Monthly Archives: August 2005
INTER spáð sigri í Serie A!!!
| August 31, 2005 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Gerð var könnun á vefsíðu einni um hvernig liðum og leikmönnum gengi á þessari leiktíð í Serie A. Niðurstöður voru birtar í vikunni og ætla ég að deila þessu með ykkur og smella mínu mati inn við hverri og einni niðurstöðu. meira
Uppeldisstefna
| August 31, 2005 | Posted by admin under Hugleiðingar |
[Gamla grein vikunnar er frá árinu 2005. Jón Bjarni Kristjánsson, laganemi, listamaður og spekúlant, veltir þar fyrir sér óskapnaðnum sem uppeldisstefna er.] Á mælikvarða mannanna er ég, greinarhöfundur, enn tiltölulega ungur að árum. Þó er það þannig að persónulega finnst mér lífspan mitt vera orðið langt, teygt og togað og á öllum þessum árum hefur ýmislegt farið… meira
1.umferð – nánast allt eftir bókinni!
| August 30, 2005 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Fyrstu umferð í ítalska boltanum lauk á sunnudagsköld með heimasigri meistara Juve gegn Chievo. Það var enginn annar en David Trezeguet sem skoraði eina mark leiksins á 36.mínútu með skalla og vonandi fyrir Juventus að hann spili meira í ár en í fyrra þar sem hann var meiddur hálft tímabilið. Kannski styrkleikamerki að vinna deildina… meira
Bestu/mikilvægustu leikmenn meistaradeildarinnar
| August 29, 2005 | Posted by admin under Meistaradeildin |
Í seinustu viku var dregið í riðla meistaradeildar Evrópu og um leið veitt verðlaun til þeirra leikmanna sem sköruðu hvað mest fram úr í keppninni að mati sparkspekinga. Það var alveg ótrúlegt hvað það var hægt að gera þessa athöfn leiðinlega en hver kempan á fætur annarri var dregin fram á sviðið til þess að… meira
Collina hættur
| August 29, 2005 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Besti dómari heims er hættur að dæma. Sá maður sem sýnir einhverja mestu yfirferð sem maður sér hjá dómara þarf nú að leggja flautuna á hilluna vegna þess að samkvæmt ítölskum reglum er hann orðinn það gamall að ekki er hægt að treysta honum lengur. Ég á afskaplega erfitt með að skilja rökin á bak við það… meira
Loksins, loksins!
| August 27, 2005 | Posted by admin under Ítalski boltinn |
Jæja, þá er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir – eða ég allavega. Fyrsta greinin mín og ítalski boltinn að fara af stað á morgun. Ég er einn af þeim fáu sem met ítalska boltann meira en ofmetnu ensku deildina svo skiljanlega iða ég í skinninu af spenningi. Það þarf svosem engan… meira
Landslið í heimsklassa, félagslið sem sjúga: Seinni hluti
| August 26, 2005 | Posted by admin under Sænski boltinn |
Í fyrri hluta þessa greinaflokks var fjallað um stöðu sænskrar knattspyrnu samanborin við aðrar deildir álfunnar. Landsliðið er með þeim allra bestu í Evrópu, en hið sama á engan veginn við deildarkeppnina. Hún er metin sú 24. sterkasta í Evrópu samkvæmt UEFA og er á niðurleið. Í þessum hluta er ætlunin að sýna fram á… meira
Landslið í heimsklassa, félagslið sem sjúga: Fyrri hluti
| August 25, 2005 | Posted by admin under Sænski boltinn |
Sænskur fótbolti er þversagnakenndur. Landsliðið er með þeim bestu í álfunni og gæti unnið hvaða landslið í heimi á góðum degi. Undir stjórn Sven-Göran Eriksson urðu IFK Gautaborg Evrópumeistarar á níunda áratug síðustu aldar og í upphafi þess tíunda voru þeir stærsta félagsliðið á Norðurlöndunum og voru að gera fína hluti í Evrópukeppnum. Svo fór… meira
Spá(nn) 2005/06
| August 24, 2005 | Posted by Kjartan under Spænski boltinn |
Núna um næstu helgi byrjar boltinn loks aftur að rúlla á Spáni með þremur leikjum á laugardagskvöldinu. Meistararnir í Barcelona hefja titilvörnina í Vitoria gegn Alavés sem eru nýkomnir aftur upp í efstu deild en á sama tíma fer fram uppgjör Baskaliðana í Bilbao, Athletic gegn Real Sociedad. Stórleikur umferðarinnar er þó leikur Real Betis… meira


Ný ummæli