Skip to content

Sammarinn

Nýjasti þáttur

You are here: Forsíða
HM Quiz - Spurningarnar PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur: Kolbeinn Tumi   
Saturday, 24 July 2010

Sammarinn gerði upp HM eins og honum er einum lagið með HM Fótbolta Quiz. Í fyrsta skipti var keppt bæði í borg óttans á heimavelli Sammarans á English Pub og svo norðan heiða á Kaffi Akureyri. Mæting var í góðu lagi á báðum stöðum og sérstaklega gaman að sækja Norðanmenn heim sem að létu vel af keppninni og nokkuð ljóst að Sammarinn verður að fjölga heimsóknum sínum í höfuðborg Norðurlands. Úrslitin voru eftirfarandi: Jói og Jói - sigurvegarar á English Pub

Reykjavík

  1. Jóhann Alfreð Kristinsson og Jóhann Már Valdimarsson 30/30
  2. Ari Erlingsson og Máni Gunnarsson 29/30
  3. Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson og Leifur Arnkell Skarphéðinsson  28/30

Akureyri

  1. Bjarni Jónasson og Benedikt Víðisson 27/30akureyri.jpg
  2. Heimir Örn Árnason og Jónas Þór Halldórsson 26/30
  3. Tryggvi Páll Tryggvason og Hjalti Rögnvaldsson 24/30

 

Quiz-óðir geta svo farið að hlakka til vetursins enda verða Sammarinn og English Pub í banastuði í vetur.

  1. Við spyrjum um fyrrverandi knattspyrnumann. Aðeins einn fyrirliði sigurliðs heimsmeistaramótsins í knattspyrnu er þess heiðurs aðnjótandi að einn af frægustu knattspyrnuvöllum heimsins er nefndur í höfuðið á honum. Hvaða fyrirliði er það?

 

  1. Tveir þjálfarar landsliða á heimsmeistaramótinu sem er nýlokið hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að taka við heimsmeistaratitlinum sem fyrirliðar þjóða sinna. Hvaða þjálfarar eru það?

 

  1. Sovétmenn voru á árum áður með óumdeilanlega sterkasta heimavöllinn a.m.k. Þegar keppni í undankeppni heimsmeistaramóts var annars vegar. Í heil 24 ár töpuðu Sovétmenn ekki stigi á heimavelli sínum í Moskvu en það sem meira var, þeir fengu ekki á sig mark. Þann 31. maí árið 1989 tókst þjóð einni loks að næla sér í mjög óvænt stig í Moskvu. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en marga fastamenn vantaði í lið þeirrar þjóðar sem að nældi í stig með jöfnunarmarki skömmu fyrir leikslok. En hvaða þjóð batt enda á sigurgöngu Sovétmanna í Moskvu?

 

  1. Einhver frægasti leikur allra tíma var viðureign Argentínu og Englands á HM '86 þegar Maradona skoraði tvö mörk, annað með hendinni og hitt eftir glæsilegan einleik. Leiknum lauk með sigri Argentínu 2-1 en spurningin er þessi. Með hvorri höndinni skoraði Maradona fyrra markið og með hvorum fætinum skoraði hann síðara markið?

 

  1. Ein af skærustu stjörnum HM á Ítalíu árið 1990 var hinn 38 ára gamli Kamerúni Roger Milla. Kappinn skoraði 4 mörk í keppninni en hann hafði lagt landsliðsskónna á hilluna þremur árum fyrr. Forseti Kamerún hringdi hins vegar í kappann og bað hann um að spila með liðinu á Ítalíu sem hann og gerði. Fjórum árum síðar var hann aftur á ferðinni með Kamerún og skoraði 1 mark og varð þar með elsti markaskorari á HM frá upphafi, 42. ára. Gegn hverjum skoraði Milla þetta mark á HM '94 en markið kom í 1-6 tapi í riðlakeppninni?

