|
Enski boltinn
|
|
Höfundur: Gunnar Birnir
|
|
Saturday, 08 May 2010 |
|
Í þessum lokakafla samantektarinnar veltir greinarhöfundur fyrir sér stöðu liðanna í dag og hvað framtíðin ber í skauti sér. Nýju eigendurnir valda mikilli óvissu meðal stuðningsmanna og ljóst er að aukin óánægja er með stjórnun Kananna. Hvenær hættir Ferguson og hvað fær Benitez mörg tækifæri í viðbót til þess að vinna deildina?
Samantektinni lýkur svo á skemmtilegum myndböndum þar sem barátta liðanna í gegnum árin er gerð upp.
|
|
Lesa meira...
|
|
Skoski boltinn
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Friday, 07 May 2010 |
|
Sammarinn hefur löngum haft gaman af því að kíkja í heimsókn til frænda sinna í Skotlandi en nú er tilefnið ærið. Motherwell og Hibs mættust í gærkvöldi á Fir Park en liðin eru í harðri baráttu um 4. sætið í deildinni og þar með sæti í Evrópudeildinni. Hibs komst í 0-1 og svo í 1-4 en Motherwell náði að halda í vonina með því að minnka muninn í 2-4 fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik komst Hibs svo 2-6 yfir og sumir stuðningsmenn Motherwell héldu heim á leið. En því hefðu þeir betur sleppt. Áður en yfir lauk hafði Motherwell jafnað í 6-6 auk þess sem liðið brenndi af vítaspyrnu.
Mörkin í leiknum voru svo sem engin glæsimörk ef undan er skilið jöfnunarmarkið á 93. mínútu. Þvílíkt mark!
|
|
|
Tilkynningar
|
|
Höfundur: Sammarinn
|
|
Thursday, 06 May 2010 |
Vegna prófatíðar verður ekkert Fótbolta Quiz Sammarans á English Pub í kvöld. Stemmningin verður hins vegar alls ráðandi eftir viku, fimmtudagskvöldið 13. maí þegar við verðum aftur á okkar stað. Við vitum að margir eiga eftir að fella tár en við hvetjum quiz-ara til þess að herða upp hugann og safna kröftum fyrir yfirburðarkeppni eftir viku.
|
|
|
HM 2010
|
|
Höfundur: Gunnar Birnir
|
|
Thursday, 06 May 2010 |
|
Úíúíú,
wa wa wa, úíúíú wa wa wa.
Fótbolti
og spagetti-vestrar? Á þetta tvennt eitthvað sameiginlegt? Jú,
alveg heilmargt (allavega ef þú ert til í að taka þetta ekki of
alvarlega). Sveittir karlmenn há einvígi upp á líf og dauða (það
mætti a.m.k. oft halda það). Góðir á móti vondum (held okkur
finnist það öllum stundum, fer bara eftir viðkomandi hverjir eru
góðir og hverjir eru vondir) þar sem þeir góðu eru ekki
endilega algóðir. Síðast en ekki síst laaangar senur þar sem
ekkert virðist gerast og enginn segir neitt (ó já, það kannast
allir við það, ekki reyna að neita því). Þó er það þannig
að spennan er slík og atvikin (þegar þau gerast) svo
góð/slæm/ljót að maður getur ekki slitið sig frá. Agndofa,
gjörsamlega heillaður af spagetti-vestrum (lesist: fótbolta).
Kvikmynd
Sergio Leone, The Good, the Bad and the Ugly er það besta sem
spagetti-vestrar hafa uppá að bjóða (og jafnvel kvikmyndir
yfirleitt). Myndin hefst á þremur eftirminnilegum atriðum þar sem
fyrst Tuco (The Ugly) svo Angel Eyes (The Bad) og loks Blondie (The
Good) eru kynntir til sögunnar.
