Monthly Archives: June 2006
Real ruglið
| June 30, 2006 | Posted by Innsend grein under Spænski boltinn |
Það væri helvíti gott liðið sem frambjóðendurnir til forseta Real gætu stillt upp ef þeir ynnu saman og efndu loforðin sem þeir hafa verið ósparir við að gefa út síðustu vikurnar. Frambjóðendurnir hafa allir lofað því að verði þeir kosnir séu þeir með leikmenn sem ólmir vilji spila fyrir sig. meira
Heitustu bitarnir í skoska boltanum!
| June 28, 2006 | Posted by admin under Skoski boltinn |
Þegar talið berst að félagsskiptum í Evrópuboltanum þá falla yfirleitt öll smærri félagsskipti í skuggan af þeim stóru. Nóg er að gera hjá þeim smærri sem keppast við að næla sér í hágæða leikmenn án þess að of mikið fari fyrir þeim, til þess eins að halda þeim stærri frá. Þau fara með veggjum og… meira
Ein strembin
| June 28, 2006 | Posted by admin under Getraunir |
Palli setti getraun hingað inn um daginn sem hlaut litlar undirtektir. Ég skora á menn að halla sér yfir þessa, menn eiga að vita svörin ef þeir pæla vel og lengi. meira
Valentin Ivanov gefið rauða spjaldið
| June 26, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
Alveg síðan Valentin Ivanov dæmdi fullkomlega löglegt mark Hermanns Hreiðarssonar af í Þýskalandi hef ég haft megna óbeit á þessum FIFA-dómara. Þau skipti önnur sem ég hef séð hann hef ég alltaf fengið sting í hjartað, vitandi það að einhver þau mistök í dómgæslunni verði gerð í leiknum sem eyðileggi hann. Í óskaplega kunnuglegum aðstæðum… meira
Motson gerir grín að Herði Magnússyni
| June 23, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
John Motson, hinn frægi enski knattspyrnulýsandi, var í viðtali á BBC um daginn. Hann hefur verið að lýsa á HM og var að tala um hvernig það væri að lýsa þessum leikjum. Honum fannst ástæða til þess að minnast sérstaklega á Hörð okkar Magnússon við ensku þjóðina. Hann var að lýsa leik Englands og Svíþjóðar… meira
Alvarleg mistök á HM
| June 23, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
Ekki er um almennilegt heimsmeistaramót að ræða nema dómgæslan sé til umræðu. Dómgæslan á þessu HM hefur verið upp og ofan en í gær fór hún í nýjar lægðir. Einn besti dómari ensku knattspyrnunnar, Graham Poll, gerðist sekur um óhemju vandræðileg mistök á leik á HM. Það er eitt að gera þessi mistök í 4.… meira
F-riðill: Lokaumferð
| June 23, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
F riðli lauk í gærkvöldi; Ástralar stálu senunni í riðlinum og slógust í för með Brasilíu í 16 liða úrslitin, en þeir gerðu 2 – 2 jafntefli við Króata. meira
G-riðillinn: Allt á suðupunkti
| June 22, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
Á morgun lýkur G-riðli með tveimur leikjum, Suður-Kórea spilar gegn Sviss og Frakkar spila við gömlu nýlenduna sína í Tógó. Tógó-búar eru þegar dottnir úr leik, en Frakkar munu berjast fyrir lífi sínu. Það hefur ýmislegt gengið á í G-riðli og ekki öll úrslit eftir bókinni. meira
HM á RÚV 2010!
| June 22, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
Sammarinn getur staðfest, fjölmiðla fyrstur, að heimsmeistarakeppninni í fótbolta 2010 verður sjónvarpað í Ríkissjónvarpinu. Þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir þá sem ekki tíma 15’000 kalli í áskrift heldur vilja frekar að skattpeningum sé splæst. Ég tek hattinn ofan fyrir þeim á RÚV, því ég lít á það sem samfélagslegt réttlætismál að enginn Íslendingur,… meira
Eftir bókinni
| June 22, 2006 | Posted by admin under HM 2006 |
Jæja þá er það ljóst að það eru Portúgalir og Mexíkóar sem fara upp úr D-riðlinum í 16 liða úrslit. meira


Ný ummæli