Monthly Archives: April 2008
Rangstaða
| April 29, 2008 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Mikið hefur verið rifist um tilburði Radhi Jaïdi í síðustu tveimur leikjum. Þá hefur hann stillt sér upp fyrir innan aftasta varnarmann í aukaspyrnu, snúið sér að markverðinum og reynt að trufla hann þegar aukaspyrnan var tekin. Í fyrra skiptið gegn Everton var hann ekki rangstæður þegar skotið reið af en gegn Liverpool var hann það… meira
Björt framtíð hjá Hearts
| April 27, 2008 | Posted by admin under Skoski boltinn |
Eftir alla vitleysuna í stjórnartíð Vladimir Romanov er loks hægt að segja frá einhverju jákvæðu varðandi Hearts. Í gær sigraði liðið Inverness 1-0, sem þætti ekki saga til næsta bæjar ef ekki væri fyrir frekar sérstakan leikmannahóp. 8 leikmenn voru ungir Skotar, 9 í heildina úr unglingastarfi félagsins (Eggert lék líka). Meðal þeirra sem léku… meira
10 verstu kaupin í enska boltanum 2007-2008
| April 25, 2008 | Posted by admin under Enski boltinn |
Í síðustu viku kom ég með listann yfir bestu kaupin, og það voru skiptar skoðanir um hverjir ættu heima á þeim lista og hverjir ekki. Úr því maður tók saman þann lista, þá og fyrst hann kom þá er ekki úr vegi svona í vikulokin að taka saman verstu kaup ársins líka. 10. Kieron… meira
Eyjaþema í útvarpinu í dag
| April 25, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Í fótboltaþætti Útvarp Sögu í dag kl. 17-18 verður kastljósinnu beint að knattspyrnunni í Vestmannaeyjum. Á línunni verða þeir Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS og Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Bæði lið þykja líkleg til stórræða í sumar, en síðasta sumar olli nokkrum vonbrigðum hjá báðum, eftir ágætis spilamennsku á köflum. Hægt verður að hlusta á þáttinn í… meira
Fast skotið
| April 24, 2008 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Félagarnir Paul Doyle og Barry Glendenning skrifuðu ansi harðorða grein um viðureign Barcelona og Man Utd í The Guardian í dag. M.a. kemur þar fram: "We had lots of possession and created more chances than Barcelona," lied Cristiano Ronaldo today. Unfortunately for The Best Player in the World, the stats show Barca had 73% of… meira
Man Utd 0-0 Barcelona
| April 24, 2008 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Fín úrslit fyrir United en alls ekki búið hjá Barcelona. Miðað við gagnrýnina sem spilamennska Barcelona hefur fengið verð ég að hrósa þeim fyrir góðan leik, reyndar voru þeir allt of hægir í þeim skyndisóknum sem þeir fengu en vörn United var mjög góð í leiknum og gerði þeim erfitt fyrir. Ég hallast nú samt… meira
Crónica de una muerte anunciada
| April 21, 2008 | Posted by Kjartan under Spænski boltinn |
Tveimur dögum fyrir stærsta leik sinn á tímabilinu gegn núverandi Englandsmeisturum, Manchester United, er Barcelona í sinni mestu krísu síðan áður en Joan Laporta og Frank Rijkaard tóku við liðinu sem forseti og þjálfari fyrir 5 árum síðan. Þegar fimm leikir eru eftir af spænsku deildinni situr Barcelona í þriðja sæti í deildinni, 11 stigum… meira
10 bestu kaupin í enska boltanum 2007-2008
| April 19, 2008 | Posted by admin under Enski boltinn |
Senn líður að lokum tímabilsins, og því ekki úr vegi að fara að taka saman það helsta, og gott er að byrja á því að taka saman bestu kaupin. 10. Habib Beye (Marseille – Newcastle, £2m)Loksins loksins keyptu Newcastle varnarmann sem er ekki ömurlegur. Með betri hægri bakvörðum í deildinni (enda virðast hægri bakverðir alltaf… meira
EM 2008 kort
| April 19, 2008 | Posted by admin under EM 2008 |
Fyrir þá sem þegar eru farnir að hlakka til er hér hægt að nálgast ágætis kort til útprentunar yfir leikina sem fram fara. Um að gera og tippa á þetta fyrirfram, þó ég viti nú um nokkra sem er sama um mótið þar sem hvorki Englendingar né Íslendingar mæta til leiks. meira


Ný ummæli