 

  1. Tveir menn hafa náð þeim frábæra árangri að vinna heimsmeistaratitilinn sem leikmenn og þjálfarar. Sá eldri var framherji sem leikmaður og þekktur fyrir að vera hjátrúarfullur. Til dæmis er hann með töluna 13 á heilanum og gerði mikið úr því að hann vann bæði keppni sem leikmaður og þjálfari þegar summan af tveimur síðustu tölunum í ártalinu var 13. Sá yngri vann keppnina sem leikmaður í þriðju tilraun og þá á heimavelli. Hann hefur konunglegt viðurnefni og kemst endurtekið á forsíður dagblaða fyrir kvennafar sitt og skoðanir sínar á félagsliði sínu þar sem hann er nú í stjórnunarstöðu og landsliðinu. Hverjir eru mennirnir tveir?

 

  1. Eitthvert svakalegasta atvik í sögu HM varð í undankeppni HM 1990 í Suður Ameríku. Þá mætti þjóð ein Brasilíu á Maracana vellinum í Rio og í stöðunni 1-0 fyrir Brasilíu var útlitið svart fyrir hina þjóðina. Markvörður liðsins, Roberto nokkur Rojas, átti þó eitt tromp á hendi. 20 mínútum fyrir leikslok var flugeldi hent inn á völlinn og lá markvörðurinn eftir í jörðinni og blæddi úr honum. Félagar hans neituðu að halda leik áfram og var hann því blásinn af. Myndbandsupptökur sýndu síðar að flugeldurinn hafði lent nokkrum metrum frá Rojas en hann hafði verið með rakvélarblað í hanskanum sem hann notaði til þess að skera sig í framan og 'fake-a' meiðsli sín. Rojas fékk lífstíðarbann frá knattspyrnuiðkun ásamt þjálfara liðsins og lækni. Auk þess fékk þjóðin ekki að taka þátt í undankeppni HM '94. Reyndar var banninu á Rojas aflétt árið 2001. En hvers lenskur, eða frá hvaða landi var markvörðurinn blóðugi?

 

  1. Finnið eina staðreyndavillu. Fyrsta heimsmeistarakeppnin fór fram í Uruguay 1930 þar sem heimamenn hrósuðu sigri. Í þessari fyrstu keppni fór ekki fram nein undankeppni þ.a. metfjöldi þátttökuþjóða skráði sig til leiks eða 34 þjóðir. Eftir langa og stranga keppni mættust Uruguay og Argentína í úrslitaleik. Upp kom rifrildi um hvaða bolti skildi notaður í úrslitaleiknum og ákvað FIFA að hvort lið fengi að velja bolta fyrir sinn hvorn hálfleikinn. Dómari leiksins var frá Belgíu og hafði miklar áhyggjur af öryggi sínu. Hann krafðist því að bátur biði hans í höfninni í Montevideo að leik loknum svo hann gæti flúið ef ástandið yrði slæmt. Hver er villan?

 

  1. Ronaldo hinn brasilíski hefur skoraði flest mörk í lokakeppni HM eða 15. Næstir á hæla honum koma þýsku kempurnar Gerd Muller og Miroslav Klose. Sá þriðji á listanum skoraði 13 mörk í lokakeppni HM. En það sem er svo magnað við þann þriðja er að ólíkt Ronaldo og Muller skoraði hann öll mörkin í sömu keppninni, í Svíþjóð 1958. Hvað heitir kappinn?

 

  1. Spurt er um HM kempu. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið okkar Evrópubúa þegar hann sló í gegn í rauðum og hvítum búningi PSV Eindhoven sitt hvorum megin við árið 1990. Þar náði hann þeim magnaða árangri að skora nánast í hverjum leik en hann lék um 100 leiki fyrir PSV. Michael Laudrup sagði að framherjinn væri sá besti sem hann hefði spilað með. Hann var valinn knattspyrnumaður ársins árið 1994 af FIFA. Hann lagði skónna á hilluna árið 2009 þar sem hann var kominn aftur til heimalands síns þar sem hann spilaði reyndar stóran hluta af ferli sínum. Árið 2008 gaf hann út DVD disk sem innihélt um 900 mörk sem kappinn skoraði víðs vegar á löngum ferli. Hver er leikmaðurinn?

 

  1. Spurt er um heimsmeistaramót. 24 lið mættu til leiks og spiluðu í 6 riðlum. Heimsmeistararnir fóru taplausir í gegnum mótið sem fór fram í annarri heimsálfu en heimsmeistararnir voru frá. Lukkudýr keppninnar var hundur og Argentínumenn duttu út í 16 liða úrslitum. Hver er keppnin?

