Monthly Archives: November 2007

Viðtalið við Henry Birgi komið á Sammarann

Henry Birgir Gunnarsson mætti í útvarpsþátt Sammarans á Útvarpi Sögu í dag. Við ræddum málefni Knattspyrnusambands Íslands, hvað mætti betur fara og þá hvernig. Ég var beðinn um að taka þetta samtal okkar upp og setja hingað á síðuna og eins merkilegt og það nú er mundi ég eftir því. Hægt er að hlusta á… meira

Hvort vegur þyngra hjá Englendingum, deildin eða landsliðið?

Michel Platini hefur ekkert verið að spara stóru orðin síðan hann tók við knattspyrnusambandi Evrópu. Nú síðast hefur hann sagt að erlendir leikmenn, þjálfarar og eigendur liða í ensku úrvalsdeildinni hafi slæm áhrif á gengi enska landsliðsins. Það er örugglega rétt hjá honum, Englendingar spila bara á Englandi og þeir eru ekki margir sem komast… meira

Umræða um KSÍ á föstudaginn

Fótboltaþáttur Sammarans á Útvarpi sögu verður tileinkaður faglegri umræðu um Knattspyrnusamband Íslands næsta föstudag. Geir Þorsteinsson, hinn umdeildi formaður KSÍ, kallaði eftir slíkri umræðu um daginn og við svörum kallinu. Henry Birgir Gunnarsson kíkir í heimsókn, en hann hefur verið mjög áberandi í umræðunni og hefur velt upp mörgum áhugaverðum málum, svo sem ráðningum þjálfara, aðbúnaði fréttamanna… meira

Góður dráttur fyrir utan fjölda liða

Íslendingar mega vel við una eftir dráttinn í undankeppni HM 2010. Það var leiðinlegt að sjá okkur lenda í 5 liða riðli, en mótherjar okkar bættu fyrir það. Makedóníumenn voru kannski ekki á óskalistanum, sigruðu Króata 2-0 um daginn og verða eflaust strembnir, en Norðmenn, Skotar og Hollendingar eru ekki langt frá því að vera… meira

McLaren ræðir um uppsögnina

{youtube}dK1-lmCH4_E{/youtube} meira

Hannes Þór Halldórsson talar við Sammarann

Í ljósi þeirrar heitu umræðu sem átt hefur sér stað upp á síðkastið um markvarðarstöðu landsliðsins ákvað ég að taka Hannes Þór Halldórsson markvörð Fram tali og athuga meðal annars hver hans skoðun er á landsliðsmarkvarðarstöðunni.   Hannes er alltaf hress og liggur yfirleitt ekki á skoðunum sínum þegar þannig liggur á honum. Hannes fjárfesti sér… meira

West Ham klúbburinn hittist á sunnudaginn

West Ham klúbburinn á Íslandi ætlar að hittast á Classic Rock Sport á sunnudaginn til að fylgjast með leik Hamranna og Tottenham sem hefst kl. 13:30. Að venju eru allir velkomnir og við hvetjum West Ham menn, sem og auðvitað Spursara, til að líta við. West Ham klúbburinn heldur úti heimasíðunni www.whufc.is og fær síðan… meira

Ólafur Þór í viðtali á morgun

Sammarinn verður að venju á Útvarpi Sögu fm 99,4 kl. 17-18 á morgun, föstudag. Ólafur Þór Jóelsson, sem sennilega er best þekktur fyrir hinn geysivinsæla sjónvarpsþátt Game Tíví, kíkir í heimsókn og farið verður í saumana á þeim fótboltatölvuleikjum sem komið hafa út í haust. Hver er annars skoðun manna á enska landsliðinu? Hver tekur… meira

Áberandi andstaða við vinnubrögð KSÍ

Geir Þorsteinsson kvartar mikið yfir ófaglegri umræðu varðandi Knattspyrnusambandið. Hann getur þó ekki sagt mikið eftir afskaplega vel heppnaðan umræðuþátt þeirra Sýnarmanna eftir landsleik Dana og Íslendinga í kvöld. Í þættinum var landslið besservissera fengið til að segja sína skoðun á hinum ýmsu málefnum er snerta landsliðið og svörum Geirs skotið inn í. Þetta var… meira

Geysilegt ójafnrétti í boltanum

Eini Íslendingurinn sem hlotið hefur borgarstjóraembætti fyrir að vera versti kosturinn hefur heldur betur sett mark sitt á Alþingi eftir komuna þangað. Steinunn Valdís Óskarsdóttir krefst þess nú að orðið ráðherra verði lagt niður og annað tekið upp sem „bæði kynin geta notað“. Auðvitað varð mér strax hugsað til fótboltans við þessar merku fréttir. Hvað… meira

Next Page »