Dæmi um slakar færslur íslenska liðsins
Höfundur: Bjössi   
Friday, 22 August 2008

 Eins og áður segir var ég ekkert allt of hrifinn af hreyfingum íslensku landsliðsmannanna inni á vellinum í landsleiknum um daginn. Helst var það Eiður sem reyndi að koma sér í svæði og spila þríhyrninga, en annars virtist enginn áhugi á því.

Lítum á eitt dæmi úr leiknum (þið afsakið krotið):

Hér er Bjarni Ólafur með boltann í vinstri bakverðinum. Fyrir framan hann er Azeri og einnig hægra megin við hann. Jóhann stendur á kanntinum og fylgist með, býður sig hvorki í hlaupið né niður á miðjuna til að opna fyrir sendingarmöguleika.

Hermann stendur einhverra hluta vegna töluvert framar en hann ætti að vera og horfir á, með sóknarmann milli sín og Bjarna en getur auðveldlega bakkað niður og boðið sig í boltann. Kristján Örn er of langt frá til að hætt sé á að krossa boltann yfir og er ekki að bjóða sig í boltann, sennilega þar sem Hermann á að vera þarna megin í vörninni.

Hvað á Bjarni að gera í þessari stöðu? Það hefur enginn leikmanna áhuga á að auðvelda honum eitt né neitt. Þetta var alveg lýsandi fyrir leik liðsins í leiknum. Þetta endaði náttúrulega með því að Bjarni reyndi að bomba upp kantinn, vonandi að Jóhann tæki hlaupið, en boltinn endaði í innkasti. Því miður var þetta allt of oft svona og ég hef ekki mikla trú á liðinu ef það heldur þessu áfram.

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Eggert   |2008-08-22 22:10:42
Þegar ég var 7ára, þá æfði ég fótboltal með Haukum.
Þar var þjálfari maður að nafni Eiki brabra. Gott nafn.
Dagskipunin var að þegar miðja var tekin, þá var sent á þann sem gat sparkað lengst, og hann bara negldi upp völlinn, eins langt og mögulegt var.
Hvers vegna landslið Íslands beitir sömu brögðum og krakkar í 6.flokki, er mér hulin ráðgáta.
Sverrir   |2008-08-23 21:04:20
Þetta krot er aðeins of pro Bjössi, neita að trúa því að þetta hafi ekki verið gert í einhverju forriti.
dúddi   |2008-08-23 23:01:23
Ég kem ekki auga á tenginguna.
Óli Jóns   |2008-08-24 01:31:15
Hvernig væri bara að sleppa því að hafa Bjarna í liðinu!!! Við hljótum að hafa einhvern frambærilegri vinstri bakvörð en hann??
Bjössi   |2008-08-24 18:50:14
Þessi vinstri bakvarðarstaða hefur löngum verið vandamál fyrir landsliðið. Það sést á því að Indriði Sigurðsson (miðvörður), Arnar Þór (miðjumaður) og Hjálmar Jónsson (brandari) hafa verið látnir spila hana.

Mér finnst Bjarni mjög góður leikmaður þó hann hafi verið arfaslakur gegn Azerbaijan, en sennilega mun Hermann þó dekka þessa stöðu í undankeppninni og Ragnar detta inn í halfsentinn.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."