Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
Franz Beckenbauer
Þessir fótboltamenn..
Höfundur: Axel Freyr   
Monday, 31 May 2010

franzbeckenbauer.jpgFágunin var slík að svo var um talað svo ekki sé nefnt sjálfstraustið. Franz Anton Beckenbauer, einn besti knattspyrnumaður allra tíma á skuldlaust réttinn á því að vera í hópi hetja sem hafa leikið á HM, stærsta sviði knattspyrnunnar. Við skulum renna aðeins yfir afrekalistann hjá Keisaranum. Mynd: HM 74 Þýskalandi - Fyrirliðinn heldur í fyrsta sinn á nýja bikarnum

  

Lesa meira...
 
Fótbolta Quiz Sammarans #26 - Spurningarnar
Getraunir
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Saturday, 29 May 2010

Fín stemmning á 26. Fótbolta Quiz-inu síðasta fimmtudag. Þemað var íslenskur fótbolti og sjaldan eða aldrei hefur meðalskorfið verið jafnhátt en öll liðin nema eitt voru með yfir 20 stig. Glæsileg verðlaun að vanda, kassar af bjór, metrar af bjór auk þess sem nokkur lið nældu sér í frían öl með því að svara bjórspurningunni rétt. Auk þess fengu keppendur miða á landsleik Íslands og Andorra sem fer fram á Laugardalsvelli síðar í dag. quiz_2.jpg

Vinningshafar voru:

  1. Ásgeir Ásgeirsson og Garðar Gunnar Ásgeirsson 29/30
  2. Jón Ólafur Stefánsson og Stefán Ari Stefánsson 27/30
  3. Andri Stefánsson og Elvar Geir Magnússon 26/30

Næsta keppni verður fimmtudaginn 10. júní þegar við verðum með HM þema.

Smellið á meira til að glíma við spurningarnar.

Lesa meira...
 
Salma mætir, en þú?
Tilkynningar
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Thursday, 27 May 2010

Salma Hayek - fastagestur á Pub Quiz SammaransHvaða þjóðþekkta rithöfund beit Guðjón Þórðarson á lokahófi KSÍ árið 1993? Hver skoraði mark Íslands í 1-1 jafnteflinu gegn Frökkum á Laugardalsvelli árið 1998? Eru Guðmundur Hreiðarsson markvarðarþjálfari og Hermann Hreiðarsson landsliðsfyrirliði bræður?

Ef þú telur þig vita svarið við einhverri þessara spurninga skaltu láta sjá þig á Pub Quiz Sammarans á English Pub í kvöld. Alvöru fótboltastemmning. Ef þú ætlar að sitja heima og horfa á seinna undanúrslitakvöldið í Euroision, þá er þér ekki viðbjargandi.

  • 2 saman í liði
  • 30 fótboltaspurningar
  • Ókeypis þátttaka og stór bjór á 500 kjell
  • Bjórspurningin
  • Vegleg verðlaun

Þema: Íslenskur fótbolti (félagslið, landslið, atvinnumenn, o.s.frv.)

Spurningar úr eldri keppnum auðvitað undir 'Pub Quiz' í valmyndinni hér að ofan.

 
Búllugetraunin
Getraunir
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Wednesday, 26 May 2010

Búllugetraunin á sínum stað hér á Sammaranum og ekkert leiðinlegt að rölta í blíðunni niður á Geirsgötu og gæða sér á þykku og sveittu Tilboði Aldarinnar hjá Búllunni. Í þessari viku rifjum við upp einn vandræðalegasta landsleik Íslands fyrr og síðar. Nei því miður erum við ekki með myndband úr 14-2 tapinu gegn Dönum og því síður 6-0 tapinu fyrir Dönum á sama stað löngu síðar. Við höldum hins vegar til Svíþjóðar þar sem ástandið var heldur betur vandræðalegt.

