Monthly Archives: April 2006

Þorbergur Aðalsteinsson spáir í Landsbankadeildina

Sammarinn heldur áfram að leita skoðana sérfræðinga á íslenska boltanum í sumar. Að þessu sinni höfum við fengið til liðs við okkur góðvin síðunnar, tvöfaldan Ólympíufara og margfaldan afreksmann í handknattleik, Þorberg Aðalsteinsson. Þorbergur hefur nú lagt harpixið á hilluna en starfar enn hjá HSÍ og fylgist vel með því sem gerist í íþróttunum. Hann… meira

Val sammarans á leikmönnum ársins í Skotlandi.

Sú stórfurðulega staða er uppi núna um alla Evrópu (allaveganna á Bretlandi) að búið er að velja leikmenn ársins. Blaðamenn, áhorfendur, leikmenn og hvað það heitir hafa opinberaða sínar niðurstöður, þrátt fyrir það að tímabilið sé enn í fullum gangi. Við á sammaranum erum ekki minni menn og því gerum við það sama. En það… meira

Lennart Johansson áfram?

Forseti UEFA, Lennart Johansson, íhugar nú að bjóða sig fram til endurkjörs á næsta ári. Johansson hefur áður lýst því yfir að hann ætli sér að hætta í embættinu og einbeita sér að fiskveiði og öðrum áhugamálum sínum en nú verða það hugsanlega fjögur ár í viðbót. ”Enginn hefur sent inn umsókn og þeir sem… meira

Fullkomnasti völlur heims ?

Gamla greinin þessa vikuna er frá árinu 2006. Páll Kristjánsson kynnti sér þá glæsilegan heimavöll Vitesse Arnheim.  Eitt helsta vandamál stórra leikvanga í dag er að fá sólina til þess að skína á grasið. Stórar stúkur og jafnvel yfirbygging verður þessa valdandi að grasið fær ekki næga sólarorku sem veldur því að það deyr. Þá þarf… meira

Middlesbrough – Steaua

Í gærkvöldi sá ég einhverjar skemmtilegustu 40 mínútur af knattspyrnu sem ég hef séð. Það er að segja að seinni hálfleiknum í Liverpool-AC Milan undanskildum. Evrópukeppni félagsliða hefur ekki náð að vekja áhuga minn þetta árið. En í gærkvöld leit ég á seinni hálfleik Steaua og Boro og þetta var afar fjörugur og dramatískur leikur… meira

Scolari ráðinn þjálfari enska landsliðsins

Samkvæmt blöðunum hér í Englandi hefur Luis Felipa Scolari samþykkt að gerast þjálfari enska landsliðsins eftir að samningi hans hjá Portúgal lýkur. Viðbrögðin við þessum fréttum eru flestar á eina leið: Undrun og hneykslun. Munu aðilar á borð við Harry Redknapp, Gary Linkeker, Howard Wilkinson svo nokkur dæmi séu nefnd, hafa gagnrýnt ákvörðunina. Lineker segir… meira

Zinedine Zidane

Í tilefni þess að einn af bestu knattspyrnumönnum síðari tíma, Zinedine “Zizou” Zidane,  hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir heimsmeistarakeppnina hef ég ákveðið að líta aðeins á ferilinn hjá manninum sem hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég sá hann spila með Bordeaux fyrir nokkrum árum. meira

Steingrímur J. spáir í íslenska boltann

Nú styttist í að íslenska deildarkeppnin rúlli af stað og Sammarinn mun fylgjast vel með og greina frá því helsta sem þar gerist. Á næstunni verðum við með létta upphitun þar sem við munum leita til fróðra manna og taka á þeim púlsinn varðandi deildina. Allir pennar Sammarans munu svo sameinast í opinberri spá síðunnar fyrir Landsbankadeildina… meira

“Autobús londonense de dos pisos”

Í gær fór fram seinni leikur Villarreal og Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en eins og flestir vita þá náði N-Lundúnarliðið að hanga á 0-0 jafntefli þökk sé markvörslu Jens Lehmanns úr víti Juan Román Riquelme á síðustu mínútum leiksins og fór því áfram 1-0 samtals. Þar sem flestir fjölmiðlar, íslenskir sem enskir, eru búnir að… meira

Arsenal 06′ = Liverpool 05′

Þegar maður skoðar árangur Arsenal liðsins í vetur þá finnst manni sem maður hafi upplifað þetta allt saman áður. Enskt lið sem enginn hafði trú á virðist ætla að fara alla leið. Einhvers staðar hef ég heyrt um þetta. Jú, Arsenal liðið á margt sameiginlegt með Liverpool liðinu í fyrra. Bæði liðin léku illa í… meira

Next Page »