Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
HM afréttari PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Gunnar Birnir   
Monday, 26 July 2010
Upplifðir þú lokamínútur úrslitaleiksins eins og síðasta dag jólafrísins? Hefur þú ráfað um í reiðuleysi undanfarna daga? Hefur þú uppgötvað, þér til mikillar mæðu, að þú hefur ekkert að tala um í kaffinu í vinnunni og kveikt á sjónvarpinu þegar þú kemur heim einungis til að komast að því að þar eru bara tálknmálsfréttir?

Varst þú á fótboltafylleríi síðastliðinn mánuð? Vantar þig afréttara? Þá er þetta eitthvað fyrir þig.

Sextíu lög sem skilgreina sextíu eftirminnileg atvik sem tengjast HM 2010. Hægt er að upplifa stemninguna aftur og aftur þangað til eftirköst HM eru liðin hjá... eða deildarkeppnir byrja aftur eftir u.þ.b. mánuð, hvort sem kemur fyrst.

  1. Mr. Jinx (Quarashi) - Stjörnurnar úr Nike auglýsingunni margfrægu hefðu betur haldið sig heima, ein þeirra gerði það reyndar. Spánverjar sjást að vísu lesa blöðin og Kobe Bryant kláraði sinn pakka gegn Boston en það besta sem hinir gerðu var að fara heim. Þar sem allir hafa séð Nike auglýsinguna er hér önnur góð.

  2. Kiss Kiss (Holly Valance) - Það var mikið kysst og knúsað á bekk Argentínumanna.

  3. Can’t Touch This (MC Hammer) - Tevez hoppar nú samt ekkert uppí bíla með hverjum sem er.

  4. Lady Madonna (The Beatles) - Svo mikið fór fyrir keleríinu að kallinn sá ástæðu til að taka það fram að hann ætti nú kærustu (hún fer í skóla í öðru hverfi, þú mundir ekki þekkja hana).

  5. Foot Tapper (The Shadows) - Í þetta þetta skiptið var Robben ekki að leika.

  6. Pump Up the Volume (M|A|R|R|S) - Það var nú einmitt ekki hægt að hækka í græjunum útaf endalausu suði og það voru ekki allir sáttir.

  7. Silence Is Golden (The Tremeloes) - Bara ef fleiri væru jafn lélegir og Xavi.

  8. Cum On Feel the Noize (Slade) - Það má samt hafa gaman af öllu, jafnvel vuvuzela.

  9. Oops!... I Did It Again (Britney Spears) - Bæði lag og video eru útkeyrð. Verða samt að fá að vera með. Gordon Banks velti sér í sófanum þegar hann sá þetta (þetta er einhvern veginn ekki jafnáhrifaríkt þegar viðkomandi er enn á lífi).

  10. Fuck It (I Don't Want You Back) (Eamon) - Eitthvað ósætti kom upp milli heiðursmannanna Anelka og Domenech. Bara ef annar þeirra gæti nú bara brotið odd af oflæti sínu og beðist afsökunar. Þó ekki væri nema bara fyrir liðið og frönsku þjóðina.

 

  1. F.U.R.B. (Fuck You Right Back) (Frankee) - Ó, jæja.

  2. Do You Really Want to Hurt Me (Culture Club) - Hann er kannski ekki endilega að reyna að meiða þig. Honum gæti bara ekki verið meira sama.

  3. Something in the Air (Thunderclap Newman) - Já, það er eitthvað í loftinu. Merkilegt að permanentið hafi haldist út mótið.

  4. I Bet You Look Good on the Dancefloor (Arctic Monkeys) - Evrópumenn eru ekki bestir á öllum sviðum. Hversu vangefið væri að sjá Þjóðverja fagna svona?

  5. Great Balls of Fire (Jerry Lee Lewis) - Væri ekki alvöru samantekt ef það væri ekki eitt svona „Balls in Nuts“ video.

  6. Sorry Seems to Be the Hardest Word (Elton John) - Hver hefði trúað þessu? Blatter hlýtur að hafa tapað glórunni endanlega í vuvuzela suði.

