báðir leikirnir hefjast kl. 19:15 og er hægt að hlusta á fm99,4 eða á netinu á utvarpsaga.is. meira

Ummælakerfið enn niðri

Erfiðlega gengur að koma ummælakerfi síðunnar í lag eftir uppfærslu á síðunni fyrir nokkru. Það er þó verið að rembast við þetta og vonandi hrekkur þetta í gang sem fyrst. Annars minni ég á útvarpsþátt Sammarans á Útvarpi Sögu fm 99,4 alla mánudaga og föstudaga kl. 5-6, ásamt því sem beinar lýsingar eru frá 1.… meira

La Furia Roja

Spánverjar rúlla yfir Rússa og 4-1 sýna hvers vegna þeim hefur af mörgum verið spáð Evróputitlinum í ár og sýna á sama tíma hvers vegna þeir munu sennilega ekki verða það. meira

Er ekkert ólympíulágmark í lýsingu?

Til að fá að keppa á Ólympíuleikum þurfa íþróttamenn að ná ákveðnu lágmarki. Slíkt á þó greinilega ekki við hjá lýsendum EM í knattspyrnu ef við miðum við frammistöðu Adolfs Inga í leik Hollands og Ítalíu í gær. Þeir sem fylgdust með tóku væntanlega eftir að Adolf þekkti leikmenn nánast ekki neitt, nema helst allra… meira

EM upphitun í dag

Í fótboltaþættinum í dag verður hitað upp fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem rennur af stað um helgina. Ritstjórar EM blaðs 24 stunda, Björn Bragi Arnarson og Haukur Harðarson líta í heimsókn. Ég minni svo á beinar útsendingar Útvarps Sögu frá 1. deild karla og Landsbankadeild kvenna. Í kvöld kl. 20:00 verður sent beint frá Njarðvík þar… meira

ÍBV Partý

Föstudaginn 13. júní verður haldið ÍBV Fan partý á Ölveri í Glæsibæ og verða margvísleg tilboð á barnum. Allir stuðningsmenn ÍBV eru velkomnir, en sýndar verða gamlar og nýjar myndir af leikjum á risaskjá, ásamt því sem Eyjalög verða spiluð í botn. Fleiri fréttir verða birtar þegar nær dregur. Ég minni svo á upphitun fyrir… meira

Landsbankadeild kvenna á Útvarpi Sögu

Útvarp Saga sendi í gær beint út frá leik Vals og Aftureldingar í Landsbankadeild kvenna og var það fyrsta beina útsending stöðvarinnar frá kvennaboltanum. Sverrir Júlíusson og Markús Þórhallsson stóðu sig með stakri prýði í lýsingunni en næsta útsending verður þann 11. júní þegar Valur og KR mætast fyrri úrslitaleik sumarsins. Á föstudaginn verður leikur Hauka… meira

Ekki gert ráð fyrir Bjarna?

Henry Birgir Gunnarsson á hrós skilið fyrir tilraun sína til að fá Bjarna Fel sem aðallýsanda EM í sumar. Ég hef ekki enn heyrt í nokkrum sem vill Bjarna ekki frekar en Valtý Björn (sem mér skilst að verði áberandi á mótinu) og ég vil svo sannarlega hann fái tækifæri. Nú hefur veglegur auglýsingastrimill verið… meira