Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
Öxullinn snýst - FC Bayern München 1966-1967
Aftur til fortíðar
Höfundur: Gunni B   
Sunday, 29 August 2010
Það kann að vera að það komi einhverjum á óvart að Bayern München (FC Bayern fyrir þá sem horfðu á HM í sumar) hefur ekki alltaf borið þann ægishjálm yfir þýskum fótbolta sem þeir gera nú og hafa gert í áratugi. Raunin er sú að allt fram á sjöunda áratug síðustu aldar var Bayern München lítið – eða í besta falli meðalstórt – lið á bæverskan mælikvarða. Geysilega öflug kynslóð ungra leikmanna fæddra um stríðslok tók hinsvegar sín fyrstu skref á stóra sviðinu um miðjan áratuginn. Átti þessi kynslóð eftir að breyta öllu, bæði hjá Bayern en ekki síður hjá þýska landsliðinu. Fremstir í flokki ungu kynslóðarinnar fóru þeir Franz Beckenbauer, Gerd Müller og Sepp Maier sem saman voru þekktir sem „Öxullinn“. Árið 1966 var árið sem öxullinn byrjaði að snúast.
Lesa meira...
 
Fótbolta Quiz Sammarans #30 - Spurningarnar
Getraunir
Höfundur: Sammarinn   
Saturday, 28 August 2010

sepp_blatter.jpgÞað var flott og falleg mæting þegar Fótbolta Quiz Sammarans fylltu þriðja tuginn síðastliðið þriðjudagskvöld á English Pub. Atli Ísleifsson var gestaspyrill og vöktu spurningarnar lukku enda mikið um svo kallaða "brain teasers". Baráttan var hörð og þurfti bæði bráðabana til að skera úr um 2. og 3. sætið. Verðlaunasætin voru skipuð eftirfarandi þátttakendum:

  1. Daði Guðmundsson og Kolbeinn Tumi Daðason 23/30
  2. Björn Berg Gunnarsson og Páll Kristjánsson 21/30
  3. Björn Ívar Björnsson og Egill Ólafsson 21/30
Næsta keppni verður fimmtudaginn 2. september kl 20 en keppnirnar verða öll fimmtudagskvöld í vetur að undanskildum þeim kvöldum þegar gamla stórveldið Liverpool á leik í Evrópudeildinni. Smellið á meira til að reyna við spurningarnar.
Lesa meira...
 
Sweeter than honey
Enski boltinn
Höfundur: Gunni B   
Friday, 27 August 2010

Manchester City hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinum á undanförnum misserum. Ekki má sjá að neitt lát verði á eyðslunni í bráð og virðast peningarnir hreinlega óþrjótandi. City, sem hefur mjög háleit markmið og vill komast í hóp fremstu liða Evrópu, hefur þurft að byggja liðið algjörlega upp frá grunni og það kostar sitt. Fyrirmyndin er að sjálfsögðu Chelsea frá því fyrir nokkrum árum og muna flestir hversu ógvænlega mikil eyðsla þeirra var á sínum tíma. Án þessara peninga væri Chelsea samt væntanlega ekki í þeirri stöðu sem þeir eru í dag og hafa verið undanfarin ár. Manchester United hafa, eins og allir vita, oft látið taka til sín á leikmannamarkaðinum og hafa í gegnum tíðina eytt dágóðum skilding. Þeir hafa hinsvegar ekki þurft að kaupa nánast nýtt lið í einu. Svipaða sögu má segja um Liverpool og Arsenal, þótt þeir síðarnefndu hafi verið alveg einstaklega séðir í seinni tíð.

 

En hvað hafa liðin í ensku úrvalsdeildinni raunverulega eytt miklum pening og hvernig er þessi mikla eyðsla City í samanburði við eyðslu hinna liðanna í gegnum tíðina? Þessu er ekki auðsvarað en reynum samt. 

Lesa meira...
 
