Næsta Fótbolta Quiz Sammarans fer fram á English Pub á þriðjudagskvöldið kl 20. Fyrsta keppni vetrarins var virkilega vel sótt og skemmtileg stemmning að vanda.
30 fótboltaspurningar
Flott verðlaun
Bjórspurningin
Bjórinn á 500 kjell fyrir þátttakendur
Ókeypis þátttaka
Gestaspyrill verður Atli Ísleifsson. Sjáumst á þriðjudagskvöldið!
Eftir að hafa farið á 1-1 leik West Ham - Everton fyrir nokkrum árum hefur mér alltaf verið í nöp við jafntefli. Þarna fóru 22 leikmenn og 35 þúsund áhorfendur á leik sem endaði þannig að allir fóru heim grautfúlir yfir úrslitunum. Það er sára sjaldan sem bæði lið eru glöð yfir jafntefli. Hugsanlega sátt, en ekki glöð. Bandaríkjamenn hafa alltaf áttað sig á þessu og hannað íþróttirnar þannig að leikirnir enda með sigurvegara. MLS deildin leyfir samt "ties" enda ekki auðvelt að útrýma jafnteflum í knattspyrnu, sérstaklega ef þú ert að reyna að vera aðili að Sepp Blatter.
Árið 1979 var staðan í skoskum fótbolta um
margt lík þeirri sem nú er. Old Firm liðin frá Glasgow, Rangers og Celtic,
höfðu unnið skoska titilinn undanfarin 14 ár, þar sem hið síðarnefnda hafði
m.a. unnið 9 ár í röð og nánast einokað skosk drykkjarílát á árunum fyrir og
eftir 1970. Það höfðu sem sagt engir aðrir komist að síðan ólíkinda tímabilið
1964-65 þegar Kilmarnock vann og Glasgow liðin enduðu í 5. og 8. sæti (enn þann
dag í dag er þetta eina tímabilið sem þau eru bæði utan topp 3). Raunar var það
svo að á þeim 82 leiktíðum sem spilaðar höfðu verið höfðu önnur lið aðeins
unnið 14 sinnum. Þetta var þó um það bil að breytast. Nýir vindar blésu í
skoskum fótbolta þar sem austurstrandar liðin Dundee United en þó einkum Aberdeen
FC fóru fremst í flokki. “The New Firm” var komið til að leysa hið gamla af
hólmi.
Hinn fallegi leikur tekur á sig ýmis form. Það sést jafnvel best í myndbandinu sem fylgir greininni en þar sjáum við samantekt frá 5ta degi heimsmeistaramóts blindra í knattspyrnu.
Á þessum vettvangi hafa áður verið teknir fyrir CM leikirnir og Fifa 96. Á minningarstígnum í dag verður stoppað við leik sem er ekki jafnvel þekktur, en vekur upp hjá höfundi þessara pistla alveg jafnmikið nostalgíukast og fyrrgreindu leikirnir. Hér er um að ræða stjóraleikinn On The Ball – World Cup Edition, sem þýska fyrirtækið Ascon (síðar Ascaron) gaf út árið 1994 og hét upphaflega því fróma nafni Anstoβ (upphafsspyrna),
Nú í
kjölfar sérdeilis glæsilegs árangurs íslenska ungmennalandsliðsins hefur opnast
möguleiki á þáttöku fyrir íslenskt U23 lið á Ólympíuleikunum í London 2012.
Það
eru þó nokkrir leikmenn í Evrópu sem eiga framtíðina fyrir sér.
Við sáum marga spila á HM en þar af voru nokkrir sem stóðu
sérstaklega uppúr að mínu eins og Alexis Sánchez og Javier
Hernández. Síðan eru aðrir leikmenn sem væri gaman að sjá
spila í stóru deildunum svo hægt sé að fylgjast betur með þeim
á skjánum og hvað þá á völlunum úti.
Hér
verður stiklað á stóru og er þetta fyrri hluti á upptalningu á
þeim knattspyrnumönnum sem ég tel að eigi sér bjarta framtíð í
boltanum.
Eins og bersýnilega sást á HM var vörn ítalska landsliðsins í molum. Cannavaro er hættur að yngjast, Nesta endist ekki heilt tímabil og Maldini er hættur í fótbota. Svo virðist sem kynslóðaskipti hafi átt að eiga sér stað en eitthvað hefur komið fyrir. Löngum hefur Ítalía átt bestu varnarmenn í heimi, flestir kannast við nöfnin Baresi, Cannavaro, Maldini, Nesta, Zambrotta og jafnvel Scirea en undanfarin ár hafa fáir ungir varnarmenn slegið í gegn með landsliðinu.
En hverjir munu taka við keflinu? Lítum aðeins á þá sem koma til greina: