Monthly Archives: November 2006

Myndasamkeppni um Eggert

The Guardian hefur efnt til myndasamkeppni um Eggert Magnússon. 2387 myndir skiluðu sér inn en kapparnir hafa valið þær 12 bestu út. Þær eru reyndar ekki allar góðar en Englendingar (enskir eins og Gaupi segir) hafa greinilega húmor fyrir manninum eins og við hér heima. Smelltu hér til að sjá myndirnar. meira

Nýjung á Sammaranum – Myndbandahorn

Með tilkomu Youtube hefur góðum fótboltamyndböndum á netinu fjölgað til muna. Ég hef sett nokkur hingað inn á síðuna en er náttúrulega bara rétt að byrja. Ef menn rekast á góð myndbönd á netinu sem erindi eiga hingað inn mega þeir endilega senda mér póst á bjorn@fisco.is. Myndböndin er að finna undir valslánni vinstra megin, undir því… meira

Ný íþrótt – Urban Sprinting

Neg er sennilega einhver fyndnasti íþróttamaður Englands. Hann er tíður gestur í hinum stórgóðu þáttum Balls of steel sem sýndir eru á Stöð 2 og sýnir þá myndband af nýjustu íþróttagrein sinni. Meðal þeirra leikja sem kappinn hefur samið er að kasta skyndibita úr bíl í vegfarendur og fá stig fyrir verðmæti þess sem hittir… meira

Ofurlaun?

Eins kómísk og umræðan er nú um hin svokölluðu "ofurlaun" er hér á landi á hún þó alveg rétt á sér þegar við ræðum ensku úrvalsdeildina. Undanfarið höfum við séð gríðarlega samninga þar sem leikmenn eru að fá miklar launahækkanir og kosta orðið sumir eins og heilt byrjunarlið liðs í sömu deild. Ég hef tekið hér saman… meira

9 stig frá meistaradeildarsæti

Þrátt fyrir að hafa valdið vonbrigðum í byrjun móts er tímabilið ekki aldeilis búið hjá West Ham því aðeins 9 stigum munar á liðinu og Portsmouth, sem situr í 4. sæti deildarinnar. Þetta er aðeins einu stigi minna en munar á liðunum í 2. og 3. sætinu. Liverpool hefur líka byrjað illa, reyndar hörmulega, en er… meira

Hvað eiga Roberto Carlos og Símun Samúelsen sameiginlegt?

Það er kannski langur vegur frá Keflavík til Real Madrid en Símun Samúelsen, hinn frábæri vængmaður Keflvíkinga, hefur náð að sína svipaða takta og Roberto Carlos. Smelltu hér til að sjá mark Roberto Carlos Smelltu hér til að sjá mark Símunar     meira

Eggert í Meistaradeildina?

The Sun virðist ekki fá nóg af Eggerti Magnússyni og það væri ofsögum sagt að það þurfi að snúa upp á handlegginn á þeim til að þeir geri grín af blessuðum manninum. Höfuðlag hans og nafnið EGG-ert býður kjarneðlisfræðingunum á blaðinu náttúrulega bara upp á einn brandara og hann er óspart notaður. Í ágætri grein Dave… meira

Eggið Magnússon

Ég hef ekki skilað af mér grein hingað í, tjha eitt ár?, en hendi inn einni örstuttri nú eins og ekkert sé sjálfsagðara. Fannst mér bara skylt að deila með ykkur þessum breska leirburði sem ég fann á síðu West Ham manna, en þeir keppast við að finna lag á Eggið okkar Magnússon. Hér er… meira

Nýjasta dólgatískan

Nú þegar við erum búnir að fjárfesta í West Ham mæli ég með því að menn kíki á myndina Green Street Hooligans sem er einmitt um trítilóða stuðningsmenn liðsins. Hápunkturinn er slagur milli stuðningsmanna West Ham og Milwall og það verður fróðlegt að sjá hvernig þessir sömu stuðningsmenn bregðast við þegar þeir frétta að BG… meira

Mistök í leikmannakaupum

Hún er þrálát sagan um að Real Madrid hafi ætlað að kaupa Lee Carsley en fyrir mistök fengið Thomas Gravesen. Það er þó bara þjóðsaga en þó eru til alvöru dæmi um undarleg leikmannakaup…       meira

Next Page »