|
Enski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Monday, 25 June 2007 |
|
Það er allt komið á fullt span á enska leikmannamarkaðnum. Sum lið eru duglegri en önnur og það kemur sérstaklega á óvart að sjá hve lítið hefur gengið á hjá Liverpool, Newcastle og Arsenal, liðunum sem búist var við að mikil fyrirferð yrði á í sumar.
Chelsea hafa fengið þrjá leikmenn sem bera vott um mikla stefnubreytingu í leikmannakaupum. Enginn þeirra er það sem ég daglegu tali (sérstaklega hjá Chelsea) kallast stjarna. Hugsanlega koma þeir allir til með að vera varamenn. Bolton gerðu svo góð kaup í Gavin McCann, greiða fyrir hann 1 milljón punda. Smellið á "lesa meira" til að sjá það helsta hingað til.
|
|
Lesa meira...
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Sunday, 24 June 2007 |
|
Það er ekki bara í meistaraflokki sem allt gengur á afturfótunum hjá KR. Það er merkilegt til þess að hugsa að 2. flokkur og meistaraflokkur hafa sameiginlega náð sér í eitt stig úr fyrstu 11 leikjum sumarsins.
Auðvitað skiptir miklu máli fyrir félögin að yngri flokkar standi sig vel, helst náttúrulega 2. flokkur. KR-ingar töpuðu 5-1 fyrir Stjörnunni í síðasta leik og eru stigalausir eftir fjóra leiki. Fylkismenn eru hins vegar efstir með fullt hús stiga. Þriðja flokki gengur samt ágætlega og spurning hvort það nægi kröfuhörðum vesturbæingum!
|
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Saturday, 23 June 2007 |
|
Ég hef afskaplega lítinn skilning á því þegar menn ákveða að hætta að spila fyrir landið sitt. Þetta virðist vera frekar algengt, menn telja að álagið sé orðið of mikið, eins og Heiðar segir nú, og vilja „einbeita sér að félagsliðinu sínu“.
Auðvitað eigum við að fordæma svona ákvarðanir. Sérstaklega Íslendingar. Með því að hætta er Heiðar að bregðast knattspyrnuáhugamönnum á Íslandi og án þess að vita öll smáatriði í málinu finnst mér örlítil uppgjafarlykt af þessu. Ekki man ég eftir öðrum sambærilegum uppgjöfum á Íslandi. Menn hafa lent upp á kant við þjálfara og knattspyrnusambandið og hætt af þeim sökum, en það eru þó ástæður. Að kvarta yfir álagi, þegar enginn annar gerir það hlýtur amk. að vekja upp spurningar varðandi áhuga og trú á gengi landsliðsins. Er hann að hætta vegna þess að okkur gengur illa? Ef svo er er það versta ástæðan í bransanum og segir mikið um slíka leikmenn. Við þekkjum flestir menn sem hætta alltaf þegar þeim finnst leiðinlegt og gefast upp við mótlæti. Slíka menn höfum við ekkert að gera við í landsliðinu.
|
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Friday, 22 June 2007 |
|
Ef FH og KR mætast ekki í bikarúrslitum má bóka að landsleikur Íslands og Serbíu í gær var aðsóknarmesti leikur sumarsins. Áhorfendametið var tvöfaldað og stemningin mun betri en á karlalandsleik. Ég efast ekki um að þeir sem lögðu leið sína í dalinn í gær (kappinn hjólaði) munu fara á fleiri kvennalandsleiki. Hér er nokkuð sem að mínu mati stóð upp úr:
-Enn og aftur sannaðist hve nær fullkomnlega ömurlegur Laugardalsvöllur er. Þrátt fyrir að 6000 manns hefðu hátt og klöppuðu heyrði maður voða lítið annað en í sjálfum sér og tördunum með lúðrana á næsta bekk fyrir framan. -Áhorfendur voru stoltir af landsliðinu sínu. Ég sá að fólk allt í kringum mig brosti stóran hluta leiksins. Menn fögnuðu þegar stelpurnar fóru í tæklingar og það skyljanlega þar sem þær gáfu allt í þetta. -Það er sorglegur munur á Margréti Láru og Eiði Smára. Þegar Eiður fær ekki boltann eða missir hann stoppar hann, fórnar höndum og röltir til baka. Margrét berst áfram og dregur hinar stelpurnar áfram í baráttu allan leikinn. -Íslensku stelpurnar hafa sýnt það í síðustu tveimur leikjum að þær eru alveg ferlega góðar í loftinu. Þær vinna allt í vörn og sókn. Edda Garðarsdóttir á svo hrós skilið fyrir mjög góðar spyrnur. -Hárrétt að láta Dóru Maríu byrja leikinn. Hún hóf síðasta leik á bekknum en er allt of góð í það. Að lokum er hér svo skýringin á því hvers vegna svo margir mættu í þetta skipti: KSÍ rukkaði eðlilega upphæð fyrir miðann, 1000 kall. Svo ber auðvitað að hrósa þeim fyrirtækjum sem keyptu og gáfu miða.
|
|
|
Enski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Friday, 22 June 2007 |
|
Eitt elsta félagslið Englands, Scarborough FC var lagt niður í fyrradag. Félagið gat ekki snúið við hallarekstri sem komið hafði skuldum upp í 2.5 milljónir punda og ákveðið var að taka það til gjaldþrotaskipta.
