Monthly Archives: September 2007
Vísvitandi rangur dómur?
| September 30, 2007 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Ég vil byrja á að óska Völsurum til hamingju með titilinn og votta Víkingum samúð mína vegna fallsins. Liðið átti að mínu mati ekki skilið að falla. Ég skellti mér í Víkina á laugardaginn til að fylgjast með leik Víkinga og FH-inga og fyrir utan slaka mætingu FH-inga fannst mér eitt standa upp úr. Í… meira
Tilviljun eða örlög?
| September 29, 2007 | Posted by admin under Enski boltinn |
Dregið var í 4. umferð deildarbikarsins nú fyrir stundu. Það var í rauninni ekkert sem vakti athygli mína í þessum drætti fyrr en Liverpool var dregið til að spila á heimavelli að sjálfsögðu gegn engum öðrum en Liverpool legendinu Robbie Fowler og félögum í Cardiff. Er þetta ekki allveg dæmigert? Þetta eru allveg ótrúlegar tilviljanir… meira
Umgjörð knattspyrnuleikja
| September 29, 2007 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Íslenski boltinn |
Í sumar var sett áhorfendamet í Landsbankadeild karla en flestir held ég að geti þó verið sammála um hægt sé að gera betur. Gott veður í sumar og brotthvarf félaga með fáa áhorfendur úr deildinni hefur haft sitt að segja í sumar en aðra þætti þarf að bæta til að laða fólk að völlunum. Hér… meira
Úrslit ráðast í Landsbankadeild karla
| September 27, 2007 | Posted by Innsend grein under Íslenski boltinn |
Jæja nú liggur engin vafi á því að haustið er komið. körfuboltinn og handboltinn kominn af stað og íslenskri knattspyrnuvertíð lýkur. Nú þegar er ljóst hvaða lið skipta um sæti í neðri deildunum enda leik löngu lokið í 2. og 3. deildinni. Fjölnir og Grindavík hafa tryggt sér sæti í landsbankadeildina en þróttur og ÍBV berjast um síðasta sætið.… meira
Nýjungar á Sammaranum
| September 27, 2007 | Posted by admin under Tilkynningar |
Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir eru komnir tveir nýjir hnappar á valslána hér að ofan. Með því að smella á Boltinn í beinni fæst úrslitaþjónusta Sky þar sem hægt er að fylgjast með gangi leikja í flestum helstu deildunum. Nýjustu mörkin færa okkur svo mörkin úr þessum helstu leikjum, frá strákunum á 101… meira
Hver tekur við af Mourinho?
| September 26, 2007 | Posted by admin under Enski boltinn |
Það er nokkuð ljóst að Avram Grant verður ekki langlífur í starfi knattspyrnustjóra á Brúnni. Þrátt fyrir vinskap hans og Abramovich þá gera menn ráð fyrir því að þeir viti það báðir að ef framtíðaráform félagsins eiga fram að ganga verður reyndur og árángursríkur knattspyrnustjóri að vera til staðar til að leiða félagið áfram á… meira
Öldurhúsalið Mikka músar deildarinnar
| September 24, 2007 | Posted by Innsend grein under Bandaríski boltinn |
Ég verð seint þekktur fyrir annað en að styðja við bakið á David Beckham. Í gegnum tíðina hefur hann þurft að hrista af sér alskyns sögur og bull sem til verða í smásmugulegum hugum ruslblaðamanna. Beckham ákvað þó snemma á knattspyrnuferli sínum að hann hefði ekki í hyggju að gera einkalíf sitt að því auðveldasta.… meira
Mike Dean
| September 24, 2007 | Posted by admin under Enski boltinn |
Mike Dean var heldur betur í aðalhlutverki í leik Man Utd og Chelsea á sunnudaginn. Rautt spjald á Kenobi, mark Tevez eftir að uppbótartíma var lokið og víti undir lokin. Allt voru þetta vafasamar ákvarðanir sem hafa verið ræddar sundur og saman. Hvaða skoðun hafa menn á þessu? Réðust úrslit leiksins á slæmri frammistöðu dómarans? meira
Ótrúlegt mark hjá Valladolid
| September 24, 2007 | Posted by Björn Berg Gunnarsson under Spænski boltinn |
Þetta frábæra mark skoraði Pedro Lopez gegn Real í fyrradag. Skotin verða ekki mikið betri. {youtube}h68w5V6LMJ4{/youtube} meira
Lee Trundle
| September 23, 2007 | Posted by admin under Enski boltinn |
Það hafa sennilega ekki margir heyrt um hinn þrítuga leikmann Bristol City, Lee Trundle. Trundle braust seint fram á sjónarsviðið, það var ekki fyrr en hann var 25 ára gamall að þjálfari Wrexham í Wales kom auga á þennan ótrúlega talent þar sem hann hafði nýverið fært sig um set frá hálfgerðum utandeildarbolta í Wales. Hann… meira


Ný ummæli