|
HM 2010
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Monday, 12 July 2010 |
|
Þá er mánaðarveislu af fótbolta lokið. Nýir heimsmeistarar krýndir og mjög fáir sem geta fært góð rök fyrir því að fyrsti HM titill Spánverja hafi ekki verið verðskuldaður. Lengi framan af móti voru menn á því að heimsmeistarakeppnin væri einhver sú slakasta og leiðinlegasta í manna minnum. Dómgæsla á mótinu var harðlega gagnrýnd og enn vöknuðu spurningar um hvort styðjast ætti við tækni til þess að koma í veg fyrir mistök dómara. Stórþjóðir ullu vonbrigðum og Mark Van Bommel gerði knattspyrnuheiminum greiða og lagði landsliðsskónna á hilluna. Sem betur fer ekki sem heimsmeistari. Á öllu jákvæðari nótum komu nokkur lið skemmtilega á óvart, maður kynntist nýjum og spennandi leikmönnum og mörkunum fjölgaði eftir því sem á mótið leið.
Það er óhætt að segja að maður sé öllu fróðari að loknu HM. Ég vissi til dæmis ekki ...
|
|
Lesa meira...
|
|
Myndbönd
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Thursday, 08 July 2010 |
|
Það er óhætt að segja að á heimsmeistaramótum í knattspyrnu skiptist á skyn og skúrir. Þessa stundina eru liðsmenn Uruguay og Þýskalands að jafna sig á ósigrum í undanúrslitum ásamt öllum þeirra stuðningsmönnum. Sumum líður eins og heimurinn sé að hrynja og drekkja sorgum sínum með flöskunni áður en þeir gráta sig í svefn. Daginn eftir átta flestir sig þó á því að um fótboltaLEIK var að ræða. Leik sem á sínum tíma var hægt að spila án dómara. 11 heiðursmenn spiluðu gegn 11 heiðursmönnum gamansins vegna löngu áður en fólskubrot og leikaraskapur urðu partur af breyttum leik dagsins í dag.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
HM 2010
|
|
Höfundur: Orri
|
|
Tuesday, 06 July 2010 |
|
Undanúrslitaleikur Hollendinga og Úrugvæ var prýðileg skemmtun en það er ekki von á síðri leik þegar Þjóðverjar og Spánverjar eigast við. Ótrúlegt en satt þá hafa Spánverjar aðeins einu sinni komist í undanúrslit, en þeir enduðu í fjórða sæti árið 1950. Þýskaland hefur oftast liða spilað um verðlaun á HM alls í 11 skipti af 19 HM keppnum . Liðin mættust í úrslitaleik á EM 2008 þar sem Torres skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri Spánverja, annars er ekki mikið um sögulegar viðrueignir milli þjóðanna, þær mættust þó í riðlakeppninni í Bandaríkjunum 1994 þar sem Klinsmann og Goikotxea "Slátrarinn frá Bilabao" skoruðu mörkin í 1-1 jafntefli. Þýskaland hefur löngum treyst á reynsluna í liðsvali þar sem lykilmenn hafa verið um og yfir þrítugt. En Joakim Löw hefur farið aðra leið en fyrirennarar sínir og kallað á leikmenn sem eru varla komnir með bílpróf. Enda er það svo að þýska liðið í Suður Afríku er það yngsta sem þeir hafa teflt fram frá því á HM 1934. Þjóðverjar eru með þriðja yngsta leikmannahópinn á HM aðeins Gana og Norður Kórea eru með yngri leikmannahópa.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Myndbönd
|
|
Höfundur: Bjössi
|
|
Monday, 05 July 2010 |
|
Voru ekki örugglega allir búnir að sjá þetta?
|
|
|
HM 2010
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Friday, 02 July 2010 |
|
Það eru margir á þeirri skoðun að HM 2010 hafi ekki enn náð þeim hæðum sem reiknað er með þegar bestu knattspyrnumenn heimsins koma saman. Fjöldi landsliða hefur valdið vonbrigðum og nægir að nefna Englendinga, Frakka og Ítali sem mega muna sinn fífil fegurri. Þeir voru ófáir sem spáðu Brasilíu og Hollandi góðu gengi í keppninni enda fóru liðin glæsilega í gegnum undankeppnina. Liðin hafa mæst 4 sinnum áður á heimsmeistaramótum í knattspyrnu en eftirminnilegasti leikurinn hlýtur að vera viðureignin í 8-liða úrslitum á HM '94 í Bandaríkjunum.
Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik varð úr einhver æsilegasti seinni hálfleikur í manna minnum. Núverandi þjálfari Brasilíu, Carlos Dunga, var á sínum stað á miðjunni hjá Brössum sem fögnuðu meðal annars nýfæddu barni Bebeto á eftirminnilegan hátt. Philip Cocu og Frank De Boer, aðstoðarþjálfarar Hollands, voru einnig á sínum stað. Vonandi stendur leikur dagsins undir væntingum.
|
|
|
HM 2010
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Wednesday, 30 June 2010 |
|
Í enn eitt skiptið lét ég blekkjast. Ég var farinn að hafa trú á því að þrátt fyrir vonbrigði undanfarinna áratuga væru Englendingar líklegir til afreka í Suður Afríku. Alvöru þjálfari, frábær árangur í undankeppninni og heimsklassa leikmenn með Wayne Rooney í broddi fylkingar. En það voru sömu klisjurnar. Gerrard og Lampard týndir á vellinum, markmanns- og varnarmistök á byrjendastigi auk þess sem Rooney virðist ætla að taka nokkra mánuði að jafna sig á hnjaskinu úr leiknum gegn Bayern Munchen.
Það kemur mér hins vegar ekki á óvart að leikmenn Englands hafi spilað jafn illa og raun bar vitni ef pirringur Fabio Capello á hliðarlínunni er lýsandi fyrir stemmninguna í hópnum. Hann meira að segja hrindir Stuart Pearce!
|
|
|
Aftur til fortíðar
|
|
Höfundur: Atli
|
|
Monday, 16 March 2009 |
|
Í tilefni af viðureign Brasilíu og Chile í 16-liða úrslitum HM 2010 er ekki úr vegi að rifja upp frægasta leik þjóðanna sem um leið er ein mest lesna greinin á Sammaranum frá upphafi.
Leikaraskapur virðist því miður orðinn hluti af fótbolta nútímans. Ein áhrifamesta leikaraskapstæknin og sú sem notuð er af ótal knattspyrnumönnum er þegar leikmaðurinn tekur sprettinn upp völlinn þar til andstæðingur nálgast. Leikmaðurinn fær þá skyndilegt minnisleysiskast – skilur fæturna og skóna eftir í grasinu, höfuð og búkur halda ferðinni áfram sem leiðir óhjákvæmilega til þess að leikmaðurinn fellur með miklum tilþrifum til jarðar. Skemmtileg útfærsla af þessari aðferð er að sparka í eigin ökkla þegar maður fellur og svo setja upp leikþátt um “hinn deyjandi mann”. Síðustu árin hefur mikið verið fjallað um leikaraskap Cristiano Ronaldo, Rivaldo, Klinsmann, Luis Figo, Pires og fleiri manna. Þessir menn eiga þó ekki roð í Chilemanninn Roberto Rojas – einn mesta og eftirminnilegasta svindlara knattspyrnusögunnar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Innsendar greinar
|
|
Höfundur: -Sammarinn-
|
|
Tuesday, 29 June 2010 |
|
Björn Már Ólafsson, áhugamaður um ítalska boltann, sendi okkur þessa fróðlegu og góðu grein um lið Chievo í ítalska boltanum.
Tímabilið 2001/2002 átti sérkennilegt atvik sér stað í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Atvikið var gulklætt og bar nafnið Chievo Verona. Seinna átti það eftir að festa sig í sessi í toppi ítalskrar knattspyrnu, aðdáendum “calcio” til mikillar lukku. Ævintýri þessa liðs frá svefnbænum Chievo rétt við Verona á sér ekkert sérstaklega langan aðdraganda. Félagið var reyndar stofnað árið 1929, en eyddi stórum hluta ævinnar í neðri hluta deildarkerfisins en hjólin fóru að snúast af alvöru þegar hinn 23 ára gamli Luca Campedelli tók við stjórnartaumunum við lát föður síns árið 1992. Liðið hafði þá komist upp í Serie-C, þriðju efstu deildina á Ítalíu. Fyrsta verk Campedellis var að gera Alberto Malesani að aðalþjálfara liðsins. Þetta reyndist vera frábær stökkpallur fyrir Malesani en hann átti eftir að þjálfa lið eins og Parma, Fiorentina, Udinese, Panathinaikos og nú í ár Siena og hefur hann unnið á sínum ferli Ítalska bikarinn, UEFA Cup og Ítalska ofurbikarinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>
|
| Results 53 - 65 af 1150 |