Monthly Archives: January 2008
Spurningakeppni í útvarpinu föstudag kl. 17:05
| January 31, 2008 | Posted by admin under Tilkynningar |
Á föstudaginn kl. 17:05 verður hinni aldalöngu spurningu "hversu lítið er hægt að vita um fótbolta" svarað. Þá mæta þeir Elmar "Le'Mar" Árnason og Márton Skúli Maróti til Sammarans á Útvarpi Sögu fm. 99,4 og taka þátt í spurningakeppni um fótbolta. Þeir félagar vita sennilega minna um fótbolta en genamengi mannsins og því verður afar… meira
Viðbrögðin við mörkum Havant & Waterlooville
| January 30, 2008 | Posted by admin under Myndbönd |
Phil Thompson virðist ekkert allt of ánægður þarna, öfugt við Matt Le Tissier. {youtube}8NNqtMSJBMQ{/youtube} meira
Áfram ÍBV!
| January 28, 2008 | Posted by admin under Myndbönd |
Svona eru Eyjamenn. Þó þeir séu myglaðri en salat í ísskápnum hans Charles Barkley taka þeir samt undir og syngja ÍBV lagið. {youtube}xcdC9xJHUjw{/youtube} meira
Moritz Volz – Óskráðar reglur fótboltans
| January 27, 2008 | Posted by admin under Gamalt og gott |
Gamla greinin í dag er pistill sem Moritz Volz skrifaði í The Times. Mjög góð lesning. Moritz Volz, leikmaður Fulham, er með besta húmorinn í úrvalsdeildinni, það er staðfest. Hann skrifaði pistil í The Times þar sem hann greinir frá óskrifuðum reglum fótboltans, eins og þær birtast atvinnumönnunum. Þetta er það besta sem ég hef lesið lengi,… meira
Fréttir vikunnar á KR vellinum
| January 26, 2008 | Posted by admin under Getraunir |
Laugardagsgetraunin mætt. Þessari mynd nappaði ég frá vinum okkar á fotbolti.net (Hafliði Breiðfjörð tók hana). Ég hef dregið fram þrjá áhorfendur þarna sem voru allir mjög áberandi í fréttum vikunnar. Hverjir eru þeir og hvað gerðu þeir? meira
Hvað eru þessir menn að gera?
| January 24, 2008 | Posted by admin under Enski boltinn |
Fyrst að stjóri allra stjóra sér sig knúin til þess að tjá sig um málefni er varða Liverpool og velferð liðsins sé ég mér ekki annað fært en að reyna að forvitnast um það hvernig þetta undarlega mál kemur öðrum en sjálfum mér fyrir sjónir. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig þessir Bandarísku snillingar halda… meira
Markmannsbúningar
| January 24, 2008 | Posted by admin under Léttmeti |
Það er jafn augljóst og að Björk Vilhelmsdóttir er í stærri kantinum að markmannsbúningar eru ekki alveg nógu flottir. Ég hef gert tilraun til að ráðast inn í tískuheiminn með skikkjuhugmyndinni minni (sjá hér) en fengið heldur dræmar undirtektir, eins ótrúlegt og það kann að virðast. Þessi klikkar þó ekki. Ég sé í fljótu bragði… meira
Landsliðshópurinn
| January 23, 2008 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Ég er mjög sáttur við þann hóp sem Óli Jó hefur valið fyrir mótið á Möltu. Hópinn má sjá hér. Hann velur þarna menn sem ég tel eiga erindi í liðið en hafa ekki fengið eðlileg tækifæri, t.d. Bjarna Guðjóns, Kjartan Sturlu, Davíð Þór og Atla Svein. Af nýliðunum fagna ég svo sérstaklega að sjá… meira
Ástæða þess að þetta er rautt spjald
| January 22, 2008 | Posted by admin under Myndbönd |
Ónefndur félagi minn fer yfirleitt með takkana á móti mönnum í tæklingar. Hann uppsker oft rautt spjald fyrir það en er alltaf jafn hissa, spyr hvernig hann eigi annars að fara í boltann. Þessi tækling úr næstefstu deild Hollands ætti að sýna honum hvers vegna þetta er bannað. Sá sem varð fyrir tæklingunni þurfti að hætta… meira
Óþarfa leiðindi að austan!
| January 20, 2008 | Posted by Innsend grein under Íslenski boltinn |
Á Reyðarfirði hafði ekki verið starfræktur meistarflokkur í fótbolta um árabil. Þessu stefndu nokkrir Reyðfirðingar að því að breyta, og stofnuðu utandeildarlið sem lék undir merkjum Súlnanna frá Stöðvafirði. Nú stendur til að skrá félagið til þátttöku í 3. deild, og er það ágætt. Hvað mér þykir þó leiðinlegast við þetta er sú óskammfeilni þeirra… meira


Ný ummæli