Scarborough Football Club var stofnað árið 1879. Þetta litla félag náði aldrei neinum alvöru árangri ef frá eru taldir þrír bikarmeistartitlar í bikarkeppni neðrideildarliða (FA Trophy fyrir E-H deildir) og þegar liðið komst í fjórðu umferð FA Cup árið 2004, þegar liðið mætti Chelsea. Síðasta tímabil hóf félagið með 10 mínússtig þar sem félagið var í greiðslustöðvun. Ekki fór samt betur en svo að liðið lenti í 20. sæti Conference North og hefði fallið í Northern Premier League hefði það haldið áfram. Árið 1992 náði liðið að koma sér í 3. deildina (D deild) og hélt sér þar til ársins 1999. Þar gekk félaginu upp og niður, komust í umspil tvisvar en voru annars í botnbaráttu. Árið 1989 slógu þeir Chelsea út úr League Cup en 1992-93 var þeirra besta tímabil í bikarnum. Þá sló liðið Bradford, Coventry og Plymouth út en töpuðu 1-0 fyrir Arsenal þar sem Nigel Winterburn skoraði markið. En nú er þessari 128 ára sögu lokið og félaginu hefur verið lokað.
|
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Stebbi Sveins-
|
|
Thursday, 21 June 2007 |
|
When you walk through a storm, Hold your head up high And don't be afraid of the dark. At the end of the storm is a golden sky and the sweet silver song of a lark. Walk on through the wind, Walk on through the rain, Tho' your dreams be tossed and blown. Walk on, walk on with hope in your heart And you'll never walk alone, You'll never walk alone.
Ég man þá tíð að það þótti vera “KRísa” hjá KR ef liðið var bara í miðjumoði. Það að enda í 6. sæti var hreinlega skandall. Hvað er þá hægt að segja um stöðu KR í dag eftir að hafa tapað 6 af fyrstu 7 leikjunum í deildinni? KR gengur nú í gegnum langverstu byrjun sína í rúmlega 100 ára sögu þess.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Thursday, 21 June 2007 |
|
Í fyrstu umferð Landsbankadeildar kvenna gerðust þau undur og stórmerki að Fjölnis- og Fylkisstúlkur gerðu markalaust jafntefli. Þetta var fyrsta jafnteflið í Landsbankadeildinni frá því 16. ágúst 2005 þegar FH og ÍA skildu jöfn 2-2.
Á síðasta ári voru leiknir 56 leikir í röð án jafnteflis. Árið 2005 urðu jafnteflin tvö. Það sem af er móti í sumar eru þau hins vegar orðin þrjú þannig að eitthvað er nú að breytast, en síðasta tímabil verður að teljast eitt það fyrirsjáanlegasta í langan tíma, því með nokkurri vissu var hægt að tippa á hvern einasta leik. Ég vil svo grípa tækifærið og hvetja alla sem kettlingi geta valdið að skunda niður í Laugardal í kvöld kl. 21:15 og fylgjast með stelpunum okkar kjöldraga Serba.
|
|
|
Íslenski boltinn
|
|
Höfundur: -Bjössi-
|
|
Wednesday, 20 June 2007 |
|
Svo ég freisti þess að vera fyrstur með fréttirnar þá gengur KR ekkert allt of vel þessa stundina. Liðið hefur nælt sér í heilt stig og hin liðin á botninum hafa verið að hala inn stig í síðustu leikjum.
Það mátti sjá batamerki á liðinu í síðasta leik, það er ekki spurning. Leikur liðsins var ágætur á köflum og ungu strákarnir Guðmundur Reynir, Skúli Jón, Kristinn og Eggert stóðu sig mjög vel. Guðmundur og Eggert verða í sínum hvorum bakverðinum í Kópavoginum í kvöld og ber að hrósa Teiti sérstaklega fyrir það. Engu að síður hafa bakverðirnir ekki verið meginorsök vandamála KR-inga heldur frammistaða stórstjarna liðsins. Gunnlaugur Jónsson hefur átt slæmt tímabil og það er grátlegt að sjá Pétur notaðan í vörn þegar hann er einn allra besti miðjumaður landsins. Jóhann Þórhallsson og Atli Jóhannsson hafa ekki fundið sig í sumar og Grétari gengur ekki að skora þrátt fyrir að vera alltaf mjög duglegur. Ég held að það hafi verið mikil mistök hjá KR-ingum að láta Dalibor fara. Liðið hefði svo sannarlega getað notað hann og jafnvel gefið Gunnlaugi frí. Frekar hefði mátt losa liðið við leikmenn á borð við Ágúst Gylfason og Bjarnólf Lárusson sem hafa því miður ekki gert nógu góða hluti fyrir liðið. Ef KR-ingar halda áfram spilamennsku sinni frá því í síðasta leik held ég að þeir sigri HK. Þó verður það þrautinni þyngra því HK-ingar eru með afar góða vörn og síðast þegar liðin áttust við (í Deildabikarnum) komust KR-ingar ekkert áleiðis.
|
|
|
|
<< Start < Prev 81 82 83 84 85 86 87 88 89 Næsta > End >>
|
| Results 1106 - 1118 af 1150 |