  7. It's Raining Men (Weather Girls) - Þetta er nákvæmlega það sem myndi koma fyrir mann ef það rigndi karlmönnum. Legg ég til að öllum tillögum um slíkt verði hafnað.

  8. Raise Your Hand (Janis Joplin) - Er það eina sem kom til greina hjá Suarez í stöðunni og ekkert meira svindl en t.d. að brjóta á leikmanni. Hann hlaut líka sína refsingu fyrir.

  9. MMMBop (Hanson) - Er nokkurn veginn hljóðið sem heyrðist í markslá Úrúgvæja mínútu seinna og gerði Suarez að þjóðhetju.

  10. Ice Ice Baby (Vanilla Ice) - Til að klára dæmið steig fram Sebastián „El Loco“ Abreu sem hlýtur náttúrulega að skíta ísmolum. Úrúgvæ - Ghana drama drama var stóri rússíbaninn í HM tívolíinu og er ekki fyrir viðkvæma.

  11. Invincible (Muse) - Voru taldir eitt allra slakasta liðið fyrir mótið, fóru djók leið inn á það og það var fastlega búist við því að þeir yrðu niðurlægðir. Nýsjálendingar fara hinsvegar heim sem eina ósigraða liðið á mótinu. Spánn hvað?

  12. Twist and Shout (The Beatles) - Þessi fyrsta regla dívinga handbókarinnar er vel þekkt og þarf ekki að kynna fyrir De Rossi.

 

  1. Heaven Knows I'm Miserable Now (The Smiths) - Henti frá sér sigrinum og líklega möguleikum Nígeríu í keppninni. Já, þú ættir að skammast þín.

  2. Blood on the Dance Floor (Michael Jackson) - Svisslendingar blóðguðu Spánverja í fyrsta leik sínum á meira en eina vegu.

  3. Call on Me (Eric Prydz) - Sagan segir að þetta sé nýja uppáhaldslag leikmanna Norður Kóreu eftir að þeir skelltu sér í gymmið.

  4. Oopsy Daisy (Chipmunk) - Hlutirnir voru ekki beint að falla með Nígeríumönnum.

  5. The Power (Snap!) - Snap, indeed. Þetta er bara rugl.

  6. From Me to You (The Beatles) - Frá mér til þín. Kveðja, Ronaldo.

  7. Good Times Bad Times (Led Zeppelin) - Það geta víst ekki allir unnið. Eins gaman og það er að vinna þá er sárt að tapa.

  8. Dry Your Eyes (The Streets) - Hinn mikilfenglegi foringi hefur velþóknun á augljósri ást þinni á föðurlandinu. Að launum færð þú heimild til að horfa einu sinni á myndbandið við Call on Me í einrúmi.

  9. Don't Stand So Close to Me (The Police) - Nei, í alvörunni, ég meina það. Ekki standa svona fokkin nálægt mér!

  10. My Camera Never Lies (Bucks Fizz) - Öll enska þjóðin var á svipstundu sannfærð um kosti video tækni á fótboltaleikjum, á fleiri en einn veg. Það jákvæða fyrir Englendinga er að nú hafa Þjóðverjar varla efni á því lengur að þræta um hvort það hafi verið mark eða ekki árið 1966.

  1. Auf Wiederseh'n Sweetheart (Vera Lynn) - Þjóðverjarnir hötuðu nú samt ekkert að vinna: You’re just a small part of Scotland.

  2. Sealed with a Kiss (Brian Hyland) - Casillas kann lagið á dömunum þegar þær tala of mikið. Bara heppileg tilviljun að þetta skyldi vera kærastan.

