Monthly Archives: July 2007

Hvernig byggir maður upp stórveldi?

Auxerre varð að stórveldi í franskri knattspyrnu undir stjórn eins manns. Alan Curbishley festi Charlton í sessi í úrvalsdeild eftir áralanga baráttu, sama gildir um Sam Allardyce og Bolton. Hjá KR eru menn reknir áður en þeir hafa fengið eðlilegt tækifæri til nokkurs, svo einfalt er það. Jafnvel þegar sérstaklega er ákveðið fyrirfram að vera… meira

Þroskað hjá fyrirmyndinni

Menn eru greinilega stórhuga í fyrirmyndakeppninni hjá þjálfaraliði Valsara, en neðangreint er að finna á heimasíðu 3. flokks kvenna þar á bæ: "Tökum frí frá miðvikudegi til miðvikudags, nema ég sendi á ykkur sms á mánudegi í sambandi við þennan blessaða bikarleik sem KSÍ er búinn að skíta yfir fyrir okkur. Annars verðum við bara… meira

Ekki góð ákvörðun

Stjórn KR rak Teit Þórðarson í dag, þegar tímabilið er rétt hálfnað. Þolinmæðin var ekki meiri en þetta gagnvart manninum sem skilaði öðru sæti í deild og bikar í fyrra og hefur lyft grettistaki í uppbyggingu yngriflokkastarfs KR. Hann átti að fá 5 ár í þetta en eins og KR-ingar eru nú vanir þá reka þeir… meira

Sammarinn sigraði Fótbolta.net í dramatískum leik

Sigur Íraks í Asíukeppninni í dag er eins og happaþrennuvinningur samanborið við þann stórglæsilega sigur sem Sammarinn landaði gegn fyrnasterku liði Fótbolta.net á Tungubökkum í dag… meira

Dólgar

Mér varð hugsað til hinna ýmissu tegunda dólga í kvöld. Flugdólgar eru alþekktir og eru flestum til ama, helst þó sessunautum sínum. Ég hef setið við hliðina á fólki sem las blaðið í kjöltunni á mér, svaf á mér, lyktaði eins og ostur og så videre. Í kvöld lenti ég í einum slíkum. Skellti mér… meira

Yfirgripsmikil kunnátta

Nú er leikið á Rey Cup og mikið gengur á. Einn hápunkta mótsins hingað til var dómgæsla í einum leik um daginn sem breskur maður og asísk kona hans dæmdu saman. Leikmaður annars liðsins stakk boltanum fram hjá varnarmanni og þaut í gegn. Þá var allt í einu flautað. Frúin hafði dæmt rangstöðu. Menn fóru… meira

Risaslagur á sunnudaginn

Á sunnudaginn fer fram einhver stærsti þungavigtarleikur sumarsins. Þá eigast við turnarnir í íslenskri fjölmiðlum, Sammarinn.com og Fótbolti.net. Leikinn verður 2×30 mínútna 7 manna bolti og fer leikurinn fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ (þar sem litli flugvöllurinn er) kl. 12:00. Öllu verður tjaldað til og Sammarinn ætlar sér sigur. Lið síðunnar skipa: Björn Berg Gunnarsson,… meira

Hver þremillinn gengur á í 1. deild?

Víkingur Ólafsvík og Reynir Sandgerði eru sennilega undarlegustu liðin í íslenska boltanum í dag. Reynismenn hófu tímabilið frábærlega á 3-0 slátrun á Fjölni en hafa klúðrað hverjum leiknum á fætur öðrum síðan þá og sennilega verið teknir í rassgatið oftar en leikmenn Styrmis. Að tapa svo 10-0 í bikarnum gegn ÍBV gengur svo náttúrulega ekki… meira

Enski boltinn á Sýn 2

Þær voru nú viðbúnar breytingarnar sem hafa orðið við flutning enska boltans frá Skjánum yfir til 365 þar sem sýningarrétturinn kostaði þá síðarnefndu mun meira en áður hefur þekkst. Gríðarleg hækkun á verðskrá er helsta breytingin sem verður, en einnig verður bætt mikið við dagskrána. Á mánudaginn kl. 17:00 fæ ég Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóra Sýnar, í viðtal… meira

Hverjir verða meistarar?

Veðbankarnir keppast við að birta líkurnar á því hverjir verða meistarar ensku deildinni. Smellið á "Lesa meira" til að sjá samantekt á líkum 9 helstu veðbanka Englands.. meira

Next Page »