|
Höfundur: Bjössi
|
|
Thursday, 28 August 2008 |
|
Brandari dagsins er af dýrari gerðinni, en það er enginn annar en Ásmundur Haraldsson þjálfari Gróttu sem splæsir að þessu sinni. Ásmundur var í "hvað er að frétta?" á fotbolti.net og sagði aðspurður um fótboltaáhuga á Seltjarnarnesi:
"Það er gríðarlegur fótboltaáhugi á nesinu" Undir það taka sennilega þeir 15 sem mæta að meðaltali til að styðja liðið. Þetta er vissulega innanhússhúmor hjá Ásmundi og þeir sem þekkja til springa örugglega út hlátri, aðra bið ég afsökunar á tímasóuninni. Sammarinn verður svo mættur á fréttamannafund hjá Óla Jó í hádeginu þar sem hann tilkynnir íslenska hópinn. Við skellum kannski á hann einni laufléttri "hvað er að frétta af landsliðinu?".
|