Monthly Archives: February 2008

Hvenær á að flauta til leiksloka?

Moritz Volz hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði dómara varla flauta til leiksloka nema eftir útspark. Strangt til tekið eiga dómarar að fylgja reglunum og leikurinn er búinn þegar leiktíminn rennur út. Brasilíumenn skoruðu þannig mark á sínum tíma gegn Svíþjóð sem var dæmt af, þá flautaði dómarinn í miðri hornspyrnu og svipað sáum við… meira

Martraðarmeiðsli 2

  Í leik Arsenal og Birmingham um helgina lenti Eduardo Da Silva leikmaður Arsenal í þeirri hræðilegu reynslu að fótbrotna. Ég var svo óheppinn að sjá ekki téðan leik en hef ég þó með herkjum fundið mynd af broti Eduardo Da Silva. Stjórnendur á skysports tóku þá ákvörðun að endursýna ekki brotið en það gerir það að… meira

Úrvalslið tímabilsins

Þetta er ekki alslæmur tími til þess að líta aðeins um öxl og rífast um það hverjir hafa staðið sig best í ensku úrvalsdeilsinni það sem af er vetri. Hér er mitt úrvalslið: David JamesLucas Neill – William Gallas – Kolo Toure – Jolien LescottDavid Bentley - Cesc Fabregas – Gareth Barry – Christiano RonaldoAdebayour – Berbatov… meira

Föstudagsþátturinn fellur niður

Vegna upphitunar fyrir Eurovision fellur fótboltaþátturinn niður á föstudag. Næsti þáttur verður á hefðbundnum tíma kl. 17:05 á mánudag. meira

Bannað að blóta

Enska knattspyrnusambandið hefur hug á að banna blót algjörlega í enskum fótbolta og fyrsta tilraunin með þetta verður gerð í Northern League Division Two. Ef einhver blótar. þ.e. segir eitthvað sem sambandð telur rangt að segja, fær hann beint rautt spjald. Einhver nefndi að þetta gæti orðið erfitt fyrir aumingja Wayne Rooney ef þetta verður… meira

Bara eins og ég í innanhússboltanum!

{youtube}pPjS0bpBKpM{/youtube} meira

Helgargetraunin

Það er allt of langt síðan almennileg getraun rataði hingað inn. Smellið á "lesa meira". meira

Þessu hefur KSÍ verið á móti

Barnsley sló Liverpool út úr bikarnum í einum fjörugasta fótboltaleik sem ég hef séð lengi. Leikurinn er frábært dæmi um hversu frábærar bikarkeppnir geta verið, þar sem allir hafa í raun möguleika á að mæta öllum og dæmin sýna að allir geta líka unnið alla. KSÍ hefur nú nýlega breytt bikarkeppninni aftur þannig að úrvalsdeildarliðin komi… meira

Hverja verður erfiðast að halda í?

Ýmsir leikmenn hafa slegið í gegn í ár og eru orðnir eftirsóttir af stærri liðum. Ég hef tekið saman smá lista yfir þá sem ég held að lið þeirra muni eiga í erfiðleikum með að halda í mikið lengur: Cesc Fabregas, Gabriel Agbonlahor, Jussi Jaaskelainen, David Bentley, Didier Drogba, Jolien Lescott, Mikel Arteta, Mika Richards,… meira

1 árs bann fyrir þetta?

Adriano er ekki alveg með fulle fem og nú skallaði hann leikmann í brasilísku deildinni. Fjölmiðlar virðast gera ráð fyrir að hann uppskeri mjög langt bann, jafnvel til eins árs. Hér að neðan er myndband af atvikinu og ég verð að segja að ég hef nú séð ýmislegt grófara, svo ég segi nú ekki meira.… meira

Next Page »