|
Rafa Benitez má með sanni kalla umdeildan þjálfara. Margir hafa haft sínar efasemdir um hann allt frá komu hans til félagsins 2004 en hann virðist þó njóta almenns stuðnings áhangenda liðsins.
John Modson, lýsandinn frægi, varpaði fram þeirri spurningu á BBC um daginn hvort metnaður Liverpool væri annar og minni en hann var áður en Benitez tók við. Það er svo langt síðan Liverpool virtist eiga alvöru möguleika á enskum titli að Gary Lineker sagði í djóki fyrir heimaleikinn gegn Middlesbrough um helgina að leikmenn Boro, með 22 ára meðalaldur myndu kannski ekki eftir því að "Liverpool used to be really good". Gerard Houllier var látinn fara þar sem hann hafði ekki náð að skila enskum deildartitli í hús á fimm árum. Benitez er nú að hefja sitt fimmta tímabil og hefur í raun aldrei verið líklegur til að vinna deildina. Í ár heyrist ekki í nokkrum manni spá Liverpool titlinum. En hvers vegna ekki? Frá því Benitez tók við hefur hann eytt 200 milljónum punda í leikmenn. Meðal þeirra eru 5 dýrustu leikmenn í sögu félagsins en ekki er að merkja að liðið sé mikið betra en fyrir 5 árum. Benitez hefur skilað í hús FA bikar og Meistaradeildinni en þar með er það upp talið. Houllier skilaði tveimur FA bikurum, einum deildarbikar og einum Evrópubikar og var rekinn fyrir að ná ekki nógu góðum árangri. Er nema von að Modson spyrji hvort metnaður félagsins sé minni en áður. Mér finnst reyndar góður punktur að einhver betri þurfi að taka við ef Benitez fer og ég veit að margir gældu við þá hugmynd að fá Mourinho. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að Liverpool sé stærri klúbbur en svo að hann eigi að sætta sig við þann árangur sem náðst hefur undanfarinn áratug. Spurningunni um hvort betri þjálfarar séu fáanlegir er hreinlega hægt að svara með að líta á árangur Benitez í starfi. Hann hefur ekki staðið sig nógu vel og því miður lítur ekki út fyrir að Liverpool sé að færa sig í átt til Englandsmeistaratitils og því þarf að leita annað... og svo ég sé ómálefnalegur þá hef ég aldrei þolað menn sem fagna ekki mörkum. Það er bara eitthvað rangt við þannig lagað.
|