Monthly Archives: December 2006
Fótboltaárið 2007
| December 30, 2006 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Það er auðvitað erfitt að spá fyrir um heilt ár í fótbolta en andskotinn ef við höfum eitthvað betra að gera. Veltum eftirfarandi fyrir okkur (endilega hendið svo einhverri spá inn sem er ekki á listanum): 1. Íslandsmeistarar 2007 / hverjir falla2. Leikmaður ársins 2007 á Íslandi3. Meistarar ensku úrvalsdeildarinnar4. Hverjir falla úr ensku úrvalsdeildinni5.… meira
Uppgjör
| December 25, 2006 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Jæja, þá er komið að því að gera upp árið. Hver finnst ykkur vera: Besta frammistaða í einum leikBesta frammistaða í árVersta frammistaða í einum leikVersta frammistaða í árBesti "nýliðinn" (sem maður hafði ekki heyrt um áður)Bestu kaupinVerstu kaupinÚrvalslið ársins (4-4-2) Ég óska lesendum svo gleðilegra jóla og alls hins besta án nýju ári. meira
Challenge?
| December 23, 2006 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Nýlentur í BNA hef ég strax lent í athyglisverðum umræðum um fótbolta. Bandaríkjamenn virðast hafa miklar mætur á ruðningsreglum og þeirri miklu notkun tækni sem stunduð er í NFL. Umræðan barst þeim hluta NFL þar sem þjálfarar liða geta "Challengað" dóma þjálfara, þ.e. látið stöðva leikinn svo dómarinn sé látinn endurskoða dóm sinn með hjálp… meira
Hver er bestur?
| December 21, 2006 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Nú er verið að tala um að tími Adriano sé liðinn hjá Inter, en hann skrópaði á síðustu æfingu og hefur verið að spilla illa, þegar hann hefur fengið til þess tækifæri. Hann er þá sennilega ekki besti sóknarmaðurinn í dag en hver ætli sé sá besti? Thierry Henry var valinn leikmaður ársins í Frakklandi… meira
Flúnkunýr þáttastjórnandi
| December 21, 2006 | Posted by admin under Tilkynningar |
Sérstök jólaútgáfa Fótbolta á fimmtudegi verður kl. 16:00-18:00 í dag á Útvarpi Sögu. Þáttastjórnandinn geðþekki Björn Berg verður vant við látinn vegna próftöku og tannviðgerða en í hans stað mun Markaþefur sjálfur, Ólafur Már Ólafsson, stýra þættinum. Ólafur er sennilega þekktastur fyrir mark sitt af 70 metra færi í VISA bikarnum í sumar, en hér… meira
Gaman að vera Les Reed þessa dagana
| December 20, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Charlton Athletic er orðið að brandara enska boltans. Liðið hefur því sem næst tryggt sér öruggt fallsæti með hörmulegri frammistöðu það sem af er móti og hver vitleysan virðist reka aðra. Í gær datt liðið út úr bikarnum fyrir Wycombe Wanderes (svipað og ef KR dytti út fyrir Gróttu) á heimavelli og var sigur gestanna víst… meira
Vatican FC
| December 19, 2006 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Stormbloggarinn Páll Vilhjálmsson bendir á skemmtileg ummæli kardinála í Vatikaninu um daginn. Sá sér ekkert því til fyrirstöðu að Vatikanið geti í framtíðinni teflt fram öflugu Seríu-A liði sem keppt gæti við bestu liðin á Ítalíu. Þarabaraþabb. Páfagarður hefur reyndar haldið úti deild síðan 1972 þar sem 5 eru í hvoru liði og eru nú… meira
Lykillinn að sigri West Ham
| December 18, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
West Ham vann frækinn sigur á Man Utd í fyrsta leik Curbishley. Af öllum mönnum var það Reo Coker sem skoraði, maðurinn sem hefur grátbeðið um að fá að yfirgefa félagið. Karakterinn leyndi sér ekki undir lokinn þegar hann harðneitaði að fagna sigrinum með félögum sínum, en Harewood var alveg við það að missa sig.… meira
Rétta hugarfarið
| December 16, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Ástæða er til að óska stuðningsmönnum Newcastle innilega til hamingju með fyrsta bikar félagsins frá 1969. Newcastle eru stoltir sigurvegarar Inter-Toto keppninnar frægu og munar nú um minna. Glen Roeder sagði sjálfur í viðtali að þeir séu afar hamingjusamir með sigurinn og að það væri virðingarleysi að tala um Inter-Toto keppnina sem eitthvað minni keppni… meira
Tippað á meistaradeildina
| December 16, 2006 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Nú hefur loks verið dregið í 16 liða úrslit meistaradeildarinnar og menn þurfa að vera rúmlega vanþakklátir ef þetta er ekki nógu spennandi fyrir þá. Ég ætla að leyfa mér að segja að langt sé síðan svo mörg spennandi lið hafa komist svona langt og drátturinn býður upp á hvern stórleikinn á fætur öðrum. Til… meira


Ný ummæli