Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
Fótbolti og Rokk PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Gunnar Örn Runólfsson   
Wednesday, 28 July 2010

 Gunnar Örn Runólfsson sendi okkur þessa stórskemmtilegu grein um rokkáhuga fótboltamanna.

Greint var frá því að aðal upphitunarlag spænska landsliðsins væri lagið Club Foot með Kasabian. Var miðvallarleikmaðurinn katalónski Andrés Iniesta hvað mest hrifinn af sveitinni að hann sagðist ætla að bjóða sveitinni að koma og horfa á leik Barcelona og Real Madrid á næsta leiktímabili. En það var ekki allt, Iniesta vildi ennfremur bjóða breska indíbandinu að gista heima hjá sér og kíkja svo með sér á djammið í borginni.

Iniesta var þó ekki sá eini sem lýsti yfir mikilli hljómsveitaaðdáun á heimsmeistaramótinu því að Argentínumaðurinn Lionel Messi lýsti yfir miklum áhuga á Oasis eftir að samlandi hans Carlos Tevéz leikmaður Manchester City kynnti hann fyrir bandinu við undirbúning argentínska landsliðssins fyrir stóru keppnina. Messi sagðist m.a.s. ætla að bjóða sveitinni til Argentínu ef Argentínumenn myndu hampa heimsmeistaratitlinum.

Þá þykir greinarhöfundi ansi forvitnilegt að líta á samband rokks og þá helst þungarokks og fótbolta.

Sá sem kemur þar fremstur í flokki er eflaust hinn síðhærði spænski Carles Puyol en samkvæmt áreiðanlegum heimildum hlustar hann mikið á bandarísku dauðarokkssveitirnar Napalm Death og Cannibal Corpse fyrir leiki. Þess má geta að Cannibal spilaði á Nasa fyrir þremur árum síðan og Napalm Death voru aðal númerið á rokkhátíðinni Eistnaflug sem fór fram á Neskaupsstað núna í júlí. 

Puyol hafði um afar kosti að velja í sumar og gat því miður ekki komist á Eistnaflugið í ár til að sjá bandið þar sem að hann þurfti að keppa í úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar sömu helgi, svona er lífið stundum.

Einnig hefur markvörður Wolves, Marcus Hahnemann, vakið athygli fyrir harðan tónlistarsmekk en hann segist mikið hlusta á Mastodon, Slipknot, Tool og Disturbed.. Iron Maiden eru of mjúkir að hans sögn.

 Við lauslega úttekt á þungarokksáhuga leikmanna Pepsi deildarinnar var komist að þeirri niðurstöðu að þar fer harðjaxlinn á miðjunni hjá Fylki, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fremstur í flokki.

Hann var í þónokkurn tíma að spila bæði á fullu í 1.deildinni með Selfoss og núna með Fylki ásamt því að garga úr sér lungun með þungarokksveitinni Shogun. Hann varð þó að leggja hljóðnemann á hilluna um stund vegna anna í boltanum en er ennþá á fullu í rokkinu þar sem að sveitir á borð við Everytime I die, Pantera, Down og Parkway Drive eru í mestu uppáhaldi.

Kristján Valdimarsson liðsfélagi Ásgeirs ku vera helst hrifnastur af bandarísku harðkjarna sveitunum Isis og Lamb of God.

Laxdal bræðurnir hjá Stjörnunni, Jóhann og Daníel kunna ekki aðeins að leika deyjandi lax því þeir kunna líka að hlusta á þungarokk og er Killswitch Engage hin bandaríska í miklu uppáhaldi.

Helgi Valur Daníelsson fyrrum Fylkismaður og núverandi leikmaður AIK í Svíþjóð er dauðarokkari og heldur uppi sveit sinni Sent to the woods á myspace slóðinni http://www.myspace.com/senttothewoods

Afar efnileg lög þarna á ferð og greinilegt að Helgi getur átt framtíð sem tónlistarmaður þegar fótboltaferlinum líkur.

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Bjössi   |2010-07-28 15:32:19
Gaman að þessu! Var Alexei Lalas svo ekki í rokkhljómsveit á sínum tíma?
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color