 

  1. Grikkir gerðu þetta á HM 1994, Frakkar gerðu þetta 2002, Alsír og Hondúras gerðu þetta í nýlokinni keppni og líklega u.þ.b. helmingur gestanna hérna inni gerðu þetta í svefnherberginu í gærkvöldi. Hvað er “þetta” sem ég er að tala um?

 

  1. Svíar náðu sínum næst besta árangri í sögunni í Bandaríkjunum árið 1994 þegar liðið hafnaði í þriðja sæti. Markvörður Svía er einn sá landsleikjahæsti í sögu knattspyrnunnar og fór á kostum í vítaspyrnukeppninni gegn Rúmenum í 8-liða úrslitum. En hvað heitir þessi litríki markvörður?

 

  1. Menn misstu sig aðeins yfir frammistöðu Norður-Kóreu í fyrsta leik sínum í S-Afríku en liðið tapaði “aðeins” 2-1 gegn Brasilíu. En næstu tveir leikir gegn Portúgal og Fílabeinsströndinni gáfu betri mynd af styrkleika liðsins. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögunni sem N-Kórea keppir á HM en þeir mættu líka til leiks árið 1966. En hvaða stórþjóð í knattspyrnu sigraði liðið í þeirri keppni? Ítalíu, Portúgal eða V-Þýskaland?

 

  1. Þegar Asamoah Gyan skaut í slánna á lokamínútum framlengingar gegn Uruguay fóru menn að velta fyrir sér þeirri staðreynd að knattspyrnumenn hafa verið drepnir fyrir minna. Í keppninni 1994 varð leikmaður Kólumbíu fyrir því óláni að skora sjálfsmark í leik gegn gestgjöfum Bandaríkjanna. Nokkrum dögum síðar var leikmaðurinn skotinn til bana en talið er að sjálfsmark kappans hafi ekki hjálpað þeim sem stunduðu veðmálabrask heima í Kólumbíu. Kappinn ber sama eftirnafn og þekktur samlandi hans, Escobar, sem er líka kominn í gröfina en hvert var fornafn leikmannsins?

 

Hlé – pub quiz byrja um miðjan ágúst

 

  1. Michael Ballack, fyrirliði Þjóðverja, meiddist skömmu fyrir keppnina í bikarleik með Chelsea og var því fjarri góðu gamni. Það var þó ekki að sjá á spilamennsku Þjóðverja að það vantaði fyrirliðann. Ballack nýtti þó tímann vel og söðlaði um eftir frekar dapra frammistöðu í búningi Chelsea undanfarin ár. En með hvaða liði mun Ballack leika á næsta tímabili?

 

  1. Spurt er um HM legend. Hann spilaði á sínu fyrsta heimsmeistaramóti árið 1990 þá 22 ára gamall og spilaði á þremur í viðbót áður en hann lagði landsliðsskónna á hilluna. Hann var ekki þekktur fyrir að skora mörk en afrekaði það þó að skora í úrslitaleik Meistaradeildar eitt tímabil en hann lék í átta úrslitaleikjum Meistaradeildar á ferli sínum. Verðlaunaskápur kappans er troðfullur en hann kann líklega best að meta konuna sína sem er súpermódel af dýrari gerðinni frá Venezuela. Synir kappans, 9 ára og 15 ára, eru báðir á mála hjá fyrrverandi félagi föður síns, sem er það eina sem hann lék með á glæstum ferli. Hver er kappinn?

 

 

  1. Stærsta vafaatriði HM er líklega markið sem Frank Lampard skoraði gegn Þjóðverjum þegar dómarar leiksins voru ekki fullvissir um að allur boltinn væri inni en eins og allir eiga að vita þarf allur boltinn að vera innan marklínu, ekki bara snertiflötur boltans við jörðina. Margir hafa kvartað yfir að dómarar frá löndum á borð við Úsbekistan og Guatemala séu að dæma í leikjum á heimsmeistaramóti en spurningin er þessi. Hvers lenskt var dómaratríóið í viðureign Englands og Þýskalands sem var sent heim eftir þessi afdrifaríku mistök?