  3. Under Pressure (Queen and David Bowie) - Slóvenar voru greinilega ekki undir pressu. Capello var ekki sáttur.

  4. Girls, Girls, Girls (Mötley Crüe) - Jebb, bara nákvæmlega það sem stendur á umbúðunum.

  5. Shaddap You Face (Joe Dolce Music Theatre) - var óformlegt mottó franska landsliðshópsins.

  6. Nothing's Gonna Stop Us Now (Starship) - Ok strákar, þegar við höfum masterað þessa æfingu verðum við óstöðvandi.

  7. Little Honda (The Beach Boys) - Japanir hafa örugglega hermt aukaspyrnur í þrívíddar tölvulíkönum og lært hreyfingar Mark Lawrenson í hátækni þjálfunar apparati. Hvað sem það var þá virkaði það.

  8. Kung Fu Fighting (Carl Douglas) - Bíddu, er Bruce Lee ekki löngu dáinn?

  9. Where Is the Love? (Black Eyed Peas) - Já, hvar er Löw annars? Hvað getur hann mögulega verið að gera?

  10. Jumpin' Jack Flash (Rolling Stones) - Hann heitir reyndar Jimmy, ekki Jack, en afhverju honum er hleypt inn á völlinn eða bara inn í landið er ofar mínum skilningi.

  11. No Surprises (Radiohead) - Það þarf ekki að koma neinum á óvart að æfingar Argentínumanna voru ekki þær úthugsuðustu.

  12. Stay Another Day (East 17) - Hollendingar gerðu ekki ráð fyrir því að þeir yrðu svona lengi í Afríku. Þeir bókuðu því bara hótelgistingu til 5. júlí sem er svona álíka lélegt og þetta lag.

 

  1. Can't Get You out of My Head (Kylie Minogue) - Ætli hann þurfi ekki lækni til að ná reimaförunum úr andlitinu.

  2. Can We Fix It? (Bob the Builder) - Veit ekki. Við getum hinsvegar blandað það.

  3. Atomic (Blondie) - Er gott lag með Blondie sem er ekki Union City Blue.

  4. Lose Yourself (Eminem) - spænskir tapa sér á móti Paragvæ og... spænskir tapa sér á móti Hollandi.

  5. Take it easy (The Eagles) - Þetta er nú bara leikur.

  6. Octopus’s Garden (The Beatles) - Páll kolkrabbi og miðill með meiru er víst sestur í helgan stein á toppi ferilsins, enda kominn á aldur. Hann var kvaddur við hátíðlega athöfn þegar hann hafði lokið við að ákveða hvernig síðustu tveir leikir keppninnar færu.

  7. Another Brick in the Wall (Part II) (Pink Floyd) - Fyrir þá sem að af einhverjum ástæðum misstu af HM má hér sjá hápunktana, „Brick by Brick“.

  8. Fish (Ghostface Killah featuring Raekwon and Cappadonna) – Hann má eiga það að það er kraftur í honum en ég er nú samt hræddur um að það sé eitthvað farið að slá í þennan fisk.

  9. Dancing in the Street (David Bowie and Mick Jagger) - Það er alltaf gaman að vinna.

 

  1. Can You Feel It (Jackson 5) - Kaká fann ekkert, fannst þú eitthvað?

  2. Ball of Confusion (The Temptations) - Ekki voru allir sáttir við jabulani boltann, man reyndar ekki eftir neinum sem er ekki á launaskrá Adidas sem talaði vel um hann. Þetta er nú samt óttalegt væl, bolti er bara bolti. Eða er það ekki?

  3. It's So Easy (Guns N' Roses) - Hættið þessu jabulani kjaftæði. Þetta er auðvelt, of auðvelt eiginlega. Gerið bara svona.

  4. The National Anthem (Radiohead) - Margir góðir en þessi þótti bestur.

  5. Hysteria (Muse) - Hver hefur ekki upplifað svona?

  6. Listen to What the Man Said (Wings) - Norður Kórea er ekki að fara koma neinu liði á óvart sem hefur Eboue innanborðs.

  7. Too easy (Wiseguys) - Pfff, það tekur því nú varla að halda þetta mót, þetta er gefið. England vann samt örugglega, er það ekki? Jæja, það er þó alltaf Eurovision á næsta ári.

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
Tumi   |2010-07-26 16:20:39
Ekkert annað en snilldarsamantekt Gunni!
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color