Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
10 árum síðar
Annað
Höfundur: Ari   
Tuesday, 04 May 2010

Það getur verið gaman að spá í framtíðina og enn skemmtilegra að líta seinna meir til baka og kanna hvernig Titus BrambleBiscanspádómarnir gengu eftir. Fyrir 10 árum settu blaðamenn knattspyrnutímaritsins World Soccer sig í spámannsstellingar og birtu lista með 100 efnilegustu knattspyrnudrengjum heims. Nú 10 árum síðar eru leikmennirnir á aldrinum 27-30 ára og því ekki efnilegir lengur. Þó nokkrir eru í dag á meðal bestu knattspyrnumanna heims, sumir algjörlega óþekktir og svo eru það enn aðrir sem fá mann bara til að glotta út í annað. Þá er ég að tala um Tiberius Bramble í 2 sæti og Igor Biscan í því 14. 

Smellið á „lesa meira“ til að sjá listann í heild.

Lesa meira...
 
Hörkutól
Þessir fótboltamenn..
Höfundur: Axel Freyr   
Monday, 03 May 2010

smith1.jpgFótboltinn getur á tíðum verið fagur viðureign ólíkra hæfileika en það er ekki tilefnið hér í þessari grein. Á vefsíðu Times má finna lista yfir þá leikmenn sem þykja hafa verið hvað harðastir  af sér og einnig grófastir og óhætt er að segja að toppsætin séu vel að tilnefningunum komin. Stuart Pearce vermir annað sætið á þessum lista en á toppinum trónir Slátrarinn frá Bilbao, Andoni Goikoetxea. Við skulum athuga hvað þessir geðsjúklingar gerðu af sér eiginlega. 

Mynd: Tommy Smith, the Anfield Iron

 

Lesa meira...
 
Steua Bucharest 4-0 Fram
Myndbönd
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Sunday, 02 May 2010

Það er ekki á hverjum degi sem Sammarinn kemst í jafn feitt og myndbandið hér að neðan. Þar eru svipmyndir úr viðureign Steua Bucharest og Fram í Rúmeníu frá því 1989. Á þessum tíma var rúmenska liðið eitt það sterkasta í Evrópu og til marks um það komst liðið í úrslit Evrópukeppni Meistaraliða (nú Meistaradeildin) árið á undan. Meðal leikmanna liðsins voru Popescu, Dan Petrescu sem skorar fyrsta markið og hinn magnaði Gheorgi Hagi sem tekur tvö víti í leiknum. Hann skorar úr öðru en Birkir Kristinsson gerir sér lítið fyrir og ver hitt. Aðdragandi beggja vítaspyrnanna er vægast sagt klaufalegur af hálfu Framara.

 

 
Leiðin að 18 - Saga LFC og MUFC #11
Enski boltinn
Höfundur: Gunnar Birnir   
Saturday, 01 May 2010

Í kafla dagsins erum við komin inn í nýliðna tíma. Spánverjinn Rafael Benitez tekur við stjórninni hjá Liverpool og í kjölfarið vinnur liðið Evrópubikarinn til eignar eftir magnaðan sigur á AC Milan í Istanbul. Ferguson lætur ekki deigan síga og bætir deildartitlum í hús auk þess sem liðið fer frægðarför til Moskvu í enskan úrslitaleik í Meistaradeildinni. Eigendaskipti verða hjá báðum liðum og eru stórliðin tvö allt í einu bæði í eigu Bandaríkjamanna. Super-subinn Ole Gunnar Solskjær og snýtarinn Jamie Carragher í smásjá.

 

 

Lesa meira...
 
Arshavin - Ávallt reiðubúinn!
Léttmeti
Höfundur: Atli   
Friday, 30 April 2010
gun__1272530628_arshavin_camping2.jpgÞessar skemmtilegu myndir náðust af rússneska birninum Andrei Arshavin á æfingasvæði Arsenal hér um daginn. Arshavin er með þessu að auglýsa mikið “sleepover” á Emirates-vellinum sem fram fer 14. maí næstkomandi. Þar gefst 200 ungum og heppnum stuðningsmönnum Arsenal, á aldrinum 7 til 12 ára, tækifæri á að gista í tjöldum á grasinu á Emirates-vellinum, en þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert á velli ensks knattspyrnuliðs. Sömuleiðis munu krakkarnir fá að sparka bolta sín á milli, undir ströngu eftirliti þjálfara. Gefum Arshavin orðið:
Lesa meira...
 
Góðir, slæmir og næstum því
Enski boltinn
Höfundur: Gunnar   
Friday, 30 April 2010
 Maður kemst varla hjá því að heyra mis-vitra sparkspekinga tjá sig um fótbolta. Leikmenn, taktík og peningamál eru hlutir sem allir fótboltaáhugamenn hafa skoðun á. En upp á síðkastið hef ég verið að heyra miklar vangaveltur um tilvonandi sigurvegara Úrvalsdeildarinnar. Pælingin er sú að sama hvort Chelsea eða Manchester Utd vinni deildina...þá verði þar á ferð slakasta lið sem hefur unnið deildina. Það er alveg sama hvernig ég sný þessum vangaveltum, þær verða alltaf huglægar. Nema...við setjumst niður, brjótum niður tölurnar og ákveðum í eitt skipti fyrir öll...hvert er besta liðið til að vinna deildina, hvert er lélegasta liðið til að vinna deildina og hvert er besta liðið til að vinna EKKI deildina.
Lesa meira...
 
Varnarmourinho vinnur undanúrslit
Meistaradeildin
Höfundur: Kjartan og Rafn H   
Thursday, 29 April 2010

sprinkler.jpgBæði leikmönnum Inter og Barcelona var fagnað sem hetjum í ítölsku og katalónsku blöðunum eftir 3-2 sigur þeirra fyrrnefndu yfir tvo undanúrslitaleiki Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Af lestri ítölsku blaðanna eftir leik mætti ætla að Mourinho hefði persónulega spilað allar stöður á vellinum enda varla minnst á nokkuð annað en snilld Portúgalans.

Hér er það sem ítölsku og spænsku blöðin höfðu að segja eftir leikinn í gær.

Lesa meira...
 
Eftirminnilegar HM stjörnur-seinni hluti
HM 2010
Höfundur: Ari   
Thursday, 29 April 2010

 BikarVið skulum halda áfram að rifja upp eftirminnilegar HM stjörnur og nú er komið að seinni hlutanum í upprifjun minni.

Lesa meira...
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>

Results 118 - 130 af 1150
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color