Monthly Archives: October 2006

Góð lýsing

Rakst á ansi gott myndbrot af lýsingu á leikjum í spænska boltanum, spænski lýsandinn fer á kostum og talar m.a. um "Eidur Gudjohnsen der galactico del Bolton Wanderers". meira

Hættur þess að vera dómari

Dómarar eru áberandi hluti af leiknum og reyna að stjórna honum án þess að vera á nokkurn hátt fyrir. Þetta getur reynst þeim erfitt og fjöldinn allur af myndböndum er til af dómurum sem detta, fá bolta í andlitið, er hrint og fleira. Ég var eitt sinn línuvörður hjá dómara sem fékk þrumuskot í andlitið… meira

FM2007 kominn á fullt

Nú er Football Manager 2007 fyrir nokkru kominn út og félagar okkar á cfm.stuff.is eru byrjaðir að hlaða aukaefni fyrir leikinn á síðuna sína. Helst ber að nefna andlitsmyndir og liðsmerki allra liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Fleira fer svo að detta inn.   meira

Stjörnufans í útvarpinu

Sammarinn verður á Útvarpi Sögu FM99.4 frá kl. 16:00-18:00 á morgun, fimmtudag. Í þættinum ræðum við við tvo leikmenn sem nýlega hafa gengið til liðs við úrvalsdeildarlið, Hannes Þór Halldórsson nýjan markmann Fram og Gunnar Kristjánsson sem strax hefur skipt úr KR í Víking. Guðlaugur Þór Þórðarson formaður Fjölnis kíkir svo til okkar í heimsókn… meira

Hvernig græða menn á fótboltaliðum?

Í umræðunni um Eggert "bindishnút" Magnússon og frændur hans í West Ham hefur lítið borið á vangaveltum um hvernig þessir aðilar ætla sér að hagnast á rekstri félagsins. Hér er jú sennilega um að ræða ósköp venjulega fjárfesta sem eflaust vilja einhverja vexti af þessari fjárfestingu sinni.         meira

Hvers vegna hvetur íþróttahreyfingin til veðmála?

Íslenskar getraunir starfa samkvæmt landslögum og er stjórn félagsins skipuð af menntamálaráðherra til 3 ára í senn. Þar sitja t.d. Eggert Magnússon og Geir Þorsteinsson fyrir hönd KSÍ. Hagnaður af veðmálastarfsemi félagsins rennur svo til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu, en ÍG hafa einkarétt á getraunastarfi hér á landi. Ég get ekki með nokkru móti… meira

Liverpool án auglýsinga?

Liverpool lék án Carlsberg auglýsingarinnar frægu á maganum í leiknum gegn Bordeux á miðvikudaginn. Getur einhver vinsamlegast útskýrt þetta fyrir mér? Fyrst við erum svo að nefna Liverpool búningana ættu menn að vera farnir að venjast þessu Adidas útliti. Hvernig lýst mönnum á það? Er þessi Adidas búningur að gera sig? meira

Markmannamál Chelsea

Petr Cech og Carlo Cudicini eru kaldir úti þannig að Chelsea er vandi á höndum. Er Hilarious að fara að spila í marki dýrasta liðs heims eða verður leitað annað? Nú hefur gosinn sjálfur, Fabien Barthez, boðist til að draga hanskana af hillunni og hefur sent umboðsmann sinn í viðræður við Chelsea um að spila… meira

Craig Gordon

Ég horfði áðan á leik Hibernian og Hearts í skosku úrvalsdeildinni. Síðasti leikur sem ég sá milli þessara liða var einhver sá rosalegasti bardagi sem ég hef séð og í dag var lítið gefið eftir. Eins og flestum er kunnugt eru þetta lið kaþólika og mótmælenda í Edinborg. Venjulega er um mikla markaleiki að ræða… meira

Aukin þjónusta Sammarans

Næsti útvarpsþáttur Sammarans (á fimmtudaginn kl. 16:00-18:00) verður í nýju og glæsilegu stúdiói á Suðurlandsbraut, í stað húss Verslunarinnar eins og verið hefur fram að þessu. Þetta nýja hljóð- og upptökuver er allt hið glæsilegasta og býður upp á ýmsa möguleika. Okkur finnst því gaman að geta sagt frá því að frá og með næsta… meira

Next Page »