Monthly Archives: May 2008
Framundan
| May 29, 2008 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Enn er unnið að lagfæringum á ummælakerfinu og fer það vonandi að komast í lag. Ýmislegt er svosem hægt að segja um landsleikinn í gær. Ég var helst óánægður með það hve Emil hægði á öllum sóknum, reyndi of mikið en lítið kom út úr því. Stefán var ekki mjög hættulegur þó hann héldi bolta… meira
Er þetta grín?
| May 28, 2008 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Góð forgangsröðun hjá fyrirliða Wales
| May 28, 2008 | Posted by admin under Léttmeti |
"Ég hef átt frábært ár persónulega. Gifti mig, eignaðist barn og svo toppar það núna þegar ég verð fyrirliði Wales" – Carl Fletcher, fyrirliði Wales. meira
Terry Venables tekinn í gegn
| May 26, 2008 | Posted by admin under Myndbönd |
Giovanni Trappatoni var ráðinn landsliðsþjálfari Íra eftir að menn höfðu talið nokkuð öruggt um tíma að Terry Venables yrði fyrir valinu. Þetta myndband er úr írskum fótboltaþætti þar sem Eamon Dunphy hellir sér yfir Venables, en hann hefur t.d. áður kallað Niall Quinn "creep" og trylltist þegar menn fóru að gagnrýna Roy Keane eftir brotthvarf… meira
Athugasemdakerfið niðri
| May 25, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Eins og margir hafa tekið eftir (þúsundir væntanlega, eða við skulum halda okkur við þá sögu) þá hefur athugasemdakerfið verið í ólagi á síðunni um nokkurt skeið. Það er þó verið að vinna í þessu og vonandi verður það klárt fljótlega svo menn geti t.d. rifist um það hvort það sé ekki bara best fyrir… meira
Illa farið með Chelsea?
| May 22, 2008 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Ég vil óska United mönnum til hamingju með Meistaradeildartitilinn, þeir eru vel að honum komnir. Annars tók ég eftir því að að stuðningsmenn Chelsea hafa kvartað sáran yfir Lubos Michel dómara leiksins og að hvert einasta vafaatriði leiksins hafi fallið með Man Utd og rúmlega það. Því miður sá ég aðeins síðari hálfleik en verð… meira
Neil Warnock uncut
| May 19, 2008 | Posted by admin under Myndbönd |
Fyrir nokkru setti ég hingað inn myndband af Neil Warnock að missa sig í hálfleik. Það myndskeið hafði verið klippt til og öllu blóti eytt. Hér er þetta í upprunalegri útgáfu. Guðjón Þórðarson er eins og skáti miðað við þetta. {youtube}kQtWVcFpvHg{/youtube} meira
Stjarnan – KS/Leiftur á Útvarpi Sögu
| May 17, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Á morgun, sunnudag, mun ég lýsa leik Stjörnunnar og KS/Leifturs í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu FM 99,4. Leikurinn hefst kl. 16:00 og verður þetta önnur útsending stöðvarinnar frá 1. deildinni. Tveir leikir verða að öllum líkindum á dagskrá um á föstudaginn þegar Eyjamenn taka á móti Stjörnunni og KS/Leiftur fær Víking frá Ólafsvík í… meira
Negri til ÍBV?
| May 16, 2008 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Það er ekkert annað! http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=61466 meira
Lélegt fyrir íslenska neytendur
| May 14, 2008 | Posted by admin under Leikir |
Ég skilaði meistararitgerðinni minni loksins um daginn, mikil léttir og geysilega góð tilfinning. Til að fagna fór ég rakleiðis út í Elko til að kaupa UEFA EURO 2008 tölvuleikinn á PS3, enda var síðasti leikur mjög góður. Ég lét mig hafa það að slíta af mér handlegginn og borga 7000 krónur fyrir leikinn og fór… meira


Ný ummæli