Monthly Archives: August 2006
Sammarinn í útvarpinu í dag kl. 15
| August 31, 2006 | Posted by admin under Annað |
Smá breytingar verða gerðar á dagskrá Útvarps Sögu fm99,4 á næstu dögum og Fótbolti á Föstudegi, útvarpsþáttur Sammarans, verður færður til fimmtudaga. Þátturinn í dag verður kl. 15:00 en fastur tími verður kominn á í næstu viku og verður þá auglýstur hér á síðunni. Það helsta sem rætt verður í þættinum í dag verður enski leikmannamarkaðurinn, úrslitakeppni… meira
Hvað er svona heillandi við West Ham?
| August 31, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Greint var frá því í dag að Javier Marscherano og Carlos Tevez væru gengnir til liðs við West Ham. Þetta er víst ekki brandari og Hamrarnir hafa samið við Media Sports Investments, fyrirtæki sem á réttinn á leikmönnunum tveimur (hvað svo sem það þýðir) Hvernig getur eiginilega staðið á þessu? Tevez var eftirsóttur af stærstu… meira
Man City hommavænt félag
| August 28, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Manchester City hefur nú hrint af stað átaki til að freista þess að fá homma og lesbíur á völlinn og til að sækja um störf hjá liðinu. Þeir eiga reyndar ekki efni á Christiano Ronaldo en hafa í samstarfi við Stonewall, réttindasamtök samkynhneigðra, ákveðið að gera félagið homma- og lesbíuvænlegra, m.a. með því minnka fordóma… meira
Ástæðan fyrir mistökum Gallaghers?
| August 25, 2006 | Posted by admin under Léttmeti |
Sammaranum var að berast til eyrna stórfrétt. Eins og menn eru kannski farnir að heyra hefur Dermot Gallagher verið tekinn af lista þeirra dómara sem dæma í ensku úrvalsdeildinni, en það var gert í framhaldi af gulu spjaldi sem hann gaf Ben Thatcher fyrir að hafa nær stútað Pedro Mendes í fyrradag. Það merkilegasta er… meira
Birkir Már í útvarpinu í dag
| August 25, 2006 | Posted by admin under Viðtöl |
Valsarinn sterki Birkir Már Sævarsson kíkir í dag í viðtal til Sammarans. Eins og venjulega verðum við á Útvarpi Sögu, FM99.4, kl. 15:03-16:00. Birkir Már í leik gegn Bröndby meira
Ben Thatcher
| August 24, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Í leik Manchester City og Portsmouth í gær sýndi Ben Thatcher einn mesta hrottaskap sem ég hef séð lengi í boltanum. Hann dúndraði Pedro Mendes niður með olnboganum og rotaði hann. Mendes fékk flog þar sem hann lá og þurfti að fá súrefnisgjöf áður en rokið var með hann á sjúkrahús. Thatcher fékk gult spjal… meira
Gaman að lenda í þessum meiðslum
| August 22, 2006 | Posted by admin under Léttmeti |
Ryan Nelsen, leikmaður Blackburn, á ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Hann verður frá keppni í þrjár vikur vegna meiðsla í rassi. Þessi harðjaxl, sem er fyrirliði Nýsjálenska landsliðsins, reif rassvöðva sem hafði angrað hann allt síðasta tímabil. Harry Kewell er líka að basla við athyglisverð meiðsli, en hann fékk blöðrur á fæturnar. Sýking komst… meira
Besta framherjaparið
| August 21, 2006 | Posted by admin under Hugleiðingar |
Síðan Heskey fór frá Liverpool hefur umræðan um hættulegasta framherjaparið í boltanum orðið æ meira áberandi. Við höfum séð nokkur sterk í gegnum tíðina; Yorke og Cole, Raúl og Ronaldo, Eið og Hasselbaink. En hverjir eru bestir í dag? meira
Hvað varð um Justin Georcelin?
| August 19, 2006 | Posted by admin under Enski boltinn |
Ég byrjaði að spila FM2006 um daginn, en ég hafði þangað til ákveðið að taka mér algjört frí frá þessum leikjum. Að venju byrjaði ég að fletta upp gömlum hetjum, Mark Kerr, Kerlon, Gunnari Kristjánssyni og fleirum. Einn þeirra sem ég hafði stundum keypt í eldri leikjum var ungur leikmaður Northampton, Justin Georcelin, en hann… meira
Flott myndband með Jóa Kalla
| August 18, 2006 | Posted by admin under Léttmeti |
Jóhannesar Karls Guðjónssonar er greinilega sárt saknað í Leicester en heimamenn hafa hent saman í gott myndband með kappanum. meira


Ný ummæli