 

  1. Mikið hefur verið rætt um dómgæslu í tengslum við HM í Suður Afríku enda þykir mörgum dómarar hafa gert ansi mörg slæm mistök. Stundum er staðreyndin hins vegar sú að þeir sem lýsa leikjum eða kvarta hvað mest yfir frammistöðu dómarans skilja ekki reglurnar til fulls. Nú verða nefnd fjögur dæmi og spurt: Getur verið rangstaða í eftirfarandi föstum leikatriðum skv. Knattspyrnulögum FIFA?

a) Innkast b) Hornspyrnu c) Markspyrnu d) Óbeina aukaspyrnu

 

  1. Synir Abedi Pele eða Abedi Ayew voru ekki einu bræðurnir á HM sem vöktu athygli. Boateng bræður mættu til leiks á HM en spiluðu reyndar með sitthvoru landsliðinu sem þykir frekar skrýtið þegar um bræður er að ræða. Orðrómur er uppi þess efnis að eftir að Jerome gagnrýndi harkalega tæklingu Kevin Prince á Michael Ballack skömmu fyrir HM talist bræðurnir ekki við. En hvor bróðirinn er eldri, Jerome Boateng eða Kevin Prince Boateng?

 

  1. Spurt er um HM legend. Leikmaðurinn spilaði aðeins í einni HM keppni og áttu fáir von á því að hans hlutverk yrði stórt. En eftir að hafa komið af bekknum og skorað sigurmarkið í fyrsta leik þjóðar sinnar var ekki aftur snúið. Á næstu vikum átti hann eftir að vinna hug og hjörtu landa sinna og alheimurinn myndi ekki gleyma nafni hans í bráð. Hann spilaði með tveimur af stærstu félögunum í heimalandi sínu áður en hann lauk ferlinum hjá Júbíló Iwata í japönsku deildarkeppninni. Hann deilir gælunafni sínu með þekktri poppstjörnu en frægasti smellur hennar fjallar um rigningar í heimsálfu nokkurri. Hver er kappinn?

 

  1. Ítalía er sigursæl þjóð í sögu HM. Þeir hafa alls unnið titilinn fjórum sinnum og eru því næst sigursælasta þjóðin á eftir Brasilíu sem hefur unnið titilinn 5 sinnum. En hvaða ár voru það sem Ítalir fögnuðu heimsmeistaratitlinum?

 

  1. Eitt umdeildasta atvik í sögu HM varð á Wembley leikvanginum í Englandi á HM 1966. Í stöðunni 2-2 skaut Geoff Hurst sóknarmaður West Ham í slánna og boltinn hrökk niður. Englendingar fögnuðu marki og eftir að svissneskur dómari leiksins hafði ráðfært sig við línuvörðinn, sem í dag heita víst aðstoðardómarar, var dæmt mark og England komið í 3-2. Hurst bætti við marki og fullkomaði þrennu sína, England vann 4-2. En hvers lenskur var línuvörðurinn sem taldi boltann hafa verið inni (sem hann líklega var ekki)?

 

  1. Satt eða ósatt. Þjóðverjinn Lothar Matthaus spilaði á alls 5 heimsmeistaramótum.Hann var í liði V-Þjóðverja á Spáni 1982, Þjóðverja í Frakklandi 1998 og keppnunum þremur þar á milli ýmist með V-Þjóðverjum eða Þjóðverjum. Satt eða ósatt?

 

  1. Spilað hefur verið í 5 mismunandi heimsálfum á HM og hafa vallaraðstæður verið ólíkar. Á HM '94 í Bandaríkjunum var í fyrsta sinn spilað innandyra. En í hvaða borg var sá leikvangur en fyrir þá sem eru kunnugir Bandaríkjunum gæti hjálpað að borgin er í Michigan ríki?

 

  1. Í síðari tíð hafa markahæstu leikmenn HM yfirleitt skorað 6 mörk. Það gerðu þeir Paolo Rossi 1982, Gary Lineker 1986. Sömu sögu er að segja af markahæstu leikmönnum HM '90, '94 og '98. En hvað skoraði Miroslav Klose mörg mörk á HM 2006 þegar hann var markakóngur?

 

  1. Eitt frægasta atvik HM á Ítalíu 1990 voru tárin hjá Paul Gascoigne. Það er svo sem ekki sjaldgæft að menn felli tár eftir að hafa fallið úr leik en það sem var sérstakt við þetta atvik var að gráturinn átti sér stað á meðan á leiknum stóð, nánar tiltekið í framlengingunni þegar staðan var 1-1. En hvers vegna fór Gazza að gráta?

