Monthly Archives: September 2006

Fyrsti leikurinn á gervigrasi

1-1 jafnteflisleikur Spartak Moskvu og Sporting Lissabon í Meistaradeildinni í fyrradag hefði venjulega ekki náð athygli minni nema fyrir vegna eins athyglisverðs atriðis. Þetta var fyrsti leikurinn sem leikinn hefur verið á gervigrasi í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þessi áfangi markar mjög merkileg tímamót í alþjóðafótbolta því þetta gefur stórum liðum færi á að hugleiða það alvarlega… meira

Umfjöllun um stjóraleiki í útvarpinu á morgun

Í hinum vikulega útvarpsþætti Sammarans á morgun mun m.a. vera rætt um þá nýju stjóraleiki sem væntanlegir eru. Við munum spjalla við Jónatan Friðriksson, manager sérfræðing, um það helsta sem nýju leikirnir munu hafa upp á að bjóða, en það mun vonandi auðvelda einhverjum okkar valið fyrir veturinn. Nú er það nýjast að frétta af Football… meira

Með fullri virðingu fyrir Austur-Evrópubúum

Vladimir Romanov er vissulega merkilegur maður og auðvitað að hluta til ábyrgur fyrir því hve skemmtileg skoska deildin er í dag, en eitthvað segir mér að hann þurfi að sprauta sig niður. Á rúmu ári hafa fjórir stýrt liðinu og Romanov er auk þess fulviss um að skoskir fjölmiðlar séu í hatursherferð gegn þeim. Nú… meira

Hvað er þessi leikmaður að hugsa?

Nýjast atvinnumaður okkar Íslendinga er hinn ungi og efnilegi bliki Viktor Unnar Illugason. Ég veit lítið um þennan unga leikmann og ákvað því að kynna mér hann aðeins. Eins og sönnun rannsóknarblaðamanni sæmir kannaði ég allar heimildir vel og vandlega og eftir að hafa skoðað upplýsingar um hann, verð ég hreinlega að setja stór spurningarmerki… meira

DD Grassmaster

Milton Keynes Dons eru að byggja nýjan og glæsilegan 30’000 manna völl. Grasið á þeim velli verður lagt blöndu af gervi- og lífrænu grasi og er notast við svokallaða DD Grassmaster blöndu (hljómar eins og lounge mix-diskur). UEFA og FIFA hafa samþykkt notkun þessara valla en eiginleikar grassins eru víst nánast alveg eins og á… meira

Sammarinn í samstarf við cfm.stuff.is

Fyrir áhugamenn um stjóraleikina Championship Manager og Football Manager er heimasíðan cfm.stuff.is kærkominn fróðleiks- og aðfangabrunnur. Sammarinn og cfm.stuff.is hafa hafið samstarf og hér á síðunni munum við segja fréttir af leikjunum eftir því sem þær helstu berast félögum okkar á cfm.stuff.is. Meðal þess sem hægt er að nálgast á síðunni er alls kyns viðbætur við… meira

Temmilegasta flykki

Ég hef áður viðrað þá skoðun mína að Marlon Harewood er líklega mest ógnvekjandi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Hann er með afar ófrýnilegt andlit og skornari en andskotinn. Þetta er líklega sá maður í ensku úrvalsdeildinni sem ég myndi hvað síst vilja hitta í dimmu húsasundi. meira

Góður húmor ef satt reynist

Sú saga gengur nú um London að nokkrir stuðningsmenn Tottenham, sem unnu sem verkamenn við bygginu Emerates Stadium, hafi múrað Tottenham fána og trefil undir vellinum. Þetta segja menn vera ástæðuna fyrir slæmri byrjun Arsenal, sem þó vann glæsilegan sigur á United í gær. Ansi góður húmor finnst mér hjá Tottenham mönnum.   meira

Hverjir eru mennirnir?

Við skulum orða það þannig að ég hafi ekki haft mikið að gera.Meira í meira. 1. meira

Auknir peningar í boltanum

Áður en Roman Abramovic keypti Chelsea voru mörg lið í eigu ríkra einstaklinga. Munurinn var hins vegar sá að enginn hafði áður eytt nálægt því jafnmiklu fjármagni í að ná algjörum yfirburðum í knattspyrnuheimunum. Chelsea getur keypt hvern sem er, byggt hvað sem er og ráðið hvern sem er. Í Football Manager vinnur þetta lið allt… meira

Next Page »