Gömlu góðu vellirnir
Hugleiðingar
Höfundur: Palli   
Thursday, 26 August 2010

 Ensk knattspyrna hefur tekið gríðarlegum breytingum undanfarna tvo áratugi. Aukið fjármagn, erlendir leikmenn í takt við gríðarlega umfjöllun hefur gert deildina að þeirri stærstu í heimi. Eitt af því sem einnig hefur tekið miklum breytingum eru leikvangar félaganna. Margir hverjir hafa gengið í gegnum miklar breytingar og þá hafa nokkur lið byggt nýja velli frá grunni, nánast alla eftir hinni svokölluðu kleinuhringjaformúlu. Fyrir okkur áhugamennina og knattspyrnuvelli þá er það afskaplega leiðinleg þróun. Sérkenni valla gjörsamlega hverfa. Vissulega eru nýju leikvangar Arsenal og Man City glæsilegir á að líta en fyrir mér eru þetta ekkert annað en steingeldir steypuklumpar. Þá er stemmningin á völlunum afskaplega döpur miðað það sem boðið var upp á á árum áður.

Ég ætla að ryfja upp nokkra velli sem margir hverjir hafa fallið í gleymskunnar dá, en ég þykist vita að eldri lesendur Sammarans kannist nú við marga hverja.

Lesa meira...
 
Þessir Kanar !
Léttmeti
Höfundur: Ari   
Wednesday, 25 August 2010
Það hefur ávallt farið skrýtin tilfinning um mig þegar maður hlustar á Ameríkana tjá sig um fótbolta. Smellið á lesa meira til að sjá tvö undarleg knattspyrnu myndskeið úr smiðju Bandaríkjamanna.
Lesa meira...
 
Söngelskir fótboltakappar.
Léttmeti
Höfundur: Björn Ívar   
Tuesday, 24 August 2010

 Að vera atvinnumaður í fótbolta hljómar kannski eins og draumastarfið. Fullt af peningum fyrir að leika sér aðeins með bolta. Getur ekki klikkað. Þó er það svo að margir heimsþekktir atvinnumenn halda að þeir séu góðir í einhverju öðru en bara að sparka í bolta. 

Eric Cantona hélt að hann gæti orðið leikari og Craig Bellamy hélt að hann væri góður í golfi. Þónokkrir fótboltamenn halda hins vegar að þeir geti sungið. Hér eru nokkur dæmi sem sýna fram á annað.

Lesa meira...
 
Fótbolta Quiz í kvöld kl 20!
Getraunir
Höfundur: -Sammarinn-   
Tuesday, 24 August 2010

Næsta Fótbolta Quiz Sammarans fer fram á English Pub á þriðjudagskvöldið kl 20. Fyrsta keppni vetrarins var virkilega vel sótt og skemmtileg stemmning að vanda. 

  • 30 fótboltaspurningar
  • Flott verðlaun
  • Bjórspurningin
  • Bjórinn á 500 kjell fyrir þátttakendur
  • Ókeypis þátttaka
Gestaspyrill verður Atli Ísleifsson. Sjáumst á þriðjudagskvöldið!
 
Skítlegt jafntefli
Hugleiðingar
Höfundur: Hjalti   
Monday, 23 August 2010

Eftir að hafa farið á 1-1 leik West Ham - Everton fyrir nCapello tengist ekki efni greinarinnarokkrum árum hefur mér alltaf verið í nöp við jafntefli. Þarna fóru 22 leikmenn og 35 þúsund áhorfendur á leik sem endaði þannig að allir fóru heim grautfúlir yfir úrslitunum. Það er sára sjaldan sem bæði lið eru glöð yfir jafntefli. Hugsanlega sátt, en ekki glöð. Bandaríkjamenn hafa alltaf áttað sig á þessu og hannað íþróttirnar þannig að leikirnir enda með sigurvegara. MLS deildin leyfir samt "ties" enda ekki auðvelt að útrýma jafnteflum í knattspyrnu, sérstaklega ef þú ert að reyna að vera aðili að Sepp Blatter.

 

Lesa meira...
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>

Results 14 - 26 af 1143
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color