Monthly Archives: March 2008

Þátturinn fellur niður í dag

Vegna tæknilegra örðugleika (ekki erfiðleika) fellur fótboltaþátturinn á Útvarpi Sögu niður í dag, mánudag. Í stað hans verður þáttur síðasta föstudags endurfluttur kl. 17:00, en þá var Kolbeinn Tumi Daðason gestur þáttarins, eins og svo oft áður. Næstu þáttur verður á föstudaginn og þá er stefnan sett á að fá stórstjörnu í viðtal. Annars vil… meira

Ódýrasta víti sögunnar?

Vítið sem dæmt var á Sun Jihai gegn Birmingham á laugardag var með verstu dómum sem sést hafa lengi. Svo ég vitni í Mark Lawrenson hjá BBC: "That is the worst penalty I have seen given in my life". Jihai og McSheffrey mættust öxl í öxl í teignum, hlaupandi frá marki. McSheffrey æddi svo fast… meira

Nýting vallanna í ensku úrvalsdeildinni

Tvö lið gripu til þess ráðs á síðasta tímabili að lækka miðaverð og freista þess að fá áhorfendur á völlinn, Wigan og Bolton. Það virðist ekki hafa gengið alveg nógu vel því enn eru þau, ásamt Blackburn með versta sætanýtingu allra liða í deildinni. Það er heimasíðan EPL talk sem tók saman þennan lista yfir… meira

Steve Bennett í fyrra

Steve Bennett hefur verið í sviðsljósinu undanfarna daga út af rauða spjaldi Javier Mascherano. Í fyrra gerðu Tottenham og Arsenal jafntefli í leik þar sem Bennett flautaði ekki til að leyfa tveimur Arsenalmönnum að fá aðhlynningu heldur hélt leikurinn áfram og Tottenham skoraði. Það er gaman að sjá á þessu myndbandi að það er ekki… meira

Nýir fyrirliðar

Nú eru tveir nýjir þjálfarar að prófa tvo nýja fyrirliða. Rio Ferdinand orðinn fyrirliði Englands fyrir leikinn gegn Frökkum og Kristján Örn Sigurðsson hirðir bandið af Eiði Smára. Þetta þarf ekki að vera endanlegt en fróðlegt engu að síður. Með fullri virðingu fyrir Manchester United þá get ég bara engan vegin séð Ferdinand fyrir mér sem fyrirliða… meira

Þetta var bullandi rautt

Nú deila margir um réttmæti gula spjaldsins sem Javier Mascherano fékk þegar hann hljóp hálfan völlinn að dómaranum í dag til að mótmæla því að Fernando Torres væri kortaður. Torres virtist vera að heimta gult spjald á United leikmanninn eftir að Bennet flautaði aukaspyrnu og slíkt er gult spjald. Mascherano, sem hafði verið með kjaft… meira

Stjörnur í Áströlsku deildinni

Það er alltaf eitthvað um að gamlar stjörnur fari til smærri liða undir lok ferilsins í leit að peningum. Þannig er Celestine Babayaro kominn til LA Galaxy og Niko Kovac leikur með Salzburg í Austurríki en mesta flóðið virðist hafa verið til Ástralíu þar sem margir heimamenn hafa snúið aftur. Meðal þeirra sem nú leika í Áströlsku… meira

Góð grein eftir aðstoðarþjálfara Noregs

Undir liðnum "Fræðsla" á www.ksi.is má finna hitt og þetta sem áhugavert er að skoða. Þar er t.d. greint frá stefnu knattspyrnusambandsins í þjálfun barna og unglinga, farið í þessi helstu jafnréttis/fordómamál og vísað í efni erlendis frá. Einnig er góður gagnagrunnur æfinga og viðtala þannig að lítið er hægt að kvarta yfir magni fróðleiks… meira

Ekki afskrifa Chelsea

Nú fer að styttast í lok ensku úrvalsdeildarinnar og baráttan um toppsætið er hreint svakaleg. Það kom mörgum á óvart að Arsenal skyldi ná forystu snemma og halda henni þetta lengi, en loks kom þó að því að Man Utd sigldi fram úr. Á sama tíma hefur Chelsea þó læðst óþægilega nærri toppnum, að því… meira

Fyndin mörk

Ég flaggaði leik um daginn þar sem markvörður sparkaði af alefli í höfuð samherja síns fyrir utan teig með þeim afleiðingum að boltinn þaut í netið. Virkilega fyndið atvik en því miður vantaði myndavélar. Látum þetta myndband duga í staðinn. {youtube}OVuhpgCG_zs{/youtube} meira

Next Page »