Nú
er heimsmeistaramótið í knattspyrnu það besta sem knattspyrnan
hefur uppá að bjóða. Ef HM væri spagetti-vestri hvernig myndi
hann þá byrja? Margir möguleikar koma til greina og væri auðvelt
að skipa hér stórstjörnur í hverja stöðu. Sé ég t.a.m. fyrir
mér stórkostlegan einleik Maradona þar sem hann bregður sér í
öll þrjú hlutverkin. Spagetti-vestrar voru þó ekki “Hollywood
Blockbusters” og finnst mér því rétt að fara að fordæmi
meistara Leone og velja minni spámenn í aðalhlutverkin. Hér er
mín tillaga.
Til
að njóta megi þess sem á eftir fer til fulls er mælt með því
að hlustað sé á meistarastykki Ennio Morricone á meðan á
lestri stendur. Góðar stundir.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Getraunir
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Wednesday, 05 May 2010 |
|
Það er ekki úr vegi fyrir vinnuþjarkana og námshestana að taka sér stutta pásu og taka þátt í Búllugetrauninni hér á Sammaranum. Tommi og Öddi hjá Búllunni bjóða sigurvegaranum upp á Tilboð Aldarinnar fyrir tvo á Geirsgötunni. Í síðustu viku spurðum við út í stoðsendingu Michael Laudrup á Ebbe Sand á HM '98. Við höldum okkur við heimsmeistaramótið og förum aftur til ársins 1990.
Svar skal senda á tumi[hja]sammarinn.com fyrir miðnætti.
Svar: Emilio Butragueno
Sigurvegari: Birgir Siemsen
Smellið á meira til að reyna við getraunina sem er á myndbandsformi.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Hugleiðingar
|
|
Höfundur: Kolbeinn Tumi
|
|
Wednesday, 05 May 2010 |
|
Það er mikið um að vera í knattspyrnuheiminum um þessar mundir og allir miðlar fullir af fréttum varðandi lok stóru deildanna í Evrópu, upphaf íslenska boltans, heimsmeistaramótið í S-Afríku auk frétta af leikmönnum og stuðningsmönnum þessarar vinsælustu íþróttar í heimi. Eins og verða vill fellur sumt í kramið en annað ekki. Þessu skipti ég í tvennt en ljóst er að skalli John Arne Riise á lokamínútunum á Anfield fyrir nokkrum árum kemst í báða flokkana.
Glæsimörk og sjálfsmörk.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Annað
|
|
Höfundur: Ari
|
|
Tuesday, 04 May 2010 |
|
Það getur verið gaman að spá í framtíðina og enn skemmtilegra að líta seinna meir til baka og kanna hvernig  spádómarnir gengu eftir. Fyrir 10 árum settu blaðamenn knattspyrnutímaritsins World Soccer sig í spámannsstellingar og birtu lista með 100 efnilegustu knattspyrnudrengjum heims. Nú 10 árum síðar eru leikmennirnir á aldrinum 27-30 ára og því ekki efnilegir lengur. Þó nokkrir eru í dag á meðal bestu knattspyrnumanna heims, sumir algjörlega óþekktir og svo eru það enn aðrir sem fá mann bara til að glotta út í annað. Þá er ég að tala um Tiberius Bramble í 2 sæti og Igor Biscan í því 14.
Smellið á „lesa meira“ til að sjá listann í heild.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Þessir fótboltamenn..
|
|
Höfundur: Axel Freyr
|
|
Monday, 03 May 2010 |
|
Fótboltinn getur á tíðum verið fagur viðureign ólíkra hæfileika en það er ekki tilefnið hér í þessari grein. Á vefsíðu Times má finna lista yfir þá leikmenn sem þykja hafa verið hvað harðastir af sér og einnig grófastir og óhætt er að segja að toppsætin séu vel að tilnefningunum komin. Stuart Pearce vermir annað sætið á þessum lista en á toppinum trónir Slátrarinn frá Bilbao, Andoni Goikoetxea. Við skulum athuga hvað þessir geðsjúklingar gerðu af sér eiginlega.
Mynd: Tommy Smith, the Anfield Iron
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > End >>
|
| Results 105 - 117 af 1143 |