Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
Leiðin að 18 - Deleted Scenes
Enski boltinn
Höfundur: Gunnar Birnir   
Saturday, 22 May 2010

Í umfjöllun minni um liðin, Manchester United og Liverpool notaðist ég nokkuð við tilvitnanir í þjálfara og leikmenn. Allt hefur þó sín takmörk og því birtist þar aðeins brot af þeim tilvitnunun sem ég hafði safnað saman. Þessar tilvitnanir eru náttúrulega flestar tengdar umræddum liðum en þó ekki allar. Eflaust er ég að sleppa einhverjum gullmolum og auðvitað er til fjöldi góðra ummæla ótengdum þessum liðum sem væri gaman að heyra ef einhver lumar á þeim.

Hér eru þó þær tilvitnanir sem mér fannst bestar af þeim sem ég hafði tekið saman en fengu ekki að vera með.

Lesa meira...
 
Stefán Logi í Fótboltaþættinum í dag
Tilkynningar
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Friday, 21 May 2010

Stefán Logi - mynd fengin af heimasíðu Leifturs - www.leiftur.isStefán Logi Magnússon markvörður Lilleström verður í spjalli í Fótboltaþættinum á Útvarpi Sögu í dag kl 17. Það er óhætt að segja að það hafi skipst á skyn og skúrir hjá Stefáni Loga á ferlinum en á yfirstandandi tímabili hefur hann farið á kostum í marki Lilleström sem situr í 4. sæti deildarinnar. Rætt verður við Stefán Loga um lífið í Noregi, nývalinn landsliðshóp og svo úrslitaleik Meistaradeildar þar sem fyrrum félagar hans í Bayern Munchen verða í sviðsljósinu.

Í þættinum verður ennfremur farið yfir leiki gærkvöldsins í Pepsi deildinni.

Fótboltaþátturinn kl 17 á Útvarpi Sögu FM 99.4 alla mánudaga og föstudaga og svo hér á Sammaranum fljótlega að útsendingu lokinni.

 
HM2010 - Write the future
HM 2010
Höfundur: Óttar   
Friday, 21 May 2010

Nike og önnur stórfyrirtæki nýta sér viðburði eins og heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu til að búa til fáránlega dýrar og oft flottar auglýsingar. Því kemur ekki á óvart að fyrir mótið sem hefst innan skamms hefur Nike dregið allar stjörnunar sínar í eina djúsí auglýsingu.

 

 
Blood doping
Doktorinn
Höfundur: Eggert   
Friday, 21 May 2010
blood

Íþróttamenn hafa í gegnum tíðina gengið ansi langt til að ná meiri árangri í sinni íþrótt. Fyrir ekki svo löngu, allavega í kosmísku samhengi, þá voru fótboltamenn kannski ekki í sem bestu formi (hugsið ca 100 ár aftur í tímann). Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar - menn æfa meira, passa mataræðið betur og svo svindla menn líka. Sem dæmi þá þjáðust allir í ólympíuliði Kanada fyrir síðustu Ólympíuleika af asthma - þannig mega íþróttamenn nota berkjuvíkkandi lyf sem hjálpa þeim að anda með minni mótstöðu.

Menn nota hinar ýmsustu aðferðir til að svindla á kerfinu, þ.e.a.s. sínum eigin líkama. Mig langar að aðeins að kíkja nánar á þennan leiðinlega part af íþróttum nútímans. Byrjum á blóð-dópi. 

Lesa meira...
 
Totally shit from the start
Léttmeti
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Thursday, 20 May 2010

Það er óhætt að segja að Frakkinn Yann Kermorgant hjá Leicester hafi skráð sig í sögubækur félagsins 'for all the wrong reasons' um daginn. Leicester mætti þá Cardiff í undanúrslitum umpsils B-deildar og eftir frækinn 3-2 útisigur í síðari viðureigninni þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þrjár fyrstu spyrnur beggja liða rötuðu í markið en þá var röðin komin að Frakkanum. Stuðningsmenn Leicester á vellinum og heima í stofu héldu niðri í sér andanum enda pressan gríðarleg. En Kermorgant ískaldur reyndi að chippa boltanum í mitt markið sem auðvitað tókst ekki. Leicester klúðraði næstu spyrnu líka og duttu út. Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Leicester séu ósáttir við sinn mann (örugglega ósáttir við mig að ég kalli hann 'þeirra' mann) og e-ir snillingar sömdu snilldartexta við Bonnie Tyler slagarann "Total Eclipse of the Heart". Þetta er svokallað skylduáhorf.

 

Lesa meira...
 
Quiz í Quiz stað
Tilkynningar
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Wednesday, 19 May 2010

Næsta Fótbolta Quiz Sammarans verður fimmtudagskvöldið 27. maí enda heil umferð í Pepsi deildinni nú á fimmtudag. Quiz-óðir menn ættu þó ekki að örvænta því þeir geta fengið vikulega útrás í knattspyrnufróðleik á Pub Quiz KR klúbbsins á föstudagskvöld. Líklegt er að Gummi Ben nái í 6 stig í Vesturbæinn á einni viku enda hefur frammistaða hans í spyrilshlutverkinu hingað til verðskuldað 3 stig. Allir knattspyrnuunnendur eru velkomnir en í fréttatilkynningu frá Hjörvari Ólafssyni hjá KR klúbbnum segir:

Sjá meira.

Lesa meira...
 
Búllugetraunin
Getraunir
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Wednesday, 19 May 2010

Nú þegar sumarið fer að nálgast er ekki úr vegi að koma sér í sundlaugabakkaform en þó mega menn ekki gleyma því að njóta augnabliksins. Það eru nefnilega tvö eldheit og kófsveit Tilboð Aldarinnar á Hamborgarabúllunni handan við hornið. Það eina sem þið þurfið að gera er að svara einni einfaldri spurningu sem eins og venjulega er á myndbandsformi.

Svör sendist á tumi[hja]sammarinn.com og er getraunin opin til miðnættis.

Svar: Mohamed Sissoko

Sigurvegari: Magnús Ægisson

Smellið á meira til að reyna við getraunina.

Lesa meira...
 
Íslenski boltinn byrjaður að rúlla
Íslenski boltinn
Höfundur: Ari   
Tuesday, 18 May 2010
Pepsi deildinÁhugamenn um íslenska knattspyrnu eru nú loksins byrjaðir að smjatta á fréttum um íslenska boltann því lengsta undirbúningstímabli veraldar er loks lokið og boltinn byrjaður að rúlla í KSÍ deildunum. Umfjöllunin í ár hefur verið með óvenju miklu móti finnst mér og spenningurinn hjá aðdáendum liðanna eftir því. Við skulum aðeins kíkja hvað hefur verið að gerast hingað til.
Lesa meira...
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>

Results 92 - 104 af 1150
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color