 

  1. Satt eða ósatt. Það þarf ekki að kynna Sir Alex Ferguson fyrir neinum. Hann hefur verið þjálfari Man Utd síðan árið 1986 eða í 24 ár. Þar áður náði hann góðum árangri með Aberdeen í Skotlandi og rauf sigurgöngu Glasgow liðanna tímabundið. Skoska landsliðið hefur ekki riðið feitum hesti frá lokamótum HM í knattspyrnu og engin undantekning varð á því árið 1986 þegar sjálfur Alex Ferguson var landsliðsþjálfari Skota. Satt eða ósatt?

 

  1. Þeir sem fylgst hafa með HM í Suður Afríku sem hlýtur að gilda um alla þá sem hingað eru mættir hafa hugsanlega tekið eftir því að leikmenn eru mis söngelskir þegar kemur að því að syngja þjóðsöng þjóðar sinnar. Flestir Frakkar og Englendingar syngja þjóðsönginn en þegar myndavélin er á spænska landsliðinu á meðan á þjóðsöngnum stendur syngur enginn. Það á sér hins vegar góða og gilda skýringu. Hver er hún?

 

  1. Lengi fram eftir móti voru menn að tala um HM 2010 sem keppni S-Ameríku þjóðanna. En það fór reyndar svo að aðeins ein þjóð frá S-Ameríku komst í undanúrslit keppninnar. Mikil spenna var í undankeppninni í S-Ameríku og ekki ljóst fyrr en í seinasta leik hvaða 4 þjóðir færu beint í lokakeppnina og hver væri sjötta þjóðin sem færi í umspilsleik. En hver var 5. og þar með síðasta þjóðin í S-Ameríku til að tryggja sig inn á HM?

Ummaeli
Skrifa ny ummaeli Leita
jon arnar   |2010-07-24 22:29:26
1.giuseppe meazza

2.dunga og donna


3.ísland


4.vinstri hendi hægri fæti


5.ungverjalandi

6.beckenbauer og garrincha


7.chile


8.13 lið tóku þátt


9.justin fontain


10.romario


11.94 i usa


12.skora ekki


13.


14.italiu


15.ricardo


Hlé
Hafsteinn Viðar   |2010-07-26 10:44:04
1. Guiseppe Meazza
2. Maradonna og Dunga
3. Ísland
4. Vinstri hönd, vinstri fótur
5. Rússlandi
6. Mario Zagallo og Franz Beckenbauer
7. Chile
8. Aðeins 13 þjóðir tóku þátt á HM 1930, ekki 34.
9. Just Fontaine
10. Romario
11. Bandaríkin 1994
12. Skoruðu ekki í mótinu.
13. Thomas Ravelli
14. Ítalíu
15. Andrés
16. Leverkusen
17. Paolo Maldini
18. Uruguay
19. A) Nei, Nei, C) Nei og D) Já
20. Kevin Prince er eldri
21. Toto Schillaci
22. 1934, 1938, 1982, 2006
23. Azerbaijan
24. Satt
25. Pontiac
26. 5
27. Fékk gult spjald sem þýddi að hann hefði misst af úrslitaleiknum hefðu Englendingar komist þangað.
28. Satt
29. Það er enginn texti í spænska þjóðsöngnum
30. Úruguay
Hafsteinn Viðar   |2010-08-08 18:23:31
Fáum við ekki að vita svörin?
Kolbeinn Tumi   |2010-08-19 09:39:59
Allt rétt hjá þér Hafsteinn. Gáfum rétt fyrir Detroit í spurningu #25.
Skrifa ummaeli
Nafn:
E-mail:
 
Vefsida:
Titill:
Breyta texta:
[b] [i] [u] [url] [quote] [code] [img] 
 
 
:angry::0:confused::cheer:B):evil::silly::dry::lol::kiss::D:pinch:
:(:shock::X:side::):P:unsure::woohoo::huh::whistle:;):s
:!::?::idea::arrow:
 
Skrifadu stafina a myndinni.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
< Prev   Next >
[+]
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • hot color
  • natural color