Svör sendist á tumi[hja]sammarinn.com 

Svar: Ívar Ingimarsson

Sigurvegari: Sigurður "Diddi" Sveinsson

Lesa meira...
 
Húmor í stúkunni
Enski boltinn
Höfundur: Gunnar   
Wednesday, 26 May 2010

Nú fer HM alveg að bresta á okkur með sinni litadýrð og dramatík. Aðdáendur alls staðar úr heiminum munu ferðast til Suður-Afríku til að styðja sína þjóð til sigurs og í raun er HM í fótbolta hálfgerð karnival stemning og litadýrðin og hátíðin eru óviðjafnanleg.

En það er alveg sama hversu litirnir eru fjölbreyttir, hversu hátt áhorfendur æpa og hversu mikið þeir skvetta í sig....aldrei munu þeir ná sömu hæðum í húmor og breskir aðdáendur. Breski húmorinn getur að sjálfsögðu orðið rætinn og ljótur...en í eftirfarandi samantekt ætlum við að einbeita okkur að skemmtilegum, og hárbeittum húmor enskra knattspyrnuvalla.

 

 

Lesa meira...
 
David Ginola - Glæsimennið frá Gassin
Þessir fótboltamenn..
Höfundur: Axel Freyr   
Monday, 24 May 2010

ginola.jpgKnattspyrnumaður, fyrirsæta, leikari, einfari, glansblöð, hvítar strendur og fagur makki. Upptalningin gæti haldið áfram ef einn ætti að finna orð til að lýsa David Ginola en við látum staðar numið. David Ginola gerði garðinn frægann hjá Paris Saint German, Newcastle og Tottenham Hotspurs og var óumdeilanlega á meðal þeirra bestu þegar hann var í stuði. Við skulum kíkja aðeins á andlit L´oreal til margra ára.

Mynd: Franski hjartaknúsarinn nýkominn til Tottenham, hvílíkur pakki!

Lesa meira...
 
Leiðin að 18 - Deleted Scenes
Enski boltinn
Höfundur: Gunnar Birnir   
Saturday, 22 May 2010

Í umfjöllun minni um liðin, Manchester United og Liverpool notaðist ég nokkuð við tilvitnanir í þjálfara og leikmenn. Allt hefur þó sín takmörk og því birtist þar aðeins brot af þeim tilvitnunun sem ég hafði safnað saman. Þessar tilvitnanir eru náttúrulega flestar tengdar umræddum liðum en þó ekki allar. Eflaust er ég að sleppa einhverjum gullmolum og auðvitað er til fjöldi góðra ummæla ótengdum þessum liðum sem væri gaman að heyra ef einhver lumar á þeim.

Hér eru þó þær tilvitnanir sem mér fannst bestar af þeim sem ég hafði tekið saman en fengu ekki að vera með.

Lesa meira...
 
Stefán Logi í Fótboltaþættinum í dag
Tilkynningar
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Friday, 21 May 2010

Stefán Logi - mynd fengin af heimasíðu Leifturs - www.leiftur.isStefán Logi Magnússon markvörður Lilleström verður í spjalli í Fótboltaþættinum á Útvarpi Sögu í dag kl 17. Það er óhætt að segja að það hafi skipst á skyn og skúrir hjá Stefáni Loga á ferlinum en á yfirstandandi tímabili hefur hann farið á kostum í marki Lilleström sem situr í 4. sæti deildarinnar. Rætt verður við Stefán Loga um lífið í Noregi, nývalinn landsliðshóp og svo úrslitaleik Meistaradeildar þar sem fyrrum félagar hans í Bayern Munchen verða í sviðsljósinu.

Í þættinum verður ennfremur farið yfir leiki gærkvöldsins í Pepsi deildinni.

Fótboltaþátturinn kl 17 á Útvarpi Sögu FM 99.4 alla mánudaga og föstudaga og svo hér á Sammaranum fljótlega að útsendingu lokinni.

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>

Results 79 - 